Fréttablaðið - 25.03.2017, Qupperneq 86
Listaverkið
Þessi mynd er eftir
Helga H. Inguson
níu ára.
Allir þátttakendur sitja í hring.
Einn þeirra er hvíslstjórinn og
hann hvíslar orði eða setningu
í eyrað á sessunauti sínum. Sá
hvíslar því sem hann heyrði í
eyrað á næsta manni. Þannig
fer orðið eða setningin allan
hringinn.
Síðasta barnið segir upphátt
það sem það heyrði. Þá kemur
oft allt annað orð en lagt var upp
með og allt önnur setning.
Hér eru hugmyndir að orð-
um eða setningum sem geta
farið hringinn: Mandarína, súkku-
laði, málverk, fjölbýlishús, skóla-
taska, appelsínur, miðvikudagur,
veggfóður. Bráðum fer ég í sumar-
bústað. Hefur þú farið upp í Kerl-
ingafjöll? Ætlar þú í sund á eftir?
Leikurinn
Hvísl
Vestmannaeying
urinn Jónatan
Þröstur Guðjóns-
son ætlar til Sví
þjóðar um páskana
og hlakkar til.
Jónatan Þröstur er níu ára.
Hann er á rölti heim af fót-
boltaæfingu þegar blaðamaður
hittir hann í Eyjum. Hann er
í sjötta flokki og býst við að
byrja bráðum í þeim fimmta.
Svo æfir hann líka fleira en fót-
bolta. „Ég æfi handbolta líka og
finnst hann skemmtilegri.“
En hvert er eftirlætisfagið þitt í
skólanum? Mér finnst reikning-
ur skemmtilegastur, sérstak-
lega samlagningin, hún er betri
en mínusinn.
Finnst þér gaman að lesa? Allt í
lagi en ekkert sérstaklega. Ég er
ekkert hrifinn af bókum.
Bráðum kemur páskafrí í skól-
anum, hvað ætlar þú að gera þá?
Ég ætla til Svíþjóðar til mömmu
minnar, hún á heima þar.
Hefur þú einhvern tíma farið
á sjó? Já, ég hef farið á tuðru.
Þá var siglt út úr höfninni og
vestur með Heimakletti. Svo
hef ég líka farið á sjóstöng,
þá var ég um borð í trillu. Það
var skemmtilegt.
Ætlar þú að verða sjómaður?
Kannski. Mig langar líka að
verða slökkviliðsmaður en
það er ekki hægt þegar maður
er sjómaður því þá er maður
svo lítið í landi.
Hefur þú verið á Þjóðhátíð inni í
Herjólfsdal? Já, já, það var rosa
gaman.
Hvert er uppáhalds Eyjalagið
þitt? Eyja, meyja og peyja, lof
mér að segja …
Langar til að verða
slökkviliðsmaður
Jónatan Þröstur á heima í Vestmannaeyjum og spilar bæði fótbolta og handbolta með ÍBV. FréttaBlaðið/EyÞór Árnason
Bragi Halldórsson
201
„Þetta er nú meira veggskriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að
hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún
við með fyrirlitningu. „En hann er nú bara að verða gamall,“ sagði Konráð.
„Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti
hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð
að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. „En við
verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata. „Spurning hvort það vanti það marga steina
að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við.
Hversu marga steina skyldi vanta?
Getur þú talið þá? Eru þeir:
A 20
B 25
D 30
Svar: B
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
2 5 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r46 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
2
5
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
8
5
-0
E
E
0
1
C
8
5
-0
D
A
4
1
C
8
5
-0
C
6
8
1
C
8
5
-0
B
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K