Fréttablaðið - 06.02.2017, Page 4
FIAT
tipo
VERÐ FRÁ: 2.790.000 KR.
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS
fiatisland.is
ÞAÐ ÞARF SVO LÍTIÐ TIL AÐ FÁ HEILMIKIÐ FIAT TIPO HLAÐINN AUKABÚNAÐI – MEÐ FIMM ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM FIAT. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR, RJÚKANDI HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI
Bíll á mynd Fiat Tipo 1.4 Lounge 2.990.000 kr.
Samfélag Samþykkt var á fundi
borgarráðs Reykjavíkur á fimmtu
dag að verja fjórum milljónum
króna til að kaupa nýjar öryggis
myndavélar fyrir miðborgina og
fleiri staði. Verður miðbærinn þá
vaktaður af um 30 myndavélum
sem búnar verða nýjustu tækni
og bætast fjórar myndavélar við
sem geta lesið bílnúmer. Er stefnt
að því að kerfið verði komið upp í
maí. Kostar hver númeramyndavél
um 500 þúsund krónur og munu
þær geta borið saman bílnúmer og
hvort það sé skráð í málaskrá lög
reglunnar á örskotstíma. Er þetta
gríðarlegt framfaraskref en eins og
alþjóð man gat lögreglan ekki séð
bílnúmer á Kia Rio bifreið sem lög
reglan þurfti að finna í tengslum við
mál Birnu Brjánsdóttur. Þurfti lög
reglan að nota útilokunaraðferðina
og skoðaði 126 slíka bíla.
Í greinargerð Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra um málið segir að árið
2012 hafi verið keyptar tólf öryggis
myndavélar og séu fjórar þeirra nú
óvirkar. Síðan hafi verið keyptar
átján öryggismyndavélar tveimur
árum síðar. Er fyrirhugað að skipta
út ellefu vélum frá 2014 fyrir nýrri
vélar og kaupa fjórar vélar sem
geta lesið númeraplötur bíla. Alls
er kostnaður áætlaður um fjórar
milljónir.
Reykjavíkurborg, Neyðarlínan
og lögreglan í Reykjavík gerðu sam
komulag um verkaskiptingu um
endurnýjun öryggismyndavéla í
miðborginni og rekstur kerfisins
árið 2012. Hlutverk borgarinnar var
að kaupa vélarnar, Neyðarlínan tók
að sér að flytja merkið frá vélunum
til lögreglunnar og sjá um viðhald
og rekstur og lögreglan tók að sér
að geyma gögnin og jafnframt hefur
hún nýtt sér vélarnar til löggæslu
starfa í miðborginni.
Þórhallur Ólafsson, fram
kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, gat
ekki tjáð sig um málið þegar eftir
því var leitað en sagði að stefnan
væri að vélarnar væru komnar upp
í byrjun maí. benediktboas@365.is
Fjórar vélar sem geta lesið númeraplötur keyptar í miðborgina
Fjórar númeramyndavélar verða í
miðborginni. Fréttablaðið/anton
30
Öryggismyndavélar í
miðbænum verða
útbúnar nýjustu tækni.
ViðSkipti Hópur um málefni lausa
sölulyfja innan Samtaka verslunar
og þjónustu vill að hömlum verði
létt á sölu ákveðinna lyfja. Í dag
mega einungis apótek sjá um sölu
lyfja og verða lyf að vera innan
við afgreiðsluborð. Eina undan
tekningin frá þessu er sala smárra
skammta af níkótínlyfjum.
Fréttablaðið greindi frá því árið
2014 að forstjórar Haga og Kaupáss,
fyrirtækja sem reka meðal annars
Bónus, Hagkaup og Krónuna, hefðu
áhuga á því að taka upp sölu lausa
sölulyfja í dagvöruverslunum. Sem
dæmi um lausasölulyf má nefna væg
verkjalyf, ofnæmislyf og magalyf.
Brynjúlfur Guðmundsson, for
svarsmaður lausasölulyfjahóps SVÞ,
segir að í drögum að nýjum lyfja
lögum sem kynnt voru á Alþingi í
upphafi síðasta árs hafi verið gert ráð
fyrir að Lyfjastofnun gæti veitt leyfi
til slíkrar sölu. Þetta atriði hafi þó
verið tekið út í meðförum heilbrigð
isráðherra með frumvarpið nema
með undantekningu fyrir svæði þar
sem ekki er apótek í næsta nágrenni.
Hópurinn leggur til að lyfjum
sem ekki eru lyfseðilsskyld verði
skipt í tvennt og þau fari ekki öll
sjálfkrafa í almenna sölu heldur séu
væg verkjalyf í litlum pakkningum
gerð aðgengileg en stærri skammtar
verði enn í meðförum apótekanna.
„Það sem er möguleiki að fólk geti
ofnotað yrði bara í apótekum. Þetta
eru bara helstu lyfin sem fólk notar
dagsdaglega, ofnæmislyf, kveflyf
og hitastillandi fyrir börn. Börn fá
ekki bara hita á daginn á milli 9 og
5. Apótek úti á landi eru stundum
bara opin nokkra virka daga í viku
á milli tíu og tvö. Þetta snýst um að
bæta aðgengi og heilbrigði þjóðar
innar,“ segir Brynjúlfur.
Í skýrslu sem hópurinn lét vinna
fyrir sig til að bera saman íslenskt
lyfjasöluumhverfi við umhverfið í
nágrannalöndum okkar, kemur fram
að salan sé meiri takmörkunum háð
hér en gengur og gerist í löndunum
í kring. Í Noregi og Svíþjóð er til
að mynda sala slíkra lyfja heimil
í almennum verslunum og þar er
netverslun einnig heimil á lyfjum.
Þá tíðkist í fæstum Evrópulöndum
að öll lyf séu á bak við afgreiðslu
borðið í stað þess að vera í rekkum
apótekanna. Það fyrirkomulag komi
í veg fyrir að neytendur geti sjálfir
gert almennilegan verðsamanburð
eða annan samanburð á lyfjunum
sem í boði eru.
Lóa María Magnúsdóttir, formað
ur Lyfjafræðingafélags Íslands, segir
að leggja verði áherslu á öryggi við
sölu slíkra lyfja. Í öllum apótekum
sé alltaf lyfjafræðingur á vakt sem
beri ábyrgð á sölunni. „Fari lausa
sölulyf í almennar verslanir, hver
ber þá ábyrgðina? Hver á að tala við
sjúklinginn og ræða við hann um
önnur lyf og þær hættur sem fylgja
því að taka lausasölulyf. Þetta er ekki
Smarties,“ segir Lóa.
„Í nágrannalöndum okkar hafa
komið upp alvarleg eitrunar
tilvik vegna paracetamols. Það
er verið að breyta reglunum þar
vegna þess,“ segir hún jafnframt.
snaeros@frettabladid.is
Vilja stórauka frelsi í lyfsölu
Hópur innan Samtaka verslunar og þjónustu vill að ákveðin lyf geti fengist í öðrum verslunum en apó-
tekum, svo sem matvöruverslunum. Formaður lyfjafræðinga spyr hver beri ábyrgð ef til eitrunar kemur.
Tugir manna hafa slasast í snjó
flóðum og snjó hefur kyngt niður
í Afganistan og Pakistan og hefur
flugvöllum og vegum meðal ann
ars verið lokað vegna ísingar. Snjó
dýptin hefur farið upp í 2,5 metra.
Talið er að um 100 manns hafi
látið lífið síðastliðna þrjá daga í
Afganistan, þar á meðal 16 manns í
snjóflóði sem féll norðan við höfuð
borgina Kabúl. Þau svæði sem verst
hafa orðið úti eru Badakhshan í
norðausturhluta Afganistans, Nang
ahar í austurhlutanum og Parwan
sem er skammt frá Kabúl.
Þrettán manns hafa látið lífið
í snjóflóðum í NorðurPakistan.
Bærinn Chitral skemmdist mikið í
snjóflóði og vitað er um níu látna,
en talið er að fjöldi manna sé enn
undir snjónum. - eas
Tugir látist í
snóflóðum
Snjónum kyngir niður. nordicPhotoS/aFP
Þetta er ekki
Smarties
Lóa María Magnúsdóttir, formaður Lyfja-
fræðingafélags Íslands.100
manns eru taldir hafa
látið lífið síðastliðna þrjá
daga í Afganistan, þar á
meðal 16 manns í snjóflóði
sem féll norðan við höfuð-
borgina Kabúl.
Á Íslandi eru lyf seld yfir borðið í apótekum, óháð styrk þeirra eða magni. Fréttablaðið/SteFÁn
VERÐ FRÁ: 2.790.000 KR.
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSB R · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS
fiatisland.is
ÞAÐ ÞARF SVO LÍTIÐ TIL AÐ FÁ HEIL IKIÐ FIAT TIPO HLAÐINN AUKABÚNAÐI – EÐ FI ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM FIAT. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR, RJÚKANDI HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI
Bíll á mynd Fiat Tipo 1.4 Lounge 2.990.000 kr.
6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m Á N U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
A
-6
2
7
4
1
C
2
A
-6
1
3
8
1
C
2
A
-5
F
F
C
1
C
2
A
-5
E
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K