Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 20.10.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 20.10.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 20. október 2016 Fráleitir dómar um frábæra leiksýningu F á leikskáld hafa notið meiri hylli en Arth- ur Miller hér á landi. Fyrir því eru eflaust ýmsar ástæður. Fyrstu – og að flestra dómi – bestu leikrit hans, leikritin sem hann samdi á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar, fengu strax feikigóðar við- tökur og hafa síðan verið fastagestir í leikhúsum um veröld víða, einnig hér á Íslandi. Miller kom í öllum meginatriðum fram sem raunsæishöfundur, sagði spennandi og áhugaverðar sögur með vel teiknuð- um og sterkum mannlýsingum; það hlaut að fara vel í íslenska áhorfendur sem voru enn lítt vanir ýmiss konar framúrstefnu og formtilraunum sem þá voru móðins í evrópsku samtímaleikhúsi. Mestu skipti þó að Miller var skáld sem átti erindi, að sögur hans fjölluðu um eitthvað sammannlegt, siðferðileg og tilvistarleg álita- og átakamál sem flestir hugsandi menn gátu – og geta enn – tengt sig við. Þegar Miller bar hér fyrst að garði stóð vel á í ís- lensku leikhúsi. Fram var að koma dágóður leikenda- hópur sem undir viðeigandi leikstjórn hafði burði til að blása lífi í harmsögur hans – því að flest eru leikrit Millers með einhverjum hætti tragísk verk, eða stefna á að vera það. Og viti menn: nokkrir af bestu leikurum áranna nýttu listræn tækifæri þeirra svo vel að lengi var í minnum haft. Ég gæti hér nefnt ýmis nöfn, en læt eitt duga: Róberts Arnfinnssonar. Róbert vann frægan sigur árið 1957 í burðarhlutverk- inu í Horft af brúnni (sem Sigurður Pálsson hefur af Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi skrifar um sýningu Þjóðleikhússins, Horft af brúnni, og gagnrýnir gagnrýni um sýninguna. mér óskiljanlegum ástæðum kosið að nefna Horft frá brúnni í annars vandaðri og lipurri nýþýðingu sinni). Sú sýning hlaut miklar vinsældir; um átján þúsund manns sáu hana bæði á sviði Þjóðleikhússins og í leikför þess um landið (þetta var á meðan leik- húsið sinnti enn landsbyggðinni). Löngu síðar sagði Róbert í viðtali að hann vildi frekar leika Miller en Shakespeare; ég veit ekki hvort margir kollegar hans voru sama sinnis, en þetta var hans skoðun sem hann hafði vitaskuld fullan rétt á að hafa. Tákn og tæknikúnstir? Nú hefur Þjóðleikhúsið enn á ný tekið Horft af brúnni til meðferðar – og ég finn mig knúinn til að drepa niður penna í tilefni þess. Ástæðan er fyrst og fremst sú að um sýninguna hafa birst harla undarlegir dómar í tveimur af öflugustu fjölmiðlum landsins, Fréttablaðinu og Ríkissjónvarpinu (báðir eru auðfundnir á Netinu, á visir.is og ruv.is). Dóm- ar þessir eru báðir svo yfirborðslegir og – að mínu viti – rangir að ég fæ ekki orða bundist. Leikdómari Fréttablaðsins, Sigríður Jónsdóttir, er þannig ósátt við frammistöðu nær allra leikenda; þar er ég henni upp undir hundrað prósent ósammála. Ég nefni sem lítið dæmi ummæli hennar um framsögn annarrar leikkonunnar (þetta er mikið karlaverk) sem var í mjög góðu lagi í bæði skiptin sem ég sá sýninguna. Þá talar Sigríður um að persónurnar verði „tákn“ fremur en fólk af holdi og blóði; „tákn“ fyrir hvað, spyr ég, en er litlu nær af lestri greinarinnar. Annars er ljóst að hún lítur á sviðsetningu Stefans Metz sem estetíska stíltilraun án tengsla við verk Millers; þar fer hún, að mínum dómi, enn villur vegar og gæti ég skrifað um það langt mál sem rýmið leyfir mér ekki hér. „Melódrama“ i Kastljósi Í Kastljósi bunaði Hlín Agnarsdóttir venju sam- kvæmt ræðu sinni upp úr sér á slíkum methraða að maður varð nánast móður af því einu að leggja við hlustir. Ég hef þó lagt á mig að hlýða á þetta sam- tal, eða öllu heldur eintal, tvisvar sinnum og þykir næsta augljóst að hún víkur sér markvisst undan því að leggja nokkurt mat á túlkun leikenda. Þess í stað lætur hún móðan mása um sviðsetningu og ytri stíl- brögð; það er bersýnilega hið eina sem vakið hefur áhuga hennar og hún getur borið lof á. Slík vinnu- brögð skil ég ekki. Ég skil ekki heldur hvað hún er að fara þegar hún segir að þetta leikrit sé „melódrama“. Hefði hún verið að tala um Í deiglunni sama höf- undar (sem var sýnt hér fyrir fáeinum árum undir heitinu Eldraunin) hefði ég getað tekið undir með henni; Horft af brúnni fer hins vegar í mínum aug- um eins nærri því að vera klassískur harmleikur og hægt er að ætlast til af nútímaverki. Farið og sjáið sjálf! En gott og vel; erindi mitt með þessum greinarstubb er í rauninni aðeins eitt: í öllum bænum, þið sem hann sjáið og unnið leiklistinni, látið ekki aðra eins „dóma“ og þessa tvo fæla ykkur frá sýningunni! Hún er í fáum orðum sagt einstakur listviðburður og sigur, ekki aðeins leikstjórans og hans hjástoðar- fólks, heldur ekki síður og umfram allt leikendanna. Túlkun Hilmis Snæs á Eddie Carbone er þaulunnin og útpæld, innlifuð og áhrifamikil, og aðrir leik- endur fylgja fast á hæla honum; allir skila sínu með prýði í jöfnum og þéttum samleik sem á, ef vel er að verki staðið, að geta orðið enn betri, því lengur sem sýningin fær að lifa. Ég er alls ekki að segja að ekki megi finna að einu og öðru, ekki setja spurningar- merki hér og þar, en þegar svona vel tekst til, er það ekki höfuðatriði, alltént ekki í örstuttri blaðagrein. Maður óskar Þjóðleikhúsinu einfaldlega til hamingju og fagnar því að nokkrir af bestu leikurum okkar (og nokkrir af þeim efnilegri) fái tækifæri til að sýna hvers þeir eru megnugir, þegar þeir fá góða leik- stjórn í góðum leikskáldskap. Jón Viðar Jónsson skrifar um leikhús „Látið ekki aðra eins „dóma“ og þessa tvo fæla ykkur frá sýningunni! Hún er í fáum orðum sagt einstakur listvið- burður og sigur, ekki aðeins leikstjórans og hans hjástoðar- fólks, heldur ekki síður og umfram allt leikendanna.“ Túlkun Hilmis Snæs á Eddie Carbone er þaulunnin og útpæld, innlifuð og áhrifamikil, segir Jón Viðar í grein sinni. Myndir | Hörður Sveinsson & Þann 28. október Heilsa lífsstíll gt@frettatiminn.is 531 3319 frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.