Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 39
Ein í gegnum töfraskóg Við komum að bryggju þar sem mér var bent á að fara í „land“ en þar biðu konur og börn á litlum við- arbátum eftir að fá að sigla með ferðamenn í gegnum skóg sem óx upp úr vatninu. Karlmennirnir voru líklega allir við veiðar en fólkið lifir þarna af fiskveiðum og er vatnið víst gjöfult. Móðir og ung dóttir sigldu með mig í gegnum þennan töfraskóg. Trén stóðu upp úr vatninu og sólin reyndi að brjóta sér leið gegnum laufið og greinarnar. Það var um stund eins og við værum einar í heiminum, þrjár mannverur að róa í gegnum skóginn og eina hljóðið sem heyrðist var tært hljóðið í vatninu þegar árin klauf yfirborð þess og droparnir féllu af árinni aftur í glitr- andi vatnið. Erfitt líf með níu bræður Sú stutta hafði lært nokkra frasa í ensku og spurði mig hversu gömul ég væri, og hversu mörg systkini ég ætti. Ég spurði að því sama á móti og í ljós kom að hún var átta ára, ein af ellefu systkinum. Þær voru aðeins tvær systurnar en níu bræður. Hún setti upp mæðulegan svip þegar hún sagði mér frá sínum níu bræðrum. Líklega var það ekki auðvelt hlut- skipti fyrir litla stúlku. Kannski þarf hún að passa fimm eða sex yngri bræður, hver veit. Móðirin var í blómakjól með strá- hatt. Hún talaði lítið sem ekkert en leit annað slagið við og brosti og hélt svo áfram för sinni í gegnum skóg- inn. Hún sleit hvít blóm af tré og rétti blaðamanni og dró svo nokkra smáfiska upp úr neti og henti þeim um borð. Þeir sprikluðu þar um stund þar til súrefnið varð þeim að aldurtila. Mamman var vel í holdum og með breiðar lendar, enda búin að koma ell- efu mannverum í heiminn. Sem móðir varð mér hugsað til þess hvernig það er að passa að börnin drukkni ekki þarna í þessum fljótandi bæ. Báturinn keyrður í strand Eftir einn ískaffi á „bryggjunni“ héldum við til baka sömu leið. Sá yngri fékk og stýra og tókst að keyra bátinn í strand á bakka einum. Það kom töluverður hnykkur og bát- urinn sat pikkfastur. Þeir voru hálf skömmustulegir drengirnir og hopp- uðu út í vatnið og byrjuðu að ýta af öllum lífsins krafti en krafturinn var ekki ýkja mikill í þessum grann- vöxnu líkömum og báturinn bifaðist varla. Það var ekki fyrr en skipstjóri sem átti leið hjá sá aumur á þeim og dró bátinn á flot að við gátum haldið förinni áfram. Svínin á leið á markaðinn Herra Chom beið pollrólegur við bakkann. Það var komið að hádegi og orðið vel heitt en gott að fá vind- inn í fangið í tuk-tuknum. Á heimleið keyrðum við framhjá manni á vélhjóli sem dró vagn fullan af bleikum svínsskrokkum sem lágu nokkrir saman hlið við hlið og minntu óþægilega mikið á mannslík- ama. En eftir að hafa séð steikta hunda til sölu í Víetnam og horft á konu skera hænur á háls var þetta allt ofurvenjulegt. Bara venjulegur sunnudagur í Kambódíu og svínin á leið á markaðinn. Svín verður í matinn hjá einhverjum í kvöld. Við töfraskóginn biðu konur og börn eftir túristum dagsins. Þar fékk blaðamaður ævintýralega siglingu milli trjáa. ’ Þeir voru berfættirdrengirnir tveir semtóku á móti mér, skip-stjórar á bátnum mínum, annar í mesta lagi tíu ára en hinn unglingur, töffari með hvít sólgleraugu. Ungar stúlkur á reiðhjólum veifa til ferðamannsins ljósa frá Íslandi. 18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 REYKJANESBÆ Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104 Þú finnur jólagjöfina hjá okkur Siemens - Adidas Under Armour - Cintamani ERNA Skipholti 3 - Sími: 552 0775 www.erna. is Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA Það er nú eða aldrei! 1ct demantshringur (IP1) 1.000.000,- 0.50ct demantshringur (HS1) 400.000,- 0.25ct demantshringur (HS1) 200.000,- Við Tonle Sap-vatn, sem er stærsta stöðuvatn með ferskvatni í Suð- austur-Asíu, búa milljónir manna, sumir við bakkana en aðrir í fljót- andi þorpum. Flestir lifa þar af fiskveiðum, enda gefur vatnið vel af fiski. Frá Siem Reap er stutt að fara að skoða þrjú þorp en þangað eru aðeins fimmtán kílómetrar. Þegar þangað er komið er auðsótt að sigla með litlum fljótabáti og skoða húsin, sem mörg hver standa á staurum en önnur fljóta á vatninu. Í þorpinu sem blaðamaður heimsótti, Kampong Phluk, var rólegt um að litast á sunnudags- morgni og fáir túristar á ferð, sem gerði upplifunina einstaka. Ferð- in tók fjóra tíma og kostaði alls $45 og í því var allt innifalið. Þeir sem ferðast til Kambódíu mega ekki sleppa því að leggja leið sína í fljótandi þorp. Vatnsborðið var lágt núna í desemberbyrjun. ÞORP Í VATNI Kampong Phluk

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.