Morgunblaðið - 23.12.2016, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016
Happdrætti tímans
Gríma
Íslenzk tónverk fyrir Kammersveit
Reykjavíkur [öll frumhljóðrituð].
Diskur 1: Jón Nordal: Gríma (10:22;
2002). Karólína Eiríksdóttir: Brot
(9:19; 1979). Jónas Tómasson:
MMOSO (9:43; 2000 (tónleika-
upptaka)). Gunnar A. Kristinsson:
Arma virumque cano (12:51; 2004
(tónleikauppt.)). Páll Pampichler
Pálsson: Kristallar 2(000) (12:36;
2000). Diskur 2: Úlfar I. Haralds-
son: Luce di transizione (12:07;
1995). Þuríður Jónsdóttir: Crus
(6:47; 2006). Hugi Guðmundsson:
HEX* (15:36; 2007). Sveinn Lúðvík
Björnsson: Quasi concerto**
(17:29; 2007). Stjórnandi: Bern-
harður Wilkinson. Einleikarar: Stef-
án Jón Bernharðsson* horn, Una
Sveinbjarnardóttir** fiðla. Hljóð-
ritað í Salnum Kóp., Víðistaða-
kirkju, Listasafni Íslands og Stúdíó
Sýrlandi 2000, 2003, 2005, 2008
og 2013. Hljóðmeistari: Páll Sveinn
Guðmundsson. Tónmeistari: Bjarni
Rúnar Bjarnason. Smekkleysa
SMK91, 2016. Heildartími: 54:53 /
52:05.
Verkin á nýlega útkomnu
tveggja skífna albúmi KSR spanna
á stóru stikli íslenzka tónsköpun
síðustu ára-
tuga fyrir
kammer-
sveit.
Hversu
merkilegt
aldamóta-
skeiðið um
2000 verður
talið fyrir
íslenzka listmúsík á að vísu eftir
að koma í ljós. Varla þó neitt í lík-
ingu við „fin du siécle“ sunnar í
löndum 100 árum fyrr þegar frum-
módernisminn sleit barnsskónum,
enda hafði íslenzk tónlist þegar
um 1960 stokkið nánast milliliða-
laust úr rómantískum einsöngs- og
kórlögum yfir í alþjóðlega fram-
sækni í nánast öllum tóngreinum.
Viðhorf og aðstæður eru nú að
auki gjörbreytt. Markmiðið snýst
ekki lengur um að losna úr viðjum
sligandi hefðar heldur frekar að
veita frambærilegt andval við
markaðsvæddri lágkúru. Eða ætti
a.m.k. að gera það – eins og
reyndar loks er farið að votta fyr-
ir, eftir að hreinræktuð raðtækni
Seinni Vínarskólans rann sitt
skeið á 8.-9. áratug og naum-
hyggjumenn mínímalismans tóku
síðan að draga úr vélrænasta
hjakkinu með kærkomnum stíl-
brotum.
Sú stílfrelsun hefur einnig náð
þakkarverðri útbreiðslu hér
nyrðra, eins og heyra má innan
um í þessum verkum þótt í ein-
staklingsbundnum mæli sé. Og
kannski ekki seinna vænna, áður
en íslenzk tónsköpun færi að múra
sig endanlega inni í klaustursein-
angrun frá eyrum samfélagsins
líkt og gerzt hefur víða í ná-
grannalöndum. Að minnsta kosti
er varla hægt að kvarta undan
einhæfni tónverkanna níu á þess-
um tveim diskum, þó að fjöl-
breytni þeirra stafi sumpart af
breiðri höfundaarfleifð nærri
þriggja kynslóða.
Burtséð frá því hlýtur ávallt að
vera á reiki hvað segir hverjum
mest. Hvað mig varðar náði hlust-
vænleikaskali verkanna allt frá
nærri tíu og nánast niður í núll –
með Nestorana tvo, Nordal og
PPP, í efri enda og þarnæst Kar-
ólínu og Jónas, að öðrum ótöldum.
En sjálfsagt komast aðrir að ólíkri
niðurstöðu.
Annars er vel frá öllu gengið í
þessari útgáfu. Að vísu hefði
ónafngreindur höfundur bæklings-
textans mátt hygla meir almenn-
um hlustanda í heldur akademískri
umfjöllun um tónverkin er beinist
óþarflega mikið að formrænni
greiningu. En að því slepptu
stendur hár gæðastaðall KSR fyr-
ir sínu með frábærum flutningi
undir stjórn Bernharðs Wilkinson
í ljómandi skýrum upptökum. Ætti
albúmið því að höfða til flestra
unnenda nýrrar tónlistar í dag –
og jafnvel fleiri þegar fram líða
stundir. Í því felst happdrætti tím-
ans, eins og sölumaður sagði.
Svanasöngurinn
fyrir strengi
Kvöldstund með Schubert
bbbbn
Schubert: Strengjakvintett í C Op.
163. Rut Ingólfsdóttir & Sigurlaug
Eðvaldsdóttir f., Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir vla., Sigurður Bjarki
Gunnarsson & Hrafnkell Orri Egils-
son s. Hljóðritað í Áskirkju 2005.
Hljóðmeistari: Páll Sveinn Guð-
mundsson. Tónmeistari: Bjarni Rún-
ar Bjarnason. Úrvinnsla tónbanda:
PSG. Smekkleysa SMC26,2016.
Heildartími: 48:50.
Ólíkt ofannefndum samtíma-
verkum efast enginn um varanlegt
gildi Strengjakvintetts Schuberts
frá dánarári
hans 1828.
Það er fyrir
löngu orðið
gulltryggt,
þótt drægist
um aldarfjórð-
ung að koma
því á prent (1853), enda þótti
Franz Peter lengst af aðeins
kunnur fyrir sönglagasmíðar. Það
kann að þykja furðulegt í dag, þar
sem hvers konar tónafurðir dreif-
ast eftir ótal samskiptabrautum,
um ægifagurt meistaraverk er
myndi fljúga um alheim sem neisti
á Neti um leið og einhver tæki það
upp. En svona gerðust kaupin á
eyrinni þá. Kæmu engar nótur út
var verkið einfaldlega ekki til.
Hljómplötupptökur á þessum
svanasöng undrabarnsins eilífa
fyrir strengi eru síðan orðnar le-
gíó og verkið fyrir löngu orðið
heimsþekkt. Það er því enginn
hægðarleikur að blanda geði við
fremstu stroksnillinga heims fyrr
og síðar, enda er kvintettinn í
þokkabót með kröfuharðari við-
fangsefnum í samleik. Jafnvægið
er víða ofurviðkvæmt, ekki sízt
fyrir sellóin tvö (í stað tveggja ví-
ólna eins og algengast var og er
fyrir strokkvintetta). Þau þurfa
m.a. að spila hratt í einundum eða
samstíga áttundum, og getur þá
jafnvel minnsta ónákvæmni hljóm-
að grautleg eða í skásta falli
harmfyndin.
Hér er af nógu að taka fyrir
fagurkera. Skiptast á skin og
skúrir, gleði og sorg, og tónskáldið
eys úr að virðist ótæmandi meló-
dískum fjársjóði sínum í nærri
sinfónískri úrvinnslu svo eftir sit-
ur. Fyrir bítlkynslóð hlustenda
mætti skjóta að þeirri skondnu til-
viljun hvað 2. stefið í
Vínar-vaggandi Allegretto- loka-
þættinum minnir sláandi á viðlags-
upphaf gamla Pelican-smellsins
Jenny Darling (sjö eins nótur í
röð!) En það breytir vitanlega
engu um varanlegu nautnina sem
þessi tónkrás veitir ungum sem
öldnum.
Sem fyrr sagði er kvintettinn
ekkert lamb að leika sér við. En
þrátt fyrir allar mishuldar þyrni-
þrautir tekst félögunum úr KSR
oftast að skila merkilega vakurri
túlkun á þessu vandasama verki,
þó að hrynskerpan mætti stöku
sinni vera meiri. Upptakan stend-
ur einnig býsna vel fyrir sínu.
Með öðrum orðum: tilvalinn
diskur, jafnt til eignar sem gjafar.
Af sýndri veiði og gefinni
Yfirlit yfir nýjar íslenskar klassískar plötur
Ríkarður Ö. Pálsson rikardur@mbl.is
Kammersveit Reykjavíkur „…þrátt fyrir allar mishuldar þyrniþrautir tekst félögunum úr KSR oftast að skila
merkilega vakurri túlkun á þessu vandasama verki,“ segir um flutning á strengjakvintett eftir Schubert.
ATH: Sýningartíma dagsins má finna inná midi.is eða laugarasbio.is
LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI
á allar myndir
allan daginn, á morgun.*
Jólin byrja í Laugarásbíói
750 kr
í dag, þorláksmessu
*Nammipoki frá Nóa Síríus ásamt Svala eða kók frá Vífilfelli
fylgir öllum miðum á allar sýningar fyrir kl. 19:00
GUNTER
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AULINN ÉG
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Darri Þór