Fréttablaðið - 25.03.2017, Page 18

Fréttablaðið - 25.03.2017, Page 18
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Shköder eirikur@365.is Fótbolti Íslenska landsliðið náði sem betur fer að landa þremur stigum gegn erfiðum andstæðingi í Albaníu í gærkvöldi, er okkar menn unnu 2-1 sigur á Kósóvó í erfiðari leik en margur átti eflaust von á. Björn Bergmann Sigurðarson og Gylfi Þór Sigurðsson úr vítaspyrnu skoruðu mörk Íslands í fyrri hálf- leik en eftir mikla elju gestgjafanna í upphafi þess síðari uppskáru þeir mark er Atdhe Nuhiu skoraði. Sem betur fer komust Kósóvóar ekki nær þrátt fyrir fína pressu frá þeim. Mikill ákafi heimamanna Ákafinn var mikill hjá gestgjöf- unum í upphafi og íslensku leik- mennirnir áttu fullt í fangi með að koma sínu spili í gang. Þeir fengu afar lítinn tíma á bolta og til að skila honum á samherja. Gylfi Þór var lítið í spilinu og sókn- armennirnir gerðu lítið annað en að hlaupa og berjast. Það fjaraði undan pressu Kósóvó strax eftir stundarfjórðung. Íslend- ingar fengu þá meira svæði til að athafna sig á og þvinga gestgjafana til að verjast. Þegar það lukkaðist byrjuðu leik- menn Kósóvó að gera mistök sem okkar menn refsuðu fyrir. Auðvelt fyrir Björn Í fyrra marki Íslands í fyrri hálfleik urðu mistökin til þess að Arnór Ingvi gat lagt boltann út á Gylfa, sem skaut að marki. Samir Ujkani varði en Björn Bergmann hirti frá- kastið og skoraði í autt markið. Gylfi skoraði sjálfur síðara mark- ið úr vítaspyrnu sem kom til eftir eitraða sendingu hans á Birki Má, inn fyrir varnarlínu Kósóvó. Benjamin Kololli gerði sig sekan um slæm mistök, missti af bolt- anum og felldi Birki. Spyrnan hjá Gylfa var örugg, eins og við var að búast. Berisha öflugur Kósóvó sýndi að liðið er með sterka einstaklinga. Valon Berisha var öfl- ugur framan af og ógnaði íslenska Léttir fyrir strákana okkar Íslendingar unnu afar mikilvægan útivallarsigur á seigu liði Kósóvó, 2-1, í Shkoder í Albaníu í gær. Snilli Gylfa Þórs Sigurðssonar kom enn og aftur í ljós þegar mest á þurfti. Kósóvó beit hraustlega frá sér í leiknum. Gleði, gleði, gleði! Strákarnir fagna marki Gylfa Þórs úr vítaspyrnu i gær. fréttABlAðið/epA visir.is Umsögn um alla leik- menn, umfjöllun og viðtöl má finna á íþróttavef Vísis. markinu með skoti snemma leiks sem strauk slána á íslenska mark- inu. En það var augljóst að liðsheild og leikskipulag Íslands var miklu sterkara en hjá andstæðingunum. Ísland refsaði Íslendingar refsuðu fyrir mistök Kósóvóa, en íslenskir samherjar björguðu hverjir öðrum eftir mis- tök þeirra. Kósóvó sýndi líka að liðið hefur engu að tapa og að leikmenn þess eru algjörlega óhræddir við að láta til sín taka. Eftir að hafa stillt sig af í leik- hléinu mættu þeir dýrvitlausir til leiks í síðari hálfleik og eftir að hafa komist afar nærri nokkrum sinnum uppskáru þeir mark er Atdhe Nuhiu skoraði með skalla af stuttu færi á 52. mínútu. Héldu haus Meðbyr gestgjafanna var mikill og Keflavík - tindastóll 83-73 Keflavík: Amin Stevens 29/23 frák, Magnús Traustason 27, Reggie Dupree 14, Hörður Axel Vilhjálmsson 6/9 stoðsendingar. Tindastóll: Antonio Hester 23/12 frák., Chris Caird 15, Pétur Birgisson 14. Keflavík vann einvígið, 3-1. Þór Þorl. - Grindavík 88-74 Þór: Tobin Carberry 25, Emil Karel Einarsson 16, Maciej Baginski 13, Davíð Ágústsson 9. Grindavík: Ólafur Ólafsson 21, Lewis Clinch 21, Þorleifur Ólafsson 12. Staðan er 2-2. Oddaleikur á sunnudag. Nýjast Domino’s-deild karla Um helgina Stöð 2 Sport á laugardegi 14.00 WGC Golfstöðin 17.00 Sviss - lettland Sport 2 17.00 Andorra - færeyjar Sport 3 17.00 Svíþjóð - H-rússl. Sport 19.45 Belgía - Grikkland Sport 2 19.45 portúgal - Ungverj. Sport 19.45 Búlgaría - Holland Sport 3 21.30 Kia Classic Sport 4 00.00 Sunna í invicta Sport 2 04.30 f1 í Ástralíu Sport Stöð 2 Sport á sunnudegi 14.00 WGC Golfstöðin 16.00 england - litháen Sport 16.00 Aserb. - Þýskaland Sport 2 16.00 S. Marino - tékkl. Sport 3 18.45 N-Írland - Noregur Sport 2 18.45 Skotland - Slovenía Sport 4 18.45 Danmörk - rúmenía Sport 5 19.15 Oddaleikur í Dom. Sport 19.30 NBA: Houston-OKC Sport 3 21.00 Körfuboltakvöld Sport 21.30 Kia Classic Sport 4 Króatía - Úkraína 1-0 tyrkland - finnland 2-0 Kosóvó - Ísland 1-2 efri Króatía 13 Ísland 10 Úkraína 8 Neðri Tyrkland 8 Kósóvó 1 Finnland 1 Undank. HM 2018 riðill Íslands ÓlAfÍA KoMSt EKKI ÁfrAM Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á KIA Classic-mótinu á lPGA-móra- röðinni. Hún endaði fyrstu tvo hringina á þremur höggum yfir pari samtals og var tveim höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. KÓS 1 –2 ÍSl 0-1 Björn Sigurðarson (25.), 0-2 Gylfi Þór Sigurðsson, víti (34.), 1-2 Atdhe Nuhiu (53.) Skot (á mark): 7 (5) – 9 (5) Horn: 5 – 2 rangstöður: 1 – 1 frammistaða Íslands (4-4-2) Hannes Þór Halldórsson 6 Birkir Már Sævarsson 7 Kári Árnason 8 Ragnar Sigurðsson 8 Ari Freyr Skúlason 6 Emil Hallfreðsson 5 Aron Einar Gunnarsson 7 Gylfi Þór Sigurðsson 8 Arnór Ingvi Traustason 6 Björn Bergmann Sigurðarson 7 Viðar Örn Kjartansson 5 (69. Jón Daði Böðvarsson 6) stemningin á vellinum eftir því. En Íslendingar náðu sem betur fer að halda haus og klára leikinn með sigri, þó svo að það hafi stundum staðið tæpt. leikurinn reyndi á taugarnar en strákarnir hafa margsinnis sýnt, sem betur fer, að þeir eru með stál- taugar þegar á reynir. Sigurinn er gríðarlega mikil- vægur fyrir íslenska liðið upp á framhaldið í riðlinum en hefði liðið tapað stigum í Albaníu hefði leiðin á HM í rússlandi orðið afar grýtt. Með þessum þremur stigum eru strákarnir okkar aftur á móti í fínum málum og spila leik á heima- velli gegn Króatíu um toppsæti riðilsins. 2 5 . m a r s 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r18 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport 2 5 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 8 5 -0 0 1 0 1 C 8 4 -F E D 4 1 C 8 4 -F D 9 8 1 C 8 4 -F C 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.