Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016 HÖNNUN Það vakti athygli í sumar þegar Tuli-pop jók hlutafé sitt um 250 milljónirkróna með aðkomu fjárfesting- arsjóðsins Frumtaks sem nýs hluthafa og Þorberg ehf., sem er félag í eigu Dóru Bjargar Marinósdóttur og átti þegar hlut í fyrirtækinu. Með auknu hlutafé opnuðst möguleikar á frekari landvinningum. Signý Kolbeinsdóttir, yfirhönnuður og annar stofnenda Tulipop, flytur ásamt fjölskyldu sinni til New York í lok janúar þar sem fyr- irtækið mun setja á fót skrifstofu. Signý segir verkefnið leggjast vel í sig enda sé ekki hlaupið að því að reka alþjóðlegt fyr- irtæki frá Íslandi. „Ef þú ert að stefna á einhvern stærri markað þarftu einfaldlega að vera á staðn- um og hitta fólkið. Það er ekki hægt að gera alla hluti gegnum síma og netið. Það er bara ekki það sama og að vera með mann- eskju á staðnum. Tækifærin eru þarna úti. Við höfum allt- af stefnt að því að vera alþjóðlegt fyrirtæki. Þess vegna hefur allt okkar efni alltaf verið á ensku og líka nafnið á fyrirtækinu. Þó það sé dýrmætt að hafa sterka fótfestu á Ís- landi þá er markaðurinn lítill og erfitt að reka alþjóðlegt fyrirtæki einungis frá Ís- landi. Ekki nema vera þá alltaf á ferðalög- um og þá hittir maður aldrei börnin sín. Það er ekkert ódýrt heldur að vera sífellt að fljúga út,“ segir Signý. Bækur, tölvuleikir og teiknimyndir á dagskrá Tulipop snýst um ákveðnar fígúrur, karakt- era sem Signý hefur gefið líf gegnum myndheim sem er ólíkur flestu öðru. Heimurinn birtist svo neyt- endum í gegnum ýmsan varn- ing, s.s. lampa, diska, glös, töskur og fleira. Nú nýlega hafa einnig komið á markað mjúkdýr úr Tulipop-fjölskyldunni. En Signý segir draumana vera enn stærri. „Okkur hefur alltaf dreymt um að koma þessum fígúrum í sjónvarp, bækur, teikni- myndir og tölvuleiki. Við erum byrjaðar að vinna með framleiðendum í Bretlandi og Skotlandi sem eru að fara í það verkefni með okkur að lífga fígúrurnar við. Fólk er alltaf að spyrja hverjir þetta eru, hvað fíg- úrurnar gera? Við viljum gera meira af því að segja sögur af þessum karakterum.“ Bandaríkjamenn opnir fyrir nýjungum Signý segir Bandaríkjamarkað að mörgu leyti ólíkan Íslandi og Evrópu. Það sýni sig meðal annars í því að vörur fyrirtækisins séu keyptar fyrir ólíka hópa þar vestra og hér á landi. „Hér heima hefur fólk helst tengt vörurnar okkar við börn og keypt þær fyrir börn. Matarstellin frá okkur eru til dæmis mikið keypt í skírnargjafir. Í Bandaríkjunum er meira um að fólk hafi verið að kaupa Tulipop fyrir unglinga og jafnvel fullorðna.“ Auk þess að selja núverandi vörulínu fyr- irtækisins í Bandaríkjunum er hugmyndin að auka þann hluta fyrirtækisins sem snýr að því að selja öðrum framleiðendum af- notarétt af vörumerkjum undir Tulipop- hattinum. Nú þegar hefur verið gerður einn slíkur samningur við leik- fangavörufyrirtækið Toy- nami. Það fyrirtæki hefur keypt réttinn til að nota Tulipop-fígúrur til að fram- leiða mjúkdýr sem sett verða í sölu í yfir 100 leik- fangaverslunum sem nefnast Hot Topic í Bandaríkjunum í jan- úar. „Hot Topic eru leik- fangabúðir sem eru hugsaðar fyrir eldri krakka, um 10 - 16 ára. Ég er mjög spennt fyrir Banda- ríkjamarkaði því fólk þar er svo opið fyrir nýjungum. Við erum samt ekki endilega að fara að gera nýjar vörurMorgunblaðið/Golli Ísland orðið of lítið Hönnunarfyrirtækið Tulipop opnar skrifstofu í New York á nýju ári. Signý Kolbeinsdóttir yfirhönnuður segir þetta rökrétt skref. Markmiðið sé að byggja upp alþjóðlegt fyrirtæki og til þess að ná árangri í Banda- ríkjunum sé nauðsynlegt að vera á staðnum Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is STÓLADAGAR 25% afsláttur af ÖLLUM stólum* EKKI MISSA AF ÞESSU! EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF BORÐSTOFUSTÓLUM HÆGINDASTÓLUM ELDHÚSSTÓLUM OG BARSTÓLUM YFIR 500 GERÐIR * Gildir ekki af sérpöntunum. 15% afsláttur af Skovby stólum og Timeout. Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 www.husgagnahollin.is 558 1100 Ísafjörður Skeiði 1 Laugard. 17. des. 11–18 | Sunnud. 18. des. 13–18 21.–23. des. 10–22 | Aðfangadagur 24. des. 10–13 Aðra daga fram að jólum er opið 10–18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.