Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is KALT ÚTI Ryco-1509 Olíufylltur 2000W rafmagnsofn m/termo stillingum og yfirhitavörn 9 þilja 8.990 Ryco-2006T Rafmagns- þilofn Turbo með yfirhita- vari 3 stillingar 2000w 4.990 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1 fasa 6.890 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.990 Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ INDUSTRIAL GRADE Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 8.890 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 12.830 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Nokkurt úrval er af gagnvirkum leikföngum ætluðum börnum sem tengjast netinu á einhvern hátt og ný norsk úttekt sýnir að tvær gerðir þessara leikfanga uppfylla ekki kröfur um öryggi og persónuvernd. Forstjóri Neyt- endastofu segir að með tilkomu gagnvirkra leikfanga sé fyllsta ástæða til að endurskoða þann stað- al sem lagður er á leikföng. Norska neytendastofnunin (Forbrukerrådet) skoðaði nýlega notendaskilmála og tæknilega eig- inleika tveggja gagnvirkra leikfanga sem eru dúkkan My Friend Cayla og vélmennið i-Que. Niðurstaðan var að þau uppfylltu ekki evrópskar kröfur um neytendavernd, öryggi og persónuvernd. Samkvæmt upplýsingum frá leikfangaverslunarkeðjunni Toys R’Us hafa þessi leik- föng ekki verið seld í versl- unum keðjunnar hér á landi. Þessi tvö tilteknu leik- föng, líkt og mörg önnur gagnvirk leikföng, eru hönnuð þannig að börn geta átt við þau samskipti með innbyggðum hljóðnemum og radd- greiningartækni. Barnið gæti þannig gefið upp ýmsar við- kvæmar upplýsingar. Í tilviki þessara tveggja leikfanga eru allar upplýsingar sem þau nema fluttar til bandarísks fyrirtækis sem áskilur sér rétt til að deila þeim með þriðja aðila. Persónuvernd greinir frá niðurstöðum norsku at- hugunarinnar á vefsíðu sinni undir fyrirsögninni „Leikföng sem tengjast netinu brjóta á réttindum barna.“ Meðal þess sem athugunin leiddi í ljós var að utanaðkomandi aðilar geta auðveldlega náð stjórn á leikföngunum með því að nota snjallsíma og þannig hlusta á og eiga samskipti við börnin sem leika sér með þau. Þá sýndi athugunin að markaðssetningar- efni er forritað í leikföngin þannig að þau auglýsa ýmsar vörur. Ný tækni – nýjar áskoranir Neytendastofa fer með markaðseftirlit með leik- föngum hér á landi og Tryggvi Axelsson, forstjóri hennar, segir að hann hafi sent fyrirspurn um málið til norsku neytendastofnunarinnar. Þau svör hafi bor- ist að beðið hafi verið um yfirlýsingu frá framleið- anda og innflytjanda leikfanganna í Nor- egi um að leikföngin uppfylli evrópska leikfangastaðla. Að sögn Tryggva er fyrirhugað á næstunni að Neytendastofa skoði virkni gagnvirkra leikfanga í sam- starfi við Persónuvernd. „Leikfangastaðallinn tekur fyrst og fremst til öryggis vöru, t.d. að hlutar leik- fanga losni ekki af o.s.frv.,“ segir Tryggvi. „En nú er tæknin komin á það stig að það gæti þurft að endurskoða þennan staðal. Hann nær ekki til misnotkunar á upplýsingum eins og norska athugunin sýn- ir. En með nýrri tækni koma nýjar áskoranir.“ Gagnvirk leikföng eru sögð geta verið varasöm Tryggvi Axelsson  Leikföngin deila upplýsingum um börn og auglýsa vöru Á síðasta fundi Þingvallanefndar var tekið neikvætt í hugmynd um byggingu stórs veitingahúss við Gjábakka á Þingvöllum. Á fund- inum var lagt fram erindi frá Herði Rögnvaldssyni, Sigurði Garðars- syni og Þorgeiri Jónssyni þar sem þeir óskuðu eftir lóð og aðstöðu í landi Þingvallaþjóðgarðs til rekst- urs veitingahúss við Gjábakka. Í fundargerð kemur fram að hug- mynd þeirra hafi verið að byggja veglegt veitingahús fyrir allt að 1200 manns, ásamt bílastæðum og salernisaðstöðu. Ríkið myndi eign- ast húsið á umsömdum tíma en þre- menningarnir hefðu afnotarétt af eigninni í ákveðinn tíma. Þingvallanefnd taldi hugmynd- irnar áhugaverðar en að þær féllu ekki að gildandi stefnumótun þjóð- garðsins. aij@mbl.is Vilja reisa stóran veitingastað við Gjábakka Það var gaman á snjóþotunni hjá þessum ungu piltum í Hljómskálagarðinum í gær. Í dag, Þorláksmessu, verða veðrabrigði þegar djúp lægð fer til norðurs fyrir aust- an land. Varar Veðurstofan við stormi og stórhríð aust- anlands, fyrst á Austurlandi og síðan á Norðurlandi. Spáð er norðaustan- og síðar norðanátt, allt að 23 m/s um landið austanvert. Sunnan undir Vatnajökli, frá Lómagnúpi og austur á Berufjörð, verða hviður 35-45 m/s frá hádegi og fram á kvöld. Veður mun síðan ganga niður í fyrramálið og verða nokkuð skaplegt fram á aðfangadagskvöld. Norðan til á landinu verður snjókoma eða él en lægir smám saman og dregur úr úr- komu. Á jóladag verður hvöss norðanátt, úrkomulítið sunnanlands, annars snjókoma en rigning eða slydda við austurströndina. Á mánudag, annan í jólum, verður suðlæg átt og víða él, snjókoma fram eftir degi norð- austanlands. Slydda eða snjókoma verða á Suður- og Vesturlandi að kvöldi mánudags. Kærkominn snjór á aðventunni kætir ungu kynslóðina Morgunblaðið/Eggert Stormviðvörun í dag en stefnir í skaplegt veður yfir hátíðirnar Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Kjóll kom inn á borð yfirskatta- nefndar nýverið vegna deilna toll- stjóra og kjólaeigandans um aðflutn- ingsgjöld af kjólnum. Kjóla- eigandinn keypti kjól í versluninni Allsaints í Seattle í Bandaríkjunum á ferðalagi þar í landi í fyrra. Kjóll- inn var ekki til í réttri stærð í versl- uninni og því bauðst afgreiðslumað- urinn til að láta senda kjól í réttri stærð á hótelið næsta dag. Vegna mistaka verslunarinnar barst kjóll- inn ekki á tilskildum tíma og kaup- andinn floginn heim til Íslands. Kjóllinn kom á hótelið daginn eftir og bauðst starfsmaður þar til að senda hann til Íslands. Þegar kjóllinn kom til landsins var eigandanum gert að greiða um 25.000 kr. í aðflutningsgjöld til þess að geta leyst kjólinn úr tolli. Aðflutn- ingsgjöldin voru svo felld niður á þeim grundvelli að um viðskila far- angur væri að ræða. Þremur dögum síðar var kjóleigandinn, sem var þá búinn að fara í veislu í kjólnum, kraf- inn um aðflutningsgjöld af tollstjóra með afturvirkum hætti þrátt fyrir að vera búinn að leysa kjólinn úr tolli án gjalda. Kjóleigandinn gat ekki skilað kjólnum og fór fram á að ákvörðun tollstjóra yrði endurskoðuð. Toll- stjóri neitaði því og fór fram á að álagning aðflutningsgjalda vegna kjólsins stæði því kjóllinn gæti ekki fallið undir ákvæði um tollfrjálsan farangur sem hefði orðið viðskila við eigandann því kjóleigandinn hefði aldrei haft kjólinn í sinni vörslu. Yfirskattanefnd úrskurðaði kjól- eigandanum í vil, m.a vegna þess að tollstjóri gaf honum hvorki kost á að tjá sig um málið áður en til afturköll- unar kom né tilkynnti með form- legum hætti um hina umdeildu ákvörðun tollstjóra. „Samkvæmt framansögðu verður að telja að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð tollstjóra í máli þessu. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun tollstjóra um endurálagningu aðflutningsgjalda úr gildi,“ segir í úrskurðaorðum yfir- skattanefndar. Kjóladeila hjá yfirskattanefnd  Krafinn um afturvirk gjöld eftir að þau höfðu verið felld úr gildi AFP Kjóll Ekki kemur fram í úrskurð- inum hvernig kjól deilan snerist um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.