Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 10
umhverfismál Verkefnum Garða
bæjar við endurheimt votlendis
á tveimur svæðum á Álftanesi er
lokið. Horft er til loftslagsmála en
ekki síður á mikilvægi svæðanna
vegna fjölbreytts fuglalífs og mögu
leika til útivistar. Frekari fram
kvæmdir Garðabæjar við endur
heimt votlendis eru í farvatninu við
Urriðavatn.
Á dögunum lauk framkvæmdum
við endurheimt votlendis á Álfta
nesi milli Kasthúsatjarnar og Jörva
vegar. Verkefnið hófst formlega í
lok ágúst og fólst í uppfyllingu 675
metra af skurðum. Að verkefninu
komu Landgræðsla ríkisins og
Toyota á Íslandi, auk bæjarins.
Jóna Sæmundsdóttir, formaður
umhverfisnefndar Garðabæjar, segir
að áfram verði haldið. Samstarfi
Garðabæjar við Toyota á Íslandi og
Landgræðsluna verði haldið áfram,
og endurheimt votlendis við Urriða
vatn hafi orðið fyrir valinu.
Spurð hvernig sveitarfélagið hafi
hugsað nýtingu svæðanna eftir að
framkvæmdum er lokið segir Jóna
að hugmyndin sé að þau nýtist til
útivistar og fuglaskoðunar.
„Við Kasthúsatjörn er einstakt
fuglalíf og við Bessastaðanes er
varpsvæði æðarfugla. Það er okkur
mikilvægt að allt yfirbragð bæjar
landsins sé aðlaðandi og hvetji til
útivistar enda er stór hluti bæjar
landsins friðlýstur,“ segir Jóna og
bætir við að votlendi sé mikilvægt
búsvæði fugla og plantna og styðji
þannig við líffræðilegan fjölbreyti
leika svæðana. Verkefnin falli mjög
vel að nýútgefinni umhverfisstefnu
Garðabæjar.
Verkefnið tafðist fyrst um sinn
vegna rigninga síðasta haust og
vetur en áætlað var að ljúka fram
kvæmdinni fyrir komu farfugla á
svæðið. Í framhaldinu munu sér
fræðingur Landgræðslunnar og
umhverfisstjóri Garðabæjar fylgjast
með framvindu svæðisins, til dæmis
hvernig og hve hratt votlendið grær
eftir raskið.
Á Álftanesi hefur nú verið endur
heimt votlendi á tveimur svæðum;
á Bessastaðanesi og við Kasthúsa
tjörn eins og áður segir. Umhverfis
Kasthúsatjörn er mjög fjölskrúðugt
fuglalíf, en umhverfi tjarnarinnar er
friðlýstur fólkvangur. Endurheimt
votlendisins við tjörnina er í raun
stækkun á búsvæði fugla, votlendis
gróðurs og annarra dýra. Kasthúsa
tjörn er þekkt meðal fuglaskoðara
fyrir tíðar heimsóknir sjaldgæfra
fugla og flækinga.
En þá er ekki allt talið og segir í
frétt á heimasíðu Garðabæjar að
með verkefnunum sem nú er lokið
hafi opnum skurðum á Álftanesi
fækkað og það varði öryggi barna
í nágrenninu, sem og annarra sem
eiga leið um svæðið.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, sagði við upphaf
framkvæmda við Kasthúsatjörn að
endurheimt votlendis væri stórt
umhverfismál sem snerti alla og enn
frekar uppvaxandi kynslóðir.
„Með því er ekki aðeins dregið úr
losun gróðurhúsalofttegunda, sem
er stórmál í sjálfu sér, heldur erum
við einnig að vernda og styrkja fjöl
skrúðugt lífríki,“ sagði Gunnar.
svavar@frettabladid.is
Votlendi endurheimt fyrir fugla og fólk
Garðabær hefur lokið endurheimt votlendis á tveimur svæðum innan bæjarmarkanna. Undirbúa þriðja verkefnið við Urriðavatn.
Svæðin ætluð til útivistar og ekki síst til skoðunar á fjölbreyttu fuglalífi. Er hluti af stefnumótun sveitarfélagsins í umhverfismálum.
Kostnaður
bæjarins var um
13 milljónir við
bæði verkefnin.
Mynd/Garðabær
Það er okkur
mikilvægt að allt
yfirbragð bæjarlandsins sé
aðlaðandi og hvetji til
útivistar enda er stór hluti
bæjarlandsins
friðlýstur.
Jóna Sæmunds-
dóttir, formaður
umhverfisnefndar
Garðabæjar
2 5 . m a r s 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
8
5
-2
C
8
0
1
C
8
5
-2
B
4
4
1
C
8
5
-2
A
0
8
1
C
8
5
-2
8
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K