Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 23
Börnin hennar Parvaneh finna strax að Ove þarf á væntumþykju að halda.
Ljósmynd/Johan Bergmark
ravaneh, þá myndi sú manneskja eðlilega verða
sár og fara, eða verða reið og láta það bitna á
einhverjum öðrum. En hún svarar í sama tón og
opnar þannig dyrnar fyrir vinskap þeirra.“
Menningarheimar mætast
„Það er einn staður í bókinni sem ég held mikið
upp á og finnst lýsa vinskap þeirra vel,“ segir
Hannes. „Ove er að kenna Parvaneh að keyra bíl
og bendir á að eftir allar þær hörmungar sem
hún hafi upplifað í heimalandinu, flúið land, lært
nýtt tungumál og aðlagast nýju samfélagi, þá
hljóti hún að geta lært á bíl. Mér finnst þetta svo
fallegt af honum, og líka í ljósi allra Sýrlending-
anna sem eru núna að flykkjast til Svíþjóðar.“
„Ove er samt alveg sama í raun hvort hún er
innflytjandi eð ekki,“ segir Bahar. „Fyrir hon-
um á rétt að vera rétt og rangt er rangt, sama
hvaða eða hverning manneskja á hlut að máli.“
Finnst ykkur þetta mjög sænsk kvikmynd?
„Já!“ segir Rolf án þess að hika. „Þetta er auð-
vitað sammannleg mynd og á þann hátt alþjóðleg,
jafnvel ævintýri að vissu leyti, en sá ævintýra-
heimur er reistur í mjög sænsku samfélagi.“
„Já, en hvað varðar samband Ove og Parvan-
eh, þá er þetta mjög evrópsk saga, einmitt það
sem er að gerast alls staðar í Evrópu núna, fólk
úr ólíkum menningarheimum að kynnast, tak-
ast á og mynda vinskap,“ bætir Bahar við.
„Ég er sammála ykkur báðum,“ segir Hann-
es, „enda hefur kvikmyndin verið mjög vinsæl
um alla Evrópu og ekki síst í Skandinavíu,
þannig að fólk alls taðar er að tengja við þessa
sögu. Og nú er hún orðin framlag Svíþjóðar til
Óskarsverðlaunanna, þannig að stundum geta
gamlir fúlir karlar komið manni á óvart.“
„Já, og við þurfum að vera opin hvert fyrir
öðru. Sjá hvert annað. Það er kannski klisja en
samt satt,“ segir Bahar.
Hverju breytir Óskarsútnefningin fyrir þig
Hannes?
„Hm … hingað til hef ég sjálfur skrifað hand-
ritin að myndunum mínum. Þessar vinsældir
sýna mér að kannski ég ætti frekar að búa til
kvikmyndir byggðar á annarra manna sögum,“
segir Hannes og hlær.
„Já, endilega haltu því áfram!“ tekur Rolf
undir og Bahar hlær dátt.
Bahar Pars og Rolf Lassgård í hlutverkum sínum sem Parvaneh og Ove.
Skjáskot úr myndinni
Morgunblaðið/Hildur Loftsdóttir
18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23