Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Síða 29
fengum þá inn einkaaðila sem vann með
okkur að því að koma fyrirtækinu á næsta
þrep. Nú í sumar kom Frumtak svo inn og
sú aukning var meðal annars gerð með það
að markmiði að opna skrifstofu í Bandaríkj-
unum og auka sýnileika okkar á erlendum
mörkuðum.“
Signý segist alltaf hafa haft trú á því að
fyrirtækið myndi ná langt og hægt yrði að
láta þann draum að koma Tulipop-
veröldinni í verslanir víða um heim rætast.
„Þú þarft fyrst og fremst að hafa trú á
því sem þú ert að gera. Það er hægt að
komast mjög langt á því. En svo þarf að
hafa þolinmæði og þrautseigju því þetta
gerist ekki allt á einum degi. Svona upp-
bygging bara tekur tíma,“ segir Signý sem
þessa dagana er að skipuleggja flutningana
út í janúar. Hún og eiginmaður hennar
Heimir Snorrason fara utan ásamt börn-
unum Snorra og Svövu. Signý ætlar að
koma Tulipop-skrifstofunni fyrir í húsa-
kynnum WeWork í Brooklyn, en það er
eins konar skrifstofuútleiga þar sem safn-
ast saman fólk og fyrirtæki úr ýmsum
skapandi greinum.
Hún segir að þeim hætti þó til að gleyma
að staldra við og fagna því sem vel hefur
tekist, þeim áföngum sem náðst hafa. „Við
erum að reyna að vera duglegri að fagna
öllum litlu sigrunum og það er auðvitað frá-
bært að hjá fyrirtækinu sé nú starfandi öfl-
ugt sex manna teymi sem vinnur að því að
koma Tulipop heiminum fyrir augu fólks
um allan heim. Það er gaman að geta stigið
næstu skref og stækkað Tulipop heiminn
enn frekar.“
Diskar, glös og
hnífapör eru vin-
sæl fyrir börn hér
á landi en í Banda-
ríkjunum eru vör-
urnar ekki síður
keyptar fyrir ung-
linga og fullorðna.
Fígúrur Tulipop eiga sér allar
nöfn bæði á íslensku og ensku.
Mjúkdýrin fara í sölu í yfir 100 bandarísk-
um leikfangabúðum í upphafi næsta ár.
heldur miklu frekar að segja fleiri sögur af
karakterunum sem við erum með nú þegar.
Búa til öpp og teiknimyndir og gera svo
mögulega fleiri samninga um afnotarétt af
okkar vörumerkjum,“ segir Signý.
Hún segir markið þó ekki endilega sett á
að gera barnaefni.
„Við ætlum svolítið að fara með teikni-
myndirnar í þá átt að hugsa þær ekki endi-
lega fyrir ákveðinn aldurshóp heldur bara
gera þetta eins og okkur langar. Gera þetta
jafnvel að teiknimyndum sem geta verið
fyrir börn eða fullorðna. Ef þér finnst það
skemmtilegt þá máttu horfa, alveg sama á
hvaða aldri þú ert.
Litir, gleði og skemmtilegar teikningar
þurfa ekki að vera fráteknar fyrir börn. Það
eru allir skapandi og flestir hafa gaman af
litum og einhverju fallegu. Okkur langar að
má út þessar línur sem segja okkur að eitt-
hvað sé fyrir börn og annað ekki. Við viljum
bara gera eitthvað skemmtilegt og fallegt.
Tulipop byrjaði einmitt svona, það átti
bara að vera eitthvað skemmtilegt, hvorki
hugsað sérstaklega fyrir börn né sér-
staklega fyrir fullorðna.“
Byrjuðu tvær en eru orðnar sex
Tulipop-heimurinn er hugarfóstur Signýjar
en fyrirtækið stofnaði hún ásamt Helgu
Árnadóttur, vinkonu sinni og fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, árið 2010. Nú
starfa alls sex konur hjá fyrirtækinu sem
hefur vaxið jafnt og þétt á þeim árum sem
það hefur starfað og tvisvar ráðist í hluta-
fjáraukningu.
„Fyrst jukum við hlutafé árið 2013 og
’Okkur hefuralltaf dreymtum að koma þess-um fígúrum í
sjónvarp, bækur,
teiknimyndir og
tölvuleiki.
18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
LÝKUR UM HELGINA