Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Side 52
 Óskarsverðlaunasveinkinn Margir leikarar hafa farið á kostum sem jólasveinninn en sá mest sjarm- erandi verður að teljast Edmund Gwenn enda er hann sá eini þeirra sem hefur hlotið Óskarsverðlaun fyrir. Gwenn lék jólasveinninn í jólamynd ársins 1947, Miracle on 34th Street. Sumir telja hann hinn fullkomna jólasvein, að minnsta kosti af þeim sem klæðast rauðum búningum og al- ir sveinkar bíómyndanna hafi flestir stefnt að því að líkjast honum.  „Eitís“ Sveinki Árið 1985 var ákveðið að leggja mikið í stórmynd um jólasveininn og ævintýri hans; Santa Claus: The Mo- vie. Dudley Moore var þar afar eft- irminnilegur sem álfur en jólasveinn- inn lék David Huddleston. Huddleston lést fyrir aðeins þremur mánuðum en margir sem ólust upp á 9. áratugnum tengja sterkt við hann sem jólasvein bíómyndanna.  Vondi sveinki Billy Bob Thornton náði að beygla aðeins hina heilögu ímynd jólasveins- ins í Bad Santa árið 2003 og fór þess í stað á kvennafar og skellti í sig áfengi og átti við ýmiss konar vandamál að stríða. Þrátt fyrir það er Thornton í hugum margra hinn eini sanni sveinki jólanna, í það minnsta sá skemmtilegasti. Þess má geta að Bad Santa 2 er nýkomin í kvikmyndahús hérlendis.  Attenborough-sveinki Ef náttúrulífsstjarnan David Attenborough væri með skegg væri hann kjörinn í hlutverk jólasveinsins í desember. Hann á hins vegar bróður Edmund Gwenn er í hugum margra hinn eini sanni jóla- sveinn hvíta tjaldsins. Natalie Wood lék á móti honum. Frægustu sveinkarnir Jólasveinar kvikmyndanna eru margir og mis- munandi en nokkrir leikarar í hlutverki sveinka eru eftirminnilegri en aðrir. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Græjur Tæknihluti vefsíðu breska dagblaðsins The Guardi- an hefur tekið saman lista yfir græjur ársins 2016 og þar of- arlega á lista er vínylplötuspilarinn Rega Planar 3, en í um- sögn um plötuspilarann segir að allir alvöru tónlistarunnendur hlusti á tónlistina sína af vínylplötum. Og þessi nýjasta uppfærsla Rega af verðlaunaplötu- spilara sé óviðjafnanleg. Aðrar græjur sem komust á listann eru stafræn Playstation- heyrnartól, Up mini þrívídd- arprentari, Bose QC35- heyrnartól og uppfærð út- gáfa af Amazon-kyndlinum. Plötuspilari græja ársins Rega Planar er gæðatól og afar falleg hönnun. 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016 Easy2Clean Mött veggmálning sem létt er að þrífa Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Kvikmyndir Rachel Weisz leikur hina sögufrægu persónu dr. James Miranda Stuart Barry, sem naut mikillar velgengni sem læknir í breska hern- um á fyrri hluta 19. aldar. Eftir útskrift úr Há- skólanum í Edinborg starfaði Barry meðal annars á Indlandi og í Suður-Afríku. Þegar Barry lést kom í ljós að líkamlega var hann skapaður sem kona og hafði áður heitið Margaret Ann Bulkley. Ekki er vitað hvort Barry hafi verið í dulargervi karlmanns til að hljóta frama og komast í háskóla sem konur fengu ekki inngöngu í eða hafi haft aðra kynvitund. Myndin byggir á bók Rachel Holme, The Secret Life of Dr. James Miranda Barry. Leikur 19. aldar lækni Rachel Weisz. Allir hlustuðu á Bowie 11. janúar. Met 11. janúar T́ónlist Hin geysivinsæla mynd- bandsþjónusta Vimeo hefur skýrt frá hvaða tónlistarmyndbönd not- endur þess horfðu oftast á árið 2016. Lögin í efstu fimm sætunum fengu hvert og eitt áhorf sem slagaði í tvo milljarða. Vinsælasta myndbandið var við lag Justin Bieber, Sorry, en Bieber kom alls þremur lögum á listann. Í öðru sæti yfir vinsælustu myndbönduð var Hello með Adele, Fifth Harmony í því þriðja með Work from Home. Þess má þá geta að David Bowie setti met daginn sem hann lést, 11. janúar síðastliðinn, en á einum degi voru myndbönd hans frá ýmsum tímum spiluð yfir 50 milljón sinnum og hefur einstakur listamaður ekki náð slíkri spilun á einum degi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.