Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016 LESBÓK H elgi Hallgrímsson náttúrufræð- ingur skrifaði fyrir liðlega ára- tug bókina Lagarfljót – mesta vatnsfall Íslands, 2010 kom út bókin Íslenskir sveppir og sveppafræði, sem Helgi fékk Íslensku bók- menntaverðlaunin fyrir, í flokki fræðirita og rita almenns eðlis og nú hefur enn eitt stórvirk- ið bæst við; Fljótsdæla – Mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Helgi er rösklega áttræður. Hann fluttist með foreldrum sínum úr Fellum í Fljótsdal eins árs að aldri, bjó annars staðar við nám og störf lengi en flutti austur á ný fyrir nærri þrjátíu ár- um, tók aftur til við skógrækt á æskuheimilinu að Droplaugarstöðum sem hann hóf í æsku, en hefur búið á Egilsstöðum. „Það er alveg ljóst að Lagarfljótsbókin kom til vegna virkjanamálanna og þessi að einhverju leyti líka,“ segir Helgi þegar spurt er um ástæður þess að hann réðst í þetta gríðarlega verkefni sem bækurnar eru. Honum þykir vænt um landið og var andsnúinn virkjanafram- kvæmdunum. Nokkrir merkisatburðir í Fljótsdal um 1990 urðu til þess að Helgi hóf að rifja upp fyrri kynni til landið og fólkið, eins og hann orðar það, og uppgötvaði þannig Fljótsdalinn á nýjan leik. „Ég gerði mér enn betur grein fyrir fegurð hans og fjölbreytni.“ Riða – skógrækt – virkjanamál Í fyrsta lagi nefnir Helgi riðuveiki sem kom upp í dalnum. „Sauðfé var slátrað á öllum bæjum sem rýrði mjög sveitina, þriðjungur bæja fór í eyði og sveitin hefur ekki borið sitt barr sem sauðfjárræktarsvæði síðan. Um svipað leyti hófst mikið skógræktarátak, Héraðsskógar voru settir á stofn, áttu að bæta niðurskurð sauðfjárins upp að hluta og hafa gert, og svo voru það áform um stóra virkjun og tilheyrandi stóriðju. Allt þetta leiddi til þess að ég fór að skoða Fljótsdalshrepp miklu meira en áður. Ár- ið 1991 skrifaði ég 16 síðna bækling, árið eftir var hann gefin út aftur, var orðinn 32 síður og þá fór hreppurinn að nota hann til kynningar. Það má segja að fyrir rest hafi bæklingurinn fitnað dálítið eins og púkinn á fjósbitanum því hann er upphafið að þessari bók!“ Fljótsdæla er um 540 síður í stóru broti, prýdd nærri 700 myndum og Helgi leitaði víða fanga. Í bókinni lýsir Helgi landslagi og nátt- úrufari í hreppnum og getur ábúenda á hverri jörð frá því um 1800 til dagsins í dag. Saga hreppsins er einnig rakin í nokkrum köflum frá landnámi til nútímans. „Þessi hreppur er einstakur að mörgu leyti og margt sem stuðlar að því,“ segir Helgi Hall- grímsson og bætir við: „Fljótsdalur er ein fal- legasta og kostaríkasta sveit landsins.“ Hann nefnir fjallið tignarlega, Snæfell, sem gnæfir yfir dalnum, hæsta fjall landsins utan jökla. „Svo eru það fossarnir; ég held að þetta sé fossaríkasta sveit landsins, eða var það að minnsta kosti. Það hefur breyst mikið síðan virkjað var; mér taldist einhvern tíma til að 120 fossar, sem kalla mætti því nafni, væru í með- alám og stærri en þeim hefur fækkað ansi mik- ið, að minnsta kosti mikinn hluta ársins. En tveir af hæstu fossum landsins, Hengifoss og Strútsfoss, eru þó óskertir. Fljótsdalur er mikil skógarsveit; nokkrir gamlir birkiskógar og mikið af nýskógum hefur bæst við í seinni tíð. Hér er ákaflega sérstakt loftslag, svona lágt yfir sjó og langt inni í landi; ég held að megi fullyrða að þetta sé einhver besta sveit á landinu til búskapar, fyrir utan all- ar afréttirnar sem búskapur með sauðfé bygg- ist náttúrlega á. Þær afréttir eru yfirleitt nokk- uð vel grónar.“ Helgi fjallar mikið um mannlíf í hreppnum. „Hér var óvenju mikið félagslíf og á 19. öld var þessi hreppur á undan flestum öðrum, til dæm- is að því leyti að um aldamótin 1800 var hér stofnað einskonar tryggingafélag, Matsöfn- unarfélag Fljótsdals, löngu á undan öðrum sveitum, eitt fyrsta búnaðarfélag landsins var stofnað í Fljótdal um miðja 19. öld og meira að segja vísir að verkalýðsfélagi, um 1875. Það var kallað Skrúfufélagið vegna þess að því var ætl- að að skrúfa upp kaupið!“ Helgi segir að ungmennafélagið í Fljótsdal hafi alltaf verið mjög sterkt og næstum allir í því, ungir og gamlir. „Það lagði stund á hvers konar menningu fyrir utan að æfa menn í ræðumennsku. Svo voru gefin út handskrifuð sveitablöð eins og sums staðar annars staðar.“ Mikilvægt að fjalla um fólkið Um þriðjungur bókarinnar fer í að fjalla um jarðir í hreppnum og fólkið sem þar hefur búið. „Mér fannst það mjög mikilvægt fyrir þessa sveit og fyrir fólkið sem héðan er ættað. Upphaflega var þetta meira hugsað sem al- menn lýsing á náttúru og mannlífi en þegar til kom var ekki hægt annað en að segja frá þess- um ábúendum því bókin hlaut að fjalla að ein- hverju leyti um þá og þá þurfti að staðsetja þá á sinn bæ og koma þeim í eitthvert ættarsam- Fljótsdalshreppur einstakur að mörgu leyti Fljótsdæla – Mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi er ný bók eftir Helga Hallgrímsson náttúrufræðing. Hann átti heima í Fljótsdal sem barn en nam og starfaði annars staðar lengi. Bækur hans um svæðið má að hluta til rekja stórra virkjanaframkvæmda á Fljótsdalsöræfum. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Helgi Hallgrímsson: „Það er alveg ljóst að Lagarfljótsbókin kom til vegna virkjanamálanna og þessi að einhverju leyti líka.“ Hann var harður andstæðingar virkjanaframkvæmda eystra á sínum tíma. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Torfhúsasambygging á Langhúsum vorið 1990. Fjórstæð fjárhús og hesthús á bak við. Einu torfhúsin sem enn eru í notkun á Héraði og líklega á öllu Íslandi. Hið fallega Valþjófsstaðarfjall í baksýn. Þegar rithöfundar eru spurð- ir þessarar spurningar er mikilvægast að vera mjög meðvitaður. Finna einhverjar gáfulegar og mjög þungar bækur og lýsa áhuga sínum á þeim. Þannig gengur maður í augun á öðrum rithöfundum og gagnrýnendum en kannski engum les- endum. Ýmsir finna til bækur sem passa inn í þetta skapa- lón og lesa þær svo aldrei. Forystufé eftir Ágúst frá Gottorp hafa allir gott af að lesa og kynnast því hvernig fjárbúskapur var stundaður á árunum áður en skáldin fóru að skrifa langt mál um bú- vörusamninga. Þá nefni ég Ljón norðurs- ins eftir Bjarka Bjarnason. Hún er um Leó Árnason, byggingameistara og kúnstugheitamann. Hann barðist við tvo menn í sjálfum sér; athafnamanninn og skáldið og listamann- inn. Mikill fengur að þessu framtaki. Núna eftir Þorstein frá Hamri mun ég lesa. Þorsteinn er einn af uppáhaldshöfundum mín- um og auk þess vandaður maður sem gott er að eiga návist við, bæði í eigin persónu og ljóð- um. Yfir skáldskap hans er mikil kyrrð og ró sem gott er að sækja í. HVAÐ LANGAR HÖFUNDANA AÐ LESA? Óskar Magnússon Þessa dagana bíð ég spennt eftir að lesa Svartalogn eftir Kristínu Mörju Baldurs- dóttur. Eftir frábæran upp- lestur Kristínar á Rosenberg í nóvember hefur bókin sú verið efst á mínum óskalista fyrir þessi jól, en bækurnar um Karitas eru í miklu uppá- haldi. Þau Úlfur og Edda í samnefndri bók Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur eru mér ofarlega í huga enda urðu bækur okkar samferða hluta úr sköpunarleið í rit- listarnámi okkar við HÍ. Þar bíður sannarlega dýrgripur enda tilnefnd til Fjöruverð- launanna í ár. Lengi mætti telja upp bækurnar sem mig langar að lesa þessi jól en síð- ast vil ég nefna bókina Á hverju liggja ekki vorar göf- ugu kellíngar úr ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðu- menningar. Hún mun án efa falla vel í kramið hjá mér og ekki bara af því að ég er óttalega alþýðleg. Inga Mekkin Beck

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.