Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 13
18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ BraunThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Tryggingamálið flæktist Þegar hjónin höfðu samband við tryggingafélagið sitt var þeim upphaflega sagt að þau þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur; þau væru í 100% rétti og fengju tjónið bætt. „Raunar fylgdi sögunni að hugsanlega væru menn uppfrá að laga girðingar,“ segir Au- rora. Henni þótti undarlegt að þær upplýsingar væru gefnar en hún starfaði sjálf lengi sem umboðsmaður tryggingafélags. Draga þurfti bílinn og geyma með tilheyrandi kostnaði sem tryggingafélagið samþykkti að greiða. „Varla hefði það verið gert hefði vafi verið í málinu,“ segir Aurora. Fljótlega flæktist þó málið en í ljós kom að eigandi hestanna, Íslenski hesturinn, var tryggður hjá sama félagi. Þegar Aurora ætlaði að nálgast lögregluskýrsluna var beiðni hennar hafnað með þeim rökum að tryggingafélagið yrði að biðja um hana. „Það hef ég aldrei heyrt áður,“ segir hún. Aurora gerir einnig athugasemd við atvikalýsingu í skýrsl- unni en þar er bíllinn til dæmis sagður lítið skemmdur. Hulduvera á ferli? Sonur Auroru, Sighvatur Bjarnason, hafði samband við eiganda hestanna sem taldi líklegustu skýringuna á því að hestarnir gengu lausir þetta kvöld þá að „einhver óviðkomandi“ hefði opn- að hliðið að beitilandinu. Sjálfur var eigandinn viss um að hafa lokað því. „Af þessum sökum gekkst eigandinn ekki við ábyrgð og þessi skýring var upphaflega tekin góð og gild af trygginga- félaginu. Það er auðvitað grafalvarlegt mál. Gangi einhver hulduvera um og opni hlið fyrir hrossum í skjóli nætur við þjóð- veginn hlýtur lögreglan að þurfa að rannsaka málið. Það hlýtur að teljast mjög alvarlegur ásetningur,“ segir Sighvatur. Þessu vildi fjölskyldan ekki una og fékk sér lögmann. Ekki dró til tíðinda fyrr en tæpum tveimur árum síðar þegar í ljós kom að Matvælastofnun hafði í desember 2013, mánuði fyrir slysið, gert skriflega athugasemd við aðbúnað hrossanna í téðu beitilandi á Kjalarnesi. Þau hefðu til að mynda ekki nóg æti. Engar heyrúllur voru í hólfinu og þekkt er að svangir hestar fara gjarnan á ferð. „Það þýddi að eigandinn var ekki lengur grandvaralaus og við það breyttist afstaða tryggingafélagsins og tjónið var bætt að fullu,“ segir Sighvatur. Réttlætið sigraði Aurora segir þetta gott dæmi um það að venjulegt fólk megi sín oft lítils gagnvart fyrirtækjum í tryggingamálum. „Þetta var löng og ströng barátta og sjálfsagt hefðu margir verið búnir að gefast upp. Við vorum hins vegar staðráðin í að sækja rétt okk- ar. Okkur var slétt sama um krónurnar fyrir bílinn; þetta mál snerist um ábyrgð eiganda hestanna – gagnvart dýrum og mönnum. Sú ábyrgð var á endanum viðurkennd og réttlætið sigraði.“ Sighvatur segir þessi tvö slys vekja áleitnar spurningar um öryggi vegfarenda á þessum slóðum. Lausaganga hrossa sé stranglega bönnuð í Reykjavík og eigendum beitihaganna beri skylda til að girðingar séu hrossheldar. „Eftir að foreldrar mínir lentu í slysinu á sínum tíma fór ég og skoðaði aðstæður á vett- vangi og það er óhætt að segja að pottur sé brotinn; hross kom- ast víða upp á veginn. Það er viðvarandi vandamál á þessum slóðum að hross séu á ferð yfir veginn og það hlýtur að vera á ábyrgð eigenda þeirra,“ segir Sighvatur sem veltir líka fyrir sér hvort eðlilegt sé að beitihólf séu svo nálægt þjóðveginum. Kemur óorði á alla Að dómi Sighvatar er það hagur allra hestaeigenda á svæðinu að úrbætur séu gerðar enda komi slys sem þessi óorði á þá alla enda þótt flestir séu eflaust með sitt á hreinu. Aurora veltir fyrir sér hvort ekki sé ástæða til að skylda eig- endur hesta á þessu svæði til að hafa endurskinsmerki á hest- unum. „Ég veit svo sem ekki hvort slíkt eru yfirleitt til en það hlýtur að mega hanna endurskinsmerki sem hestarnir bera án óþæginda, til dæmis í faxinu.“ Fyrir utan slysin hefur Aurora sjálf hringt nokkrum sinnum og tilkynnt um laus hross á og við þjóðveginn á Kjalarnesi og veit til þess að fleiri íbúar í Grundahverfi hafi gert slíkt hið sama. „Lögreglunni er kunnugt um þennan vanda, eins Mat- vælastofnun, Reykjavíkurborg, eigendum hestanna og trygg- ingafélaginu. Samt er ekki búið að leysa málið. Eftir hverju eru menn að bíða? Dauðaslysi?“ spyr Aurora og bætir við að sjálf sé hún orðin mjög vör um sig að keyra þessa leið, sér í lagi í myrkri. Fólk þarf að vera öruggt „Fólk þarf að vera öruggt þegar það keyrir heim til sín. Það er heldur ekki eins og þetta sé einhver fáfarinn sveitavegur, þetta er sjálfur þjóðvegurinn og gríðarlegur fjöldi bíla fer þarna um á degi hverjum. Kjalarnes tilheyrir Reykjavík en samt er ekkert hugsað um lýsingu á veginum. Myndi þetta líðast í Breiðholtinu eða Árbænum? Hross hlaupandi um götur í svarta myrkri.“ Svari nú hver fyrir sig. „Samt ók ég hægt, var í mesta lagi á sjötíu kílómetra hraða á klukku- stund; hefði ég verið á níutíu, eins og leyfilegt er, væri ég varla hér. Ég var stálheppin að halda bílnum á veginum,“ segir Aurora Friðriks- dóttir um slysið árið 2104. Morgunblaðið/Eggert Bifreið Auroru skemmdist mikið við atvikið árið 2104 og var dæmdur ónýtur. Langan tíma tók að fá tjónið bætt. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.