Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er þægilegt að vinna hérna við stofuborðið,“ segir myndlistarkonan Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá og dregur fram röð blýantsteikninga sem hún vinnur nú að. Þær byggjast allar á ljóðum úr einni bóka eigin- manns hennar, Jóns Óskars heitins, bókinni Skrifað í vindinn. „Mig lang- aði að ná orðinu úr blýantinum; ég margskrifa orðin, eitt ljóð er í hverri mynd, og áherslan á hvert orð og línu er mismunandi, allt eftir eðli ljóðs- ins,“ segir hún og bætir við að hún hyggist raða verkunum upp í stóra ser- íu. Það er hugur í Kristínu þótt hún hafi ákveð- ið að segja upp vinnustofunni sem hún hefur haft í Hafnarstræti, sökum þess hve há leigan er orðin. Nú ætlar hún að vinna heima og læt- ur sig dreyma um „stór raðverk“ og er með í huganum annað sem hún er að móta í vinnubók og kallar Ísland í orðum. „Það verður allt út frá örnefn- um,“ en örnefnin hafa lengi staðið huga Kristínar nærri og hefur hún unnið athyglisverð verk út frá þeim sjóði, auk þess að hafa verið að að- stoða með örnefnaskráningu í um- hverfi æskuheimilisins, sögustað- arins Munkaþverár í Eyjafirði. Sagan og örnefnin Á dögunum kom út falleg bók um feril og verk Kristínar og ber nafn hennar. Kristín G. Guðnadóttir skrif- ar um feril nöfnu sinnar, Steinunn G. Helgadóttir ræðir við listakonuna og hönnuðurinn Hildigunnur Gunnars- dóttir býr verkum og texta verðugan búning. Kristín segist hálfhissa að verkið sé komið út, stutt sé síðan hug- myndin að gera slíka yfirlitsbók hafi kviknað, í júní 2015, en síðan fékk verkefnið góðan styrk frá Myndlist- arsjóði sem gerði útgáfuna mögulega. Kristín er fædd árið 1933 og er því nú 83 ára. Sextán ára gömul ákvað hún að hætta í Menntaskólanum á Akureyri og leggja fyrir sig myndlist. Hún hélt til Reykjavíkur, skráði sig til að byrja með í námskeið í Hand- íða- og myndlistarskólanum og síðan í fullt nám. Nítján ára útskrifaðist hún sem teiknikennari, og tveimur árum síðar tók við nám við Listiðnaðar- skólann í Kaupmannahöfn, á blóma- tíma módernismans í danskri hönn- un. Eftir heimkomuna þremur árum seinna var Kristínu boðin kenn- arastaða við Myndlista- og handíða- skólann og kenndi hún næstu árin en námsferli hennar sjálfrar var ekki lokið því árið 1959 hélt Kristín til Par- ísar um tíma og fór þar að mála auk þess að nema mósaíkgerð. Eftir 1964 fór Kristín að vefa auk þess að hún kenndi til 1975, er hún ákvað að helga sig listsköpun og við tók tímabil tilrauna með ýmis efni. Fyrstu einkasýninguna hélt Kristín á Akureyri árið 1981 og hefur hún sýnt reglulega síðan, haldið rúmlega tutt- ugu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Bókin nýja gefur gott yfirlit yfir ferilinn. Kristín G. Guðnadóttir skrifar að meginþættir í listsköpun listakonunnar séu menn- ingin, sagan og náttúra landsins. „Ég hugsa að það sé rétt,“ segir Kristín og bætir við að það hafi þó birst með ýmsum hætti í verkunum. „Þegar ég var að mála með olíulitum og vatnslitum var ég undir áhrifum frá geómetríunni, svo fór ég að vefa og jú, sagan kemur inn, hér er,“ segir hún og bendir á rautt vefnaðarverk í bókinni, „verk sem heitir Njála en hét fyrst Rauður loginn brann, með vísun í Njálsbrennu.“ Hún bendir síðan á myndir af bókum úr þæfðri ull, sem hún gerði á níunda áratugnum, og segir að í þeim birtist áhrif frá Munkaþverá, beinlínis frá gömlum hlöðnum veggjum á bænum, bók- unum þar og tóftabrotum. „Svo eru líka í þeim áhrif frá Jóni Óskari. Í kjölfarið fór ég svo að vinna út frá ör- nefnunum.“ Ung áhugasöm um teikningu Þegar Kristín var ung stúlka heima á Munkaþverá komst hún að því að til væri myndlistarkona al- nafna hennar. Þegar listferill hennar sjálfrar hófst valdi hún því að kenna sig við æskuheimilið og hefur gert það síðan. Munkaþverá er landsþekktur sögustaður; þar bjuggu þekktar per- sónur Íslendingasagna, Víga-Glúmur og Einar Þveræingur og þá var Munkaþverárklaustur stofnað þar árið 1155. Kristín segist frá barn- æsku hafa verið meðvituð um þá sögu alla. „Þegar ég var sex ára var grafið fyrir grenitré sem átti að planta heima og þá kom upp heilmikið af krítarpípum,“ segir hún. „Þær voru líklega frá klaustrinu. Mér er minn- isstætt að tveir vinnumenn unnu að þessu og þeir stungu pípunum bara í vasana. Ég þorði ekki að segja frá því en mér þóttu pípurnar merkilegar! Þarna eru heilmiklar fornminjar og undanfarin tvö sumur hefur komið þar hópur fornleifafræðinga, undir stjórn Steinunnar Kristjánsdóttur, sem er að rannsaka klausturstaðina. Þegar þau fóru að grafa við hól sunn- an við íbúðarhúsið sem var leiksvæði okkar krakkanna, þá fannst heilmikið af beinum og kistuleifum sem eru mögulega frá 11. og 12. öld. Það vissi enginn að þar væri grafreitur. En Steinunn er með þá kenningu að þarna hafi verið tvær kirkjur, klaust- urkirkja þar sem kirkjan stendur nú og hitt hafi verið bændakirkja.“ Kristín fékk sex ára gömul að ganga í farskóla sem var á næsta bæ, Rifkelsstöðum. Skólaskylda var mið- uð við tíu ára aldur en hún var orðin læs og fékk að fylgja Einari eldri bróður sínum í skólann þar sem hún var langyngst í ellefu nemenda hópi. Kennarinn var sérkennilegur maður en nokkuð þekktur fyrir norðan, Sig- urður Jónsson frá Brún í Svartárdal. Þá strax var Kristín orðin áhugasöm um teikningu. Lína á milli punkta og litað „Sigurður var ekki mikið fyrir að kenna teikningu og spurði hvort hann ætti ekki frekar að kenna landafræði! Teiknikennslan var heldur ekki merkileg, byggð á sænskum bókum þar sem dregin var lína á milli punkta og síðan litað. En ég var svo lítil að ég teiknaði bara í kringum þetta og þótti furðulegt. En mér fannst það gaman. En fyrsta daginn í skólanum þótti mér mjög merkilegt þegar Sigurður hengdi stórt landakort á töfluna. Núna, eftir að hafa unnið mikið með landakort, örnefnin, árnar og vötnin, finnst mér að sennilega geti ég rakið það allt til þess þegar ég byrjaði í skóla og sá þetta stóra landakort.“ Kristín tekur svo fram bunka af vinnubókum sem eru þéttskrifaðar og sjá má hverngi hún mótar verk sín vandlega áður en hún framkvæmir þau. „Það er heilmikil rannsókn- arvinna í þessum verkum mínum enda er hugmyndavinnan mér mik- ilvæg. Í texta- og örnefnaverkunum er eflaust tenging við barnæskuna fyrir norðan, við söguna og gamla fólkið sem ég ólst upp með og sagði okkur sögur og fór með kvæði. Það þótti mér strax heillandi.“ Eflaust tengingar við barnæskuna  Ný bók um feril Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá Morgunblaðið/Einar Falur Myndlistarkonan Kristín Jónsdóttir vinnur við stofuborðið að nýjum blý- antsteikningum út frá ljóðum eftir eiginmann hennar, Jón Óskar heitinn. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ófelía hefur verið á teikniborðinu í mörg ár en aldrei verið rétti tíminn fyrr en núna,“ segir Kristjana Stef- ánsdóttir um hljómdiskinn Ófelíu sem hún sendi nýverið frá sér undir listamannsnafninu Bambaló. „Mér fannst nauðsynlegt að aðgreina mig frá djasssöngkonunni Kristjönu Stef- ánsdóttur þar sem ég væri að búa til poppplötu, auk þess sem Bambaló veitti mér hugrekki til að stíga fram sem lagahöf- undur að heilli plötu,“ segir Kristjana og rifjar upp að Bambaló sé gælu- nafn sem faðir hennar hafi fundið upp á þegar hún var lítil. Ófelía inniheldur tíu frumsamin lög auk lagsins „So Wrong“ eftir Jackie Allen og Bill Anschell. Kristjana samdi alla ensku texta plötunnar en Bergur Þór Ingólfsson þá íslensku. Auk þess að syngja leikur Kristjana á ýmis hljómborð, Daníel Helgason spilar á gítar, Kristinn Snær Agnars- son og Bassi Ólafsson sjá um áslátt- arhljóðfæri og lúppur og Daði Birgis- son sér um bassaleik, lúppur og hljóðgervla ásamt því að sjá um upp- tökur, en Dimma gefur hljómdiskinn út. Heillaðist af Ófelíu „Ég hef haft mjög mikið að gera síðustu árin, ekki síst í leikhúsinu,“ segir Kristjana, sem setti diskinn tímabundið til hliðar þeg- ar henni bauðst að vinna sýninguna Hamlet litla með Bergi Þór sem frum- sýnd var í Borgarleikhús- inu 2014 og aftur þegar þau unnu saman Sókrates 2015 og Bláa hnöttinn í ár. „Á þessum tíma var ég byrjuð að semja og fyrir vikið enduðu þrjú lag- anna í Hamlet litla og lagið „Faðm- lag“ í sýningunni Sókratesi. Eftir á að hyggja held ég að þessi langi með- göngutími hafi verið til góðs og skilað betri plötu,“ segir Kristjana og tekur fram að Ófelía sé mjög persónuleg plata. „Þegar við Bergur Þór unnum Sorg breytt í gleði með tónlist  Kristjana Stefánsdóttir sendir frá sér plötuna Ófelíu sem Bambaló

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.