Morgunblaðið - 23.12.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.12.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2016 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 TOPPUR ehf Bifreiðaverkstæði TOPPUR er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is an í jólum og nýársdag. Afgreiðslu- tíminn er líka langur – það er frá því í rauðabítið og fram undir kvöldmat – en lengra fram á kvöldið til dæmis ef eitthvað er að færð. Viðvera vert- anna er því mikil og frídagarnir ekki margir. „Auðvitað er þetta okkar val. Við vissum vel að þessu hlutverki fylgdi mikil vinna og það nánast alla daga. Annars kemur traffíkin svolítið í gusum. Það er talsverður gesta- gangur snemma á mognana og í há- deginu – en hitt er lausatraffík. Síð- degis dettur þetta svo niður. Hér erum við með heimilismat í hádeginu en eftir áramót ætlum við að bjóða upp á rétti af matseðli og athuga með lengri opnunartíma. Fyrir nýtt fólk tekur alltaf svolítinn tíma að ávinna sér fastakúnna en við erum afar bjartsýn á framhaldið hér,“ seg- ir Katrín að síðustu. hér oft, snjóruðningskarlarnir koma í kaffi eldsnemma á morgnana og kjötsúpu í hádeginu og fólk að aust- an sem sækir vinnu til Reykjavíkur eða öfugt tekur hér kaffibollann – og jafnvel ábót í pappamáli. Og það sem gefur þessu öllu gildi eru samskiptin við alls konar fólk; fjölbreyttan hóp.“ Traffíkin í gusum Sem mikilvægur viðkomustaður er Litla kaffistofan opin 362 daga á ári; aðeins er lokað á jóladag og ann- „Ætli gróðurhúsaáhrifin séu ekki farin að segja til sín,“ segir Stefán Þormar Guðmundsson, sem var 24 ár í Litlu kaffistofunni en lét af störfum sl. vor. „Á þessum langa tíma komu yfirleitt nokkrir slæmir veðurdagar. Kannski einn í október, annar í nóvember og svo var allra veðra von í jólamánuðinum. Að undanförnu hefur tíðin hins vegar verið alveg einstök og alltaf fært, utan einu sinni brot úr degi.“ Stefán Þormar er nú kominn á eftirlaun. „Ef ég ætti að gefa ráð til fólks í þjónustustarfi þá er það að mæta viðskiptavinum með gleði; þá verður eftirleikurinn auð- veldur.“ Allra veðra var von í desember STEFÁN ÞORMAR VAR 24 ÁR Á VAKTINNI Stefán Þormar Guðmundsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mér finnst við hafa reynt á fyrsta ófærðardegi vetrarins nú á mánu- daginn þegar loka þurfti leiðinni milli Rauðavatns og Kamba í rúm- lega klukkustund, að þessi staður skiptir máli. Þeir sem þó voru á ferð- inni stoppuðu gjarnan hér og biðu af sér svart élið. Svo birti til og þá gat fólkið haldið áfram eftir að hafa setið hér í kaffi og spjalli,“ segir Svanur Gunnarsson, staðarhaldari í Litlu kaffistofunni í Svínahrauni. Það var 1. nóvember sem Svanur og kona hans, Katrín Hjálmarsdóttir, tóku við rekstri þessa fjölsótta veitinga- staðar; vegasjoppu sem skiptir miklu máli í vitund margra. Kjötsúpa og heimabakað Það var kaffiilmur í loftinu og nýtt heimabakað brauð með laxi og eggj- um í kælinum þegar Morgunblaðið leit við í Litlu kaffistofunni og heils- aði upp á vertana nýju sem búa í Þorlákshöfn. „Þetta kemur vel út, við erum ekki nema 20 mínútur að heiman og hingað,“ segir Svanur. Þau Svanur og Katrín koma á staðinn um klukkan sex á morgnana og og opna fyrir gestum og gangandi hálftíma síðar. „Það var frábært að fá þetta tækifæri og að vera valinn úr þeim stóra hópi sem sótti um að taka staðinn á leigu af Olís,“ segir Katrín. „Við rákum á sínum tíma sjoppur bæði á Selfossi og Stokks- eyri en Litla kaffistofan er allt öðru- vísi dæmi. Hér kemur fólk til þess að fá sér hressingu og teygja aðeins úr sér. Flutningabílstjórarnir stoppa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gestrisin Katrín Hjálmarsdóttir og Svanur Gunnarsson tóku við rekstri vegasjoppunnar vinsælu 1. nóvember sl. Kaffispjall í éljagangi  Ný í Litlu-kaffistofunni  Mikilvægur viðkomustaður í Svínahrauninu  Skemmtileg samskipti við alls konar fólk Húsið Vin við veginn yfir fjallið. Alþingi samþykkti í gær- kvöldi tillögu allsherjar- og menntamálanefndar um að 23 listamenn fái heiðurslaun greidd úr rík- issjóði. Árið 2012 var ákveðið á Alþingi að þak yrði sett á fjölda þeirra listamanna sem geti fengið heiðurs- launin og geta ekki fleiri en 25 hlotið þau. Heiðurslaunin eru jafnhá starfslaunum listamanna og eru veitt að fullu til 70 ára aldurs. Eftir það er miðað við 80% af starfslaunum listamanna. Þrír nýir listamenn bættust við listann, þau Guðrún Ásmunds- dóttir leikkona, Hreinn Friðfinns- son myndlistarmaður og Steina Vasulka vídeólistamaður. Leikar- arnir Gunnar Eyjólfsson og Edda Heiðrún Backman féllu frá á árinu, en þau voru bæði á lista um heiðurslaun í fjárlögum fyrra árs. Á fjárlögum 2017 hljóta fimm- tán karlar heiðurslaun listamanna og átta konur. Þrír nýir listamenn fá heiðurslaun 2017 Hreinn Friðfinnsson Steina Vasulka Guðrún Ásmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.