Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
Sólstafir Náttúran á það til að leika með ljós og skugga á þann hátt að við mannfólkið tökum andköf. RAX fangaði þetta augnablik á ferð sinni um Landeyjar í gær og sést til Vestmannaeyja.
RAX
Það er sagt að orð séu til þess
að leyna hugsun; að orð þýði
eitthvað allt annað, stundum
þveröfugt við það sem þau lýsa.
Þá er að minnsta kosti hægt að
fyrirgefa skáldinu sem færir
orðin á blað; nú eða mælir þau í
ræðu.
Þannig er einnig með peninga.
Hjá sumum hafa peningar alltaf
verið til og munu alltaf verða til
en það er aldrei rætt um pen-
inga hjá slíkum snillingum. Þar
er hugsuninni ekki leynt með því að tala um
peningana. Þar eru peningarnir látnir tala
án þess að nokkur viti hver lætur þá tala.
Eiginleikar peninga
Þá vitum við ýmislegt um peninga! Og þó
ekki! Það er ráðgáta hvað eru peningar. Pen-
ingar eru það sem er almennt viðurkennt til
lúkningar skulda. Þannig er íslensk króna
lögeyrir á Íslandi og almennt viðurkennd til
lúkningar skuldar nema á annan veg sé mælt
fyrir í samningi. Þá er mælt fyrir að greitt
skuli í lögeyri annarra ríkja.
Helstu eiginleikar peninga eru að þeir
verða að vera:
- hreyfanlegir
- deilanlegir
- skiptanlegir
- varanlegir
· Helstu kröfur um notagildi peninga eru
að peningar eru til greiðslu eða geymslu.
Það er stórt spurt hvort íslensk króna
uppfyllir allar þessar kröfur. Vissulega er
krónan hreyfanleg, með þeim hætti að gjald-
miðillinn er til í seðlum og mynt. Lögeyrir-
inn er einnig hreyfanlegur með þeim hætti
að hægt er að inna af hendi rafrænar
greiðslur á milli bankareikninga án þess að
hafa alla vasa fulla af seðlum. En í útlöndum
er ekkert skjól fyrir krónu og enginn lítur
við henni nema til spákaupmennsku og
skaða.
Peningar og stjórnarskrá
Stofnendur Bandaríkjanna
gerðu sér grein fyrir því að pen-
ingar væru eitt af undir-
stöðuatriðum í rekstri ríkisins.
Þannig er það tiltekið í stjórn-
arskránni að þinginu sé heimilt
að setja reglur um myntsláttu,
og verðmæti myntarinnar gagn-
vart öðrum myntum, svo og að
setja reglur um mál og vog;
þannig orðað: „To coin Money,
regulate the Value thereof, and
of foreign Coin, and fix the
Standard of Weights and Measures.“
Það er í raun eðlilegt að þeir aðilar sem
viðskipti stunda hafi einn sameiginlegan
grundvöll og því hefur Bandaríkjaþing sett á
stofn Federal Reserve til þess að gegna hlut-
verki seðlabanka sem gefur út mynt.
Verðmæti þeirrar myntar í öðrum myntum
er ekki ákvarðað af Federal Reserve eins og
stofnendurnir ætluðust til. Það eru markaðs-
öfl sem ákvaða verðið, en það er kallað gengi
gagnvart annarri mynt.
Hér á landi er um margt líkt farið þótt ekki
sé fjallað um gjaldmiðil í stjórnarskránni eða
nokkurri tillögu að stjórnarskrárbreytingu
sem litið hefur dagsins ljós.
Þversögn í gjaldmiðli
Nú er komin upp sú þversögn að löggjaf-
arþingið hefur samþykkt að eining lögeyris
sé ekki nothæf til að mæla rekstur og verð-
mæti valinna fyrirtækja.
Alls er um að ræða 257 fyrirtæki með um
25% af öllum rekstri í landinu. Þau mæla sinn
rekstur í evrum, sem er fjöllandamynt, eða
Bandaríkjadölum, sem eru stjórnarskrár-
varðir í því ríki sem gefur þá út.
Þversögnin er sú að sá hópur fyrirtækja
sem telur síst að aðild að Evrópusambandinu
gagnist þeim hefur valið sér mynt sem byggð
er á eiginlegri stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins, Maastricht-sáttmálanum.
Nú hafa þau ósköp gerst að verðmæti
krónunnar í öðrum myntum hefur lækkað í
verði um 22% að meðaltali á síðustu tveim
árum. Á sama tíma hafa erlendar eignir
Seðlabankans aukist um meira en 85% í er-
lendum eignum talið. Þetta hefur gerst
vegna mikils innstreymis erlends gjaldeyris
vegna vöru- og þjónustuviðskipta. Að öðru
jöfnu eykst peningamagn þegar Seðlabank-
inn kaupir gjaldeyri og þá þarf að hækka
vexti til þess að draga úr eftirspurn eftir
peningum.
Og svo er kvartað yfir því að Seðlabankinn
hafi ekki gert nægjanlega í kaupum á gjald-
eyri, en það kallast inngrip á gjaldeyrismark-
aði.
Sulta í krukku
Reyndar var málum háttað á annan veg
áður. Þá var gjaldeyrir eins og sulta í
krukku. Sultan í formi gjaldeyris var í gerj-
unarástandi og löggjafinn gerði ráðstafanir
til að halda gerjuninni niðri með því að herða
á hvers kyns ráðstöfunum á gjaldeyrismark-
aði. Nú um áramót verður sultukrukkan opn-
uð.
Og svo segja sjómenn sem eiga allt sitt
undir gengi íslensks lögeyris að laun þeirra
hafi lækkað. Vissulega hafa laun lækkað í ís-
lenskum krónum vegna hlutaskipta á afla
sem er grundvöllur að launakerfi sjómanna.
Ferðaþjónusta og gengi
Ferðaþjónusta býr ekki við hluta-
skiptakerfi. Viðskiptavinum ferðaþjónustu
koma sveiflur í gengi einhverrar krónu ekk-
ert við. Í ferðaþjónustu eru tekjur að mestu í
erlendri mynt. Þannig er ferðaþjónustufyrir-
tækið Icelandair sennilega með um 15%
tekna sinna i íslenskum krónum en 30% af
gjöldum í þeirri mynt.
Á sama tíma hefur orðið almennt launa-
skrið í landinu. Því til viðbótar hefur löggjaf-
inn fært margt í nútímalegt horf með niður-
fellingu tolla og vörugjalda af flestum
vöruflokkum.
Vöruverð og jafnvirði
Ætla mætti að vöruverð hér á landi yrði þá
svipað og í öðrum löndum. Við einfalda at-
hugun virðast algengir hlaupaskór sem fram-
leiddir eru í Kína, landi sem Ísland hefur
gert fríverslunarsamning við, vera með um
80% álagi á Bandaríkjadal miðað við jafnvirði
í Bandaríkjunum, en þangað eru skórnir
einnig fluttir inn frá Kína. Og á sama veg;
myndavél með linsu kostar kr. 109.000 á Ís-
landi en USD 578 í Bandaríkjunum, en það
eru kr. 64.000. Þetta er myndvél, sem er
framleidd á vegum japansks fyrirtækis og án
tolla og vörugjalda á Íslandi.
Gengi og kúgun
Nú þegar jólin eru að nálgast, er þá ekki
rétt að hugsa „sentralt“ og spyrja sig: Er
krónan brúkleg til þess að halda uppi fram-
leiðslu og viðskipum með annað en kaffibolla
á veitingahúsum? Gengisfellingar eru kúg-
unaraðgerð. Vissulega eru fáar þjóðir sem
hafa þolað kúgun af meiri háttvísi og kurteisi
en Íslendingar í gengismálum. Í kúgun sem
beitt var í gengisfellingum sýndu Íslendingar
skilningsríka sáttfýsi, án þess að gera tilraun
til uppreisnar. Enn eru raddir sem telja að
það sé meginkostur krónunnar að það sé
hægt að fella gengið að hentugleikum.
Gengisfelling er færsla á fjármunum frá fólki
til fyrirtækja.
En ævinlega eru Íslendingar tilbúnir að
kyssa þann vöndinn sem sárast er beitt og
trúa því að hjá kaldrifjaðasta böðlinum væri
hjálpin sönnust og öruggt skjól að finna.
Og gleðileg jól.
Eftir Vilhjálm Bjarnason » Gengisfellingar eru kúg-
unaraðgerð. Vissulega eru
fáar þjóðir sem hafa þolað kúg-
un af meiri háttvísi og kurteisi
en Íslendingar í gengismálum.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur er alþingismaður.
Peningar og gengi