Fréttablaðið - 25.03.2017, Blaðsíða 2
Prammi í strandhöggiVeður
Aftur suðvestanhvassviðri eða
-stormur með skúrum eða éljum í dag,
en úrkomulítið fyrir austan. Dregur
talsvert úr vindi og éljum sunnan- og
vestanlands um kvöldið. sjá síðu 48
Dublin
Helgarferð | 20. apríl | 3 nætur
Frábært verð frá: 69.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi á Academi Plaza með
morgunmat.
Verð án Vildarpunkta: 79.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
samfélag Eftir tvö vopnuð rán í mars,
annað í Glæsibæ og hitt á Bíldshöfða,
hefur fyrirspurnum til Öryggis-
miðstöðvarinnar um námskeiðið
Ógnandi hegðun fjölgað töluvert
og fyrirtæki sýnt áhuga á að senda
starfsmenn sína á það. Þar er reynt að
undirbúa starfsfólk eins vel og mögu-
legt er lendi það í vopnuðu ráni.
„Þetta kemur í skorpum. Þegar tvö
rán verða þá fara atvinnurekendur
að hugsa hvernig þeir geti brugðist
við ef þeirra verslun og þeirra starfs-
fólk lenti í svona,“ segir Arnór Sig-
urðsson, sem er einn af kennurum á
námskeiðinu.
Arnór segir að farið sé yfir ýmsa
þætti á námskeiðinu eins og hvernig
sé að lenda í vopnuðu ráni og við-
brögð við því. Þeir sem lenda í ráni
eru oftar en ekki lengi að jafna sig.
Það sé mikið sjokk að fá öskrandi
og ógnandi ræningja, sem eru oftast
vopnaðir, inn í verslun til sín.
„Það er eðlilegt að taka svona
nærri sér. Þegar einhverjum er ógnað
og það er farið inn á persónulegt
svæði manneskju, þá getur það verið
mikið áfall. Þess vegna skiptir miklu
máli vinnan sem fer af stað eftir
ránið. Við komum ekki í veg fyrir
að svona hlutir gerist en við getum
unnið rétt úr þeim eftir á. Fyrir fyrir-
tæki og atvinnurekendur skiptir
miklu máli að bregðast rétt við með
réttum stuðningi fyrir starfsfólk sitt.“
Arnór segir að það sé meiri skiln-
ingur nú hjá atvinnurekendum
gagnvart starfsfólki sínu. „Viðskipta-
vinum sem hafa komið á námskeið
er umhugað um starfsfólkið enda
er það grunnurinn að starfseminni.
Það er verið að fjárfesta í þeim og
það skiptir máli að sýna þeim þann
stuðning ef eitthvað kemur upp á og
undirbúa það.“
Ef einhver lendir í vopnuðu ráni
þá er aðalatriðið að reyna ekki að
leika hetju.
„Það er númer eitt, tvö og þrjú.
Það vilja allir komast heim til sín
eftir vinnudaginn og í flestum til-
fellum eru þetta dauðir hlutir og
heilsa starfsmannsins er aðalatriðið.
Við brýnum fyrir fólki að vera ekki
að leika hetju. Það er gullna reglan í
þessu, að hugsa um sitt eigið öryggi,“
segir Arnór. benediktboas@365.is
Hetjudáðir eiga aldrei
við í vopnuðum ránum
Vopnuð rán á Bíldshöfða
og í Grímsbæ í mars juku
vitund verslunareigenda
sem senda nú starfs-
fólk sitt á sérstakt nám-
skeið þar sem viðbrögð
við slíkri upplifun eru
kennd. Mikið áfall er að
fá vopnaðan og öskrandi
ræningja inn í verslun.
Arnór Sigurðsson á námskeiðinu Ógnandi hegðun. Mynd/ÖryggiSMiðStÖðin
Á meðan á ráninu
stendur:
l Ekki leika hetju. Aldrei reyna
að yfirbuga ræningjann eða
tefja hann.
l Ekki verða skelkuð/skelk-
aður, ræninginn vill forðast
það að meiða þig, hann vill
aðeins verðmæti en verður
einungis hættulegur ef ránið
gengur illa.
l Farðu eftir fyrirmælum og
reyndu að flýta þér að því
sem hann/hún biður þig um
að gera.
l Reyndu að taka eftir sér-
einkennum viðkomandi
s.s. hæð, líkamsbyggingu,
klæðnaði, talanda o.s.frv.
Úr námskeiðinu Ógnandi
hegðun
Pramma rak upp í fjöru við Sundhöllina í Hafnarfirði í ofviðrinu sem geisaði aðfaranótt gærdagsins. Hann var bundinn við flotkvína í Hafnar-
fjarðarhöfn en slitnaði þaðan frá. Pramminn er þó kominn á flot aftur en lóðsbátur dró hann á flot upp úr klukkan fjögur í gær. FréttAblAðið/VilhelM
stjórnmál Ríkisstjórnin ákvað í
gær að setja 1.200 milljónir króna til
viðbótar í vegagerð á þessu ári. Þau
verkefni sem fá stærstan hluta auka-
framlagsins eru Berufjarðarbotn,
Dettifossvegur, Teigsskógur og Horna-
fjarðarfljót.
Fær hringvegurinn í Berufirði 300
milljónir króna, 200 milljónir verða
settar í brú yfir Hornafjarðarfljót og
hið sama í Dettifossveg. Þá fær Vest-
fjarðavegur 200 milljónir króna til að
tryggja að vegagerð um Teigsskóg hefj-
ist um leið og leyfi fæst. – þea
Aukamilljónir
til vegagerðar
Bandaríkin Repúblikanar í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings drógu sjúkra-
tryggingafrumvarp sitt til baka í
gærkvöldi. CNN greindi frá því að
Donald Trump forseti hefði sjálfur
farið fram á það þar sem of margir
þingmenn flokksins voru andvígir
því. Stefndi því ekki í að meirihluti
næðist um frumvarpið.
Til stóð að atkvæðagreiðslan
færi fram í gærkvöldi. Af því
varð hins vegar ekki og greina
fjölmiðlar vestanhafs frá því að
ákvörðunin sé mikill ósigur fyrir
forsetann og Paul Ryan, forseta
fulltrúadeildarinnar.
„Við komumst nálægt þessu en
þetta tókst ekki. Ég hringdi í for-
setann og sagði honum að ég vildi
draga frumvarpið til baka. Hann
var sammála,“ sagði Ryan á blaða-
mannafundi.
Sjálfur sagðist Trump hafa lært
mikið af þessari reynslu.
„Við lærðum mikið um flokks-
hollustu, ferlið og úreltar reglur í
dag. Þetta hefur verið mjög áhuga-
verð reynsla og ég held hún muni
leiða til betra heilbrigðiskerfis,“
sagði Trump á blaðamannafundi á
skrifstofu sinni.
Þá sagði hann að 2017 yrði svo
slæmt ár fyrir Obamacare, sjúkra-
tryggingalöggjöf Baracks Obama, að
Demókratar myndu koma til sín og
biðja um samstarf við að skapa nýtt
sjúkratryggingakerfi. – þea
Líflína fyrir
Obamacare
1,2
milljörðum til viðbótar
verður varið í vegagerð á
árinu.
donald trump bandaríkjaforseti.
nordicphotoS/AFp
2 5 . m a r s 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
4
-F
6
3
0
1
C
8
4
-F
4
F
4
1
C
8
4
-F
3
B
8
1
C
8
4
-F
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K