Fréttablaðið - 06.02.2017, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 1 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri
Thorsson skrifar um Fanga. 9
tÍMaMót VG fagnar 18 ára
afmæli sínu í dag. 10
sport Romelo Lukako
er leikmaður helgar-
innar eftir að hafa
skorað
fjögur
mörk 12
lÍfið
Örvar
Smárason
stígur einn á
svið á Sónar-
hátíðinni. 22
plús sérblað
l fólk
*Samkvæmt prentmiðla-
könnun Gallup apríl-júní
2015
frÍtt
N1 kortið
færir þér
bæði afslátt
og punkta
Björgunarsveitarfólk leitaði á sunnanverðum Reykjanesskaganum í gær að fatnaði og farsíma Birnu. Ekki er áætlað að halda leit áfram í dag. Fréttablaðið/Gunnaratli
lögregluMál Birna Brjánsdóttir
var á lífi um borð í rauða Kia Rio
bílnum, þegar hann kom til Hafnar-
fjarðarhafnar að morgni laugardags-
ins 14. janúar síðastliðins. Rann-
sókn lögreglu miðast við að henni
hafi ekki verið unnið mein fyrr en
eftir að skipverjinn, sem sat í gæslu-
varðhaldi í tvær vikur grunaður um
aðild að málinu, var farinn um borð
í togarann Polar Nanoq.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
lögregla gangi nú út frá því að Birnu
hafi verið unninn mestur miski á
bryggjusporðinum við Hafnarfjarðar-
höfn á milli 6.10 og 7 að morgni þegar
Thomas Møller Olsen var einn með
henni í bílnum. Eins og áður hefur
verið greint frá í fjölmiðlum kom
bílaleigubíllinn sem hann hafði til
umráða að Hafnarfjarðarhöfn klukk-
an rúmlega sex um morguninn. Í upp-
tökum eftirlitsmyndavéla á svæðinu
sjást skipverjarnir tveir koma út úr
bílnum, ræðast við í stutta stund, áður
en Nikolaj fer um borð í skipið en
Thomas Møller keyrir að enda bryggj-
unnar og er þar í um 50 mínútur. Þá
ók bíllinn burt af hafnarsvæðinu en
lögregla hefur reynt að rekja ferðir
hans til 11.30 um morguninn.
Heimildir Fréttablaðsins herma
jafnframt að eftir að skipverjinn,
sem nú hefur verið látinn laus, hóf að
greina frá málavöxtum um morgun-
inn hafi lögreglu orðið ljóst að saga
hans stóðst og ekki séð ástæðu til að
draga í efa að hann hafi ekkert með
morðið á Birnu að gera.
Í fréttum Stöðvar 2 í gær var greint
frá því að líklega hafi Birnu verið
kastað af brúnni á Vogsósi, sex kíló-
metrum frá Selvogsvita þar sem hún
fannst látin. – snæ
Birna var á lífi við komuna á bryggjuna
Lögreglan rannsakar hvort Birnu Brjánsdóttur hafi verið ráðinn bani við bryggjusporðinn á Hafnarfjarðarhöfn. Gengið er út frá því að
Birnu hafi ekki verið unninn miski fyrr en eftir að hún var ein í bílnum með Thomas Møller Olsen, sem grunaður er um að bana henni.
Birna Brjánsdóttir hvarf
af Laugavegi klukkan 5.25,
laugardagsmorguninn
14. janúar síðastliðinn.
Viðskipti Hópur um lausasölulyf
innan Samtaka verslunar og þjón-
ustu, vill að almennum verslunum
verði heimilt að selja væg verkjalyf,
ofnæmislyf og önnur ólyfseðilsskyld
lyf. Krafan er í samræmi við vilja
fyrirtækja sem reka helstu matvöru-
verslanir landsins.
Í skýrslu frá hópnum segir að
hömlur á sölu ólyfseðilsskyldra lyfja
hér á landi séu mun meiri en í þeim
löndum sem við viljum bera okkur
saman við.
Lóa María Magnúsdóttir, formaður
Lyfjafræðingafélags Íslands, segist
spyrja sig að því hver beri ábyrgð ef til
eitrunar sjúklings kemur. Núverandi
fyrirkomulag geri það að verkum að
lyfjafræðingur sé alltaf til staðar til
að ráðleggja með töku lausasölulyfja
og sú sérfræðiþjónusta auki öryggi
sjúklinga. snæ / sjá síðu 4
SVÞ vilja lyf
í matvörubúðir
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
A
-4
9
C
4
1
C
2
A
-4
8
8
8
1
C
2
A
-4
7
4
C
1
C
2
A
-4
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K