Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 6
Virka óskar eftir starfsmanni í hlutastarf
í fataefna- og bútasaumsdeild.
Leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum
einstaklingi á aldrinum 18 ára og upp úr!
Upplýsingar í síma 825 0022,
eða sendið umsókn á dagbjort@virka.is
Virka óskar eftir starfsmanni í hlutastarf
í fataefna- og bútasaumsdeild.
Leitum eftir jákvæðum og þjónustuli rum
einstaklingi á aldrinum 18 ára og upp úr!
Upplýsingar í síma 825 0022,
eða sendið umsókn á dagbjort@virka.is Vinsamlegast athugið - hentar ekki með skóla
Virka óskar eftir starfs anni í hlutastarf
í fat efna- og bútasau sdeild.
Leitu eftir jákv ðu og þjónustulipru
einstaklingi á aldrinu 18 ára og upp úr!
Upplýsingar í sí a 825 0022,
eða sendið u sókn á dagbjort virka.is
Virka óskar eftir starfs anni í hlutastarf
í fataefna- og bútasau sdeild.
Leitu eftir jákv ðu og þjónustuli ru
einstaklingi á aldrinu 18 ára og upp úr!
Upplýsingar í sí a 825 0022,
eða sendið u sókn á dagbjort virka.is Vinsamlegast athugið - hentar ekki með skólaEinnig sumarst rf í boði.
Mörkin 3 • 108 Reykjavík • Sími 568 7477
Útsala-Útsala!!
10-70% afsláttur af
ÖLLUM efnum í búðinni!
Fylgi t með á fésbók Virku.
Opið e ngis virka daga 10-18
náttúra Það liggur nú fyrir að árið
2016 er það hlýjasta frá upphafi
mælinga á Íslandi. Þetta sýna sam-
felldar veðurathuganir í Stykkis-
hólmi nær 171 ár aftur í tímann eða
til haustsins 1845.
Þetta kemur fram í skrifum þeirra
Halldórs Björnssonar, hópstjóra
loftslagsrannsókna, og Trausta Jóns-
sonar, sérfræðings í veðurfarsrann-
sóknum, hjá Veðurstofu Íslands.
Mæliröðin er lengsta órofna
mæli röð á Íslandi og á tímabilinu
lýsa þeir Halldór og Trausti sögu
hitafars í Stykkishólmi, og líklega
á landinu öllu, þannig að veðurfar
var kalt á síðari hluta 19. aldar og
ekki tók að hlýna verulega fyrr en á
þriðja áratug 20. aldar. Hlýindakafl-
anum lauk á sjöunda áratugnum en
þá tók við kuldaskeið fram undir lok
aldarinnar. Síðan þá hefur hlýnað
og eru síðustu ár með þeim hlýjustu
frá því mælingar hófust og síðasta ár
það allra hlýjasta.
Á hnattræna vísu var árið 2016
einnig hlýjasta ár síðan farið var að
mæla hita nægilega víða til þess að
leggja megi traust mat á meðalhita
jarðar, skrifa þeir Halldór og Trausti.
„Eðlilegt er að líta á þá hlýnun
sem orðið hefur í Stykkishólmi
síðan mælingar hófust, sem sam-
bland af áratugalöngum hitasveifl-
um og hnattrænni hlýnun. Meðan
ekki dregur úr hnattrænni hlýnun
er því líklegt að til lengri tíma litið
hlýni áfram í Stykkishólmi þótt
náttúrulegar sveiflur í hitafari kunni
að draga úr eða auka við hlýnun
nokkra áratugi í senn.“
– shá
Hlýjasta árið í 171 árs
sögu veðurmælinga
MEnntUn Börn sem læra á hljóðfæri
eða eru í söngnámi eiga betra með að
muna tölur en önnur börn. Þetta er
niðurstaða rannsóknar á 20 þúsund
nemendum í 330 grunn- og fram-
haldsskólum í Danmörku.
Vísindamennirnir sem stóðu að
rannsókninni segja að ekki sé hægt
að draga þá ályktun að minni barna
verði betra stundi þau nám í tón-
list. Tengsl þar á milli séu hins vegar
greinileg. Ekki er útilokað að börn
með gott vinnuminni leggi frekar
stund á tónlistarnám.
Börn í tónlistarnámi muna betur
öryggisMál Vegagerðin hefur
sett fram þá hugmynd hvort koma
ætti upp viðvörunarkerfi í Reynis-
fjöru og Kirkjufjöru sem byggir á
ölduspákerfi Vegagerðarinnar. Í
krafti kerfisins er mögulegt að spá
fyrir um hættustigið á þessum vin-
sælu ferðamannastöðum nokkra
daga fram í tímann.
Þetta kemur fram í minnisblaði
Sigurðar Sigurðarsonar, strandverk-
fræðings hjá Vegagerðinni, þar sem
því er velt upp hvort ekki sé mögu-
legt að nýta upplýsingarnar sem
þegar liggja fyrir til að vara ferða-
menn við hættulegum aðstæðum.
Hann nefnir að ein leiðin væri að
setja upp ljósabúnað sem varaði
við hættulegum öldum. Eins mætti
hugsa sér að upplýsingarnar nýtist
fyrst og fremst þeim sem eftirlit hafa
á staðnum – lögreglu og/eða björg-
unarsveitum.
Sigurður segir að hugmyndinni
sé varpað fram án þess að það liggi
fyrir á hvers verksviði vinna við slíkt
verkefni ætti að vera og hvaðan fjár-
magn til þess kæmi. Hins vegar sé
kerfið sem byggja ætti á þegar til
staðar hjá Vegagerðinni þó þróun
og uppsetning slíks kerfis, og örygg-
ismál ferðamanna, séu ekki beint á
verksviði stofnunarinnar.
Hættan sem stafar að ferðafólki
á umræddum stöðum hefur verið í
hámæli um nokkurn tíma. Skemmst
er að minnast banaslyss í Kirkju-
fjöru í byrjun janúar – og ótal tilvika
annarra þar sem ferðafólk hefur
verið hætt komið. Þá virðist sem
hefðbundin upplýsingaskilti dugi
ekki til þess að vara við hættunni. Á
sama tíma er vitað að aðdráttarafl
Viðvörunarkerfi má
þróa með ölduspá
Strandverkfræðingur hjá Vegagerðinni leggur til að ölduspákerfi stofnunarinnar
verði nýtt til að setja upp viðvörunarkerfi í Reynis- og Kirkjufjöru. Hægt er að
meta hættustigið þar nokkra daga fram í tímann og gæti nýst viðbragðsaðilum.
Á hátíð tónlistarnemenda.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hefðbundin upplýsingaskilti virðast ekki ná tilætluðum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
svæðisins er mikið og sókn ferða-
manna þangað mun aukast frekar
heldur en hitt.
Sigurður segir að mögulegt sé
að þróa slíkt kerfi innan kerfisins
Veður og sjólag sem rekið er af
Vegagerðinni, þar sem öldur af hafi
verða reiknaðar upp að ströndinni
með hugbúnaði nokkra daga fram
í tímann. Til að reikningar öld-
unnar upp að ströndinni verði sem
nákvæmastir sé þó nauðsynlegt að
gerðar verði góðar dýptarmælingar
framan við ströndina þar sem lögð
verði áhersla á að ná þeim botn-
formum sem hafa áhrif á ölduna. Á
þessu stigi sé ekki ljóst hvort báðar
fjörur séu jafn útsettar fyrir öll
veðurskilyrði.
„Því getur verið æskilegt að koma
upp viðvörunarkerfi þar sem varað
er við hættulegum aðstæðum, kerfi
sem getur metið hættustigið hverju
sinni. Það þarf að finna út við hvaða
aðstæður brim og öldugangur er
hættulegur og við hvaða aðstæður
það er síður hættulegt,“ segir Sig-
urður. svavar@frettabladid.is
Veðurmælingar hófust í Stykkishólmi haustið 1845 og aldrei hefur verið hlýrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Snoðað sofandi
Nú fer fram Thaipusam-hátíðin í Kúala Lúmpúr. Á hátíðinni eru hinir heilögu Batu-hellar heimsóttir. Þeir
sem taka þátt í skrúðgöngunni þangað klæðast skrúðklæðum. Þetta litla barn var svo snoðað samkvæmt
fornum venjum. Það virtist þó ekki kippa sér mikið upp við hamaganginn. Thaipusam-hátíðin er mikil-
vægur viðburður í trúarlífi Tamíla á Indlandi, Srí Lanka, í Indónesíu og víðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTy
Því getur verið
æskilegt að koma
upp viðvörunarkerfi þar sem
varað er við hættulegum
aðstæðum, kerfi sem getur
metið hættustigið hverju
sinni
Sigurður Sigurðs-
son, strandverk-
fræðingur hjá
Vegagerðinni
6 . f E b r ú a r 2 0 1 7 M á n U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
A
-7
6
3
4
1
C
2
A
-7
4
F
8
1
C
2
A
-7
3
B
C
1
C
2
A
-7
2
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K