Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 20.10.2016, Síða 14

Fréttatíminn - 20.10.2016, Síða 14
Þegar þingið hlustar ekki á þjóðina Heimasíður flokkanna fyrir komandi kosningar eru mis- jafnlega orðmargar og skýrar þegar kemur að afstöðu til stjórnarskrárbreytinga og tillagna Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga sem þjóðin tók afstöðu til í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012. Flokkarnir eru samt mis heitir fyrir því að ný stjórnarskrá verði sett eftir hugmyndunum frá 2011. Alþýðufylkingin og Húmanistaflokkurinn hafa talað um að virða beri úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar en telja tillögurnar frá 2011 ganga of skammt í lýðræðisátt. 14 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 20. október 2016 Afstaða flokkanna Vilja lögfestingu Stjórnarskrár frá 2011: Píratar Flokkur fólksins Vilja virða þjóðaratkvæða- greiðslu en telja nýja stjórnar- skrá ganga of skammt: Húmanistaflokkurinn Alþýðufylkingin Vilja nýja stjórnarskrá byggða á tillögum Stjórnlagaráðs: Vinstri græn Björt framtíð Dögun Samfylkingin Vilja endurskoðun samkvæmt vinnu stjórnarskrárnefndar Alþingis: Framsóknarflokkur Vilja fara varlega í heildarendurskoðun: Viðreisn Sjálfstæðisflokkur Íslenska þjóðfylkingin Nineteen Seventy-Six Konfúsíusarstofnunin Norðurljós kynnir fyrirlestur Ragnars Baldurssonar við Háskóla Íslands í Háskólatorgi 104, á morgun fimmtudaginn 20. október, kl. 12:00-13:10. Ragnar Baldursson kynnir bók sína Nineteen Seventy-Six og fjallar um endur- reisn kínverska heimsveldisins í kjölfar eld-dreka ársins 1976, eftir mikil umskipti í Kína. Ragnar er einn helsti sérfræðingur Vesturlanda í málefnum Kína og hefur þýtt á íslensku úr kínversku tvö af helstu öndvegisritum kínverskrar heimspeki. Nánar um erindið á konfusius.is Fimm punktar um nýja stjórnarskrá arskrá yrði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðarat- kvæðagreiðslu. 66 prósent vildu að í nýrri stjórnarskrá yrði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt. Og 57 prósent vildu að í nýrri stjórnarskrá yrði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? Þetta síðasta var eina ákvæðið sem ekki var í tillögum Stjórnlaga- ráðs. Þar var lagður til aðskilnaður ríkis og kirkju. Vilji meirihlutans í hinum álitamálunum fór saman við tillögur Stjórnlagaráðs. Enda sam- þykkti meirihlutinn, 67 prósent gildra atkvæða, að tillögur Stjórn- lagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Niðurstaðan var sem sé skýr. Málið var lagt fyrir þjóðina og hún kom með niðurstöðu. Málið þæft og kæft Stjórnmálaflokkunum og alþingis- mönnum mistókst hins vegar að fara eftir þessum tilmælum þjóðarinnar. Sumir gerðu það viljandi, voru á móti málinu þótt niðurstaðan úr atkvæðagreiðsl- unni væri skýr. Það á bæði við um forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á síðasta kjör- tímabili og því sem nú er að líða. Mikil átök voru innan Samfylk- ingar í lok síðasta kjörtímabils. Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri vildu leggja fram frumvarp byggt á drögum Stjórnlagaráðs en aðrir þingmenn, undir forystu Árna Páls Árnasonar, vildu gera samkomulag við þá þingmenn, sem vildi ekki fara eftir niðurstöð- um þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Með öðrum orðum að búa til mála- miðlun milli skýrs vilja þjóðarinn- ar og þeirra stjórnmálamanna sem vildu ekki hlíta niðurstöðu þjóðar- atkvæðagreiðslunnar. Slíkt samkomulag fór í gegn fyr- ir þinglok 2013. Það átti að verða forsenda áframhaldandi vinnu á síðasta kjörtímabili. Hún leiddi til tillagna stjórnlaganefndar þings- ins, sem bauð upp á takmarkaðar og útvatnaðar breytingar miðað við niðurstöðu þjóðaratkvæðisins og tillögur Stjórnlagaráðs. Þegar þær birtust síðan á þinginu í formi þingmannafrum- Framtíðin Sjálfbærnihugsunin er fyrirferðarmikil í nýrri stjórnarskrá en kemur ekki fyrir í þeirri gömlu. Samkvæmt þeirri nýju höfum við sem búum hér í dag ekki leyfi til þess að ganga um landið og gert það sem okkur sýnist. Tekið er fram að nýt- ingu náttúrugæða skuli haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur. Komandi kynslóðir fá ekkert pláss í gömlu stjórnarskránni en í þeirri nýju er talað um rétt komandi kynslóða og tekið er á réttindum barna með mun meira afgerandi hætti. Heilbrigðiskerfið Allir eiga rétt á að njóta andlegrar og líkamlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er, segir í nýrri stjórnarskrá og er sú setning tekin beint upp úr alþjóð- legum sáttmála sem Ísland hefur þegar undirgengist. Auk þess segir að öllum verði að vera tryggður með lögum réttur til aðgengilegrar, viðeigandi og fullnægjandi heilbrigðisþjónustu. Viðeigandi gæti hér átt við allt frá vinnutíma starfsfólks sjúkrahúsanna og til þess hvort sjúklingar þurfi að sofa á göngum, en þetta yrði útfært nánar í almennum lögum. Í gömlu stjórnarskránni segir að öllum þeim, sem þess þurfi, skuli tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. Setn- ingin „þeim sem þess þurfi“ gefur svigrúm til túlkunar sem ekki er til staðar í þeirri nýju. Kosningakerfið Í nýrri stjórnarskrá er gerð tilraun til að færa valdið í auknum mæli til fólksins. Þar er til að mynda opnað á persón- ukjör og að hægt verði að greiða at- kvæði þvert á flokka. Þar er líka tryggt að öll atkvæði vegi jafnt. Það má líka sjá tillögur um að setja á stjórnar- skrárvarin réttindi fólks til að taka þátt í eigin ákvörðunum. Ein tillagan snýr að því að 10% kjósenda geti krafist þess að umdeild löggjöf verði send í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins geta 10% lagt fram frumvarp á Alþingi sem Alþingi getur þá annaðhvort samþykkt eða komið fram með gagntillögu og þá er valið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem kunnugt er samþykkti meirihluti þeirra sem skiluðu gildum atkvæðum í þjóðarat- kvæðagreiðslunni fimm af sex spurningum sem lagðar voru fyrir kjósendur. 83 prósent vildu að í nýrri stjórnarskrá yrðu náttúru- auðlindir, sem ekki eru í einka- eigu, lýstar þjóðareign. 78 prósent vildu að í nýrri stjórnarskrá yrði persónukjör í kosningum til Alþing- is heimilað í meira mæli en nú er. 73 prósent vildu að í nýrri stjórn- Ómar Ragnarsson tjáir sig í Stjórnlagaráði. Formenn ráðsins, Ari Teitsson vara- formaður og Salvör Nordal formaður, hlýða á. Í dag eru fjögur síðan þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrá fór fram. Þar samþykkti meirihlutinn, tveir þriðju hlutar gildra atkvæða, að tillögur Stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Á þessum fjórum árum hefur stjórnvöldum og Alþingi mistekist, viljandi eða óviljandi, að fara að þessum skýra vilja þjóðarinnar. Þessi staða er einstök í hinum vestræna heimi. Það er fordæmalaust að ríkisstjórn og þing hunsi vilja þjóðarinnar eins og hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðslu. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.