Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 29
Í dag
19.40 Granada - Las Palmas Sport 2
21.00 Messan Sport
19.30 Grótta - Haukar Seltjarnarn.
19.30 Stjarnan - Fram Mýrin
19.30 Valur - Afturelding Valshöll
19.30 ÍBV - Selfoss Vestmanneyjar
Mark í sex Mánuði í röð
Fótbolti Gylfi Þór Sigurðsson
skoraði í gær í fyrsta leik Swansea í
febrúarmánuði og hann hefur þar
með skorað í sex mánuðum í röð í
ensku úrvalsdeildinni en því hefur
enginn annar íslenskur knatt-
spyrnumaður náð í þessari
skemmtilegustu deild í Evrópu .
Mánaðarmótin febrúar og
janúar er annars frábær tími
fyrir íslenska landsliðs-
manninn því annað árið í
röð er hann að ná því að
skora í þremur deildar-
leikjum í röð á þessum
tíma.
Gylfa tókst ekki
að skora í þremur
deildarleikjum
Swansea í ágúst en
opnaði markareikning
sinn á tímabilinu í leik á
móti Chelsea 11. septem-
ber. Gylfi hefur nú skorað mark í
september (1), október (1), nóvem-
ber (2), desember (1), janúar (2) og
febrúar (1).
Fyrir þetta tímabil hafði Gylfi
mest náð að skora í fjórum
mánuðum í röð. Eiður Smári
Guðjohnsen náði heldur ekki
að skora í meira en fjórum
mánuðum í röð.
Gylfi náði ekki að skora
í maí, síðasta mánuði
síðasta tímabils, en
hafði skoraði hinsveg-
ar tvö mörk í fyrstu
fjórum mánuðum
ársins 2016. Hann
hefur því skorað í
tíu af síðustu tólf
keppnismánuðum
ensku úrvals-
deildarinnar. -óój
Magnaður Marcos Alonso fékk traustið hjá Conte
Chelsea er áfram með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal um helgina. Fyrrum afgangsmaður úr knattspyrnu-
akademíu Real Madrid er ein óvæntasta stjarna deildarinnar á tímabilinu en Marcos Alonso er eins og skapaður fyrir 3-4-3 leikkerfi Ítalans Antonio Conte.
að vera varaskeifa fyrir Cesar Azpi-
licueta sem hafði leikið í vinstri bak-
verðinum fram að því.
Annað kom þó á daginn. Eftir
dapurt gengi Chelsea framan af
ákvað knattspyrnustjórinn Antonio
Conte að breyta um leikkerfi. Hann
setti Alonso inn sem vængbakvörð
vinstra megin þar sem Spánverjinn
fékk meiri ábyrgð sóknarlega en oft
áður. Alonso er sterkur í loftinu auk
þess að vinna ófáar tæklingar í vörn-
inni og hefur spilað afar vel í kerf-
inu sem Conte notaði með góðum
árangri hjá Juventus á sínum tíma.
Alonso hefur verið í byrjunar-
liðinu í síðustu 18 leikjum Chelsea
í deildinni og er augljóst að Conte
veðjaði á réttan hest þegar hann
fékk Alonso til liðs við sig.
Erfið staða að spila
Alonso viðurkennir að það kosti
mikla orku að leika þá stöðu sem
hann gerir í Chelsea liðinu. Hann
þurfi að hlaupa töluvert meira
en áður því hann taki meiri þátt í
sóknarleiknum en hann er vanur
auk þess að sinna varnarvinnunni.
Victor Moses leikur sömu stöðu
hægra megin í kerfi Conte.
„Ég fer í sóknina um það bil átta
sinnum í hverjum leik miðað við
fjórum sinnum áður. Í þessari stöðu
þarf ég að vera á fjærstönginni ef
boltinn kemur frá kantinum hægra
megin. Það er erfitt að halda sér
ferskum en ég held að við hjálpum
liðinu mikið, ég verð að halda mér
í formi,“ sagði Alonso í viðtali fyrir
skömmu.
Þeir Alonso og Moses hafa skorað
7 mörk samtals í deildinni og veitt
eitraðri sóknarlínu liðsins mikil-
vægan stuðning. Það virðist lítið
geta stoppað bláliða undir stjórn
Conte sem fagnaði sigrinum gegn
Arsenal líkt og titillinn væri í höfn.
– sjj
Það er erfitt að
halda sér ferskum
en ég held að við hjálpum
liðinu mikið. Ég verð að
halda mér í
formi.
Marcos Alonso
Marcos Alonso hefur
skorað þrjú mörk í síðustu
fjórum deildarleikjum og
þau komu á móti liðum sem
enduðu í tveimur efstu
sætunum á síðustu leiktíð
eða meisturum Leicester (2)
og silfurliði Arsenal (1).
Marcos Alonso horfir hér á eftir boltanum fara í mark Arsenel en Spánverjnn hafði áður ýtt við Arsenal-manninum Hector Bellerin. Bellerin missti við það jafnvægið eins og sést á þessari mynd hér að ofan. Markið fékk að standa og Chelsea vann. NordiCPHotoS/GEtty
Haukar - Quintus 26-29
Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 12,
Guðrún Erla Bjarnadóttir 6, Maria Ines Da
Silve Pereira 5, 4Karen Helga Díönudóttir
1, Sigrún Jóhannsdóttir 1, Ragnheiður
Ragnarsdóttir 1.
Quintus - Haukar 22-24
Mörk Hauka (skot): Ramune Pekarskyte 11
(20), Guðrún Erla Bjarnadóttir 4/1 (4/1), Erla
Eiríksdóttir 4 (6), Maria Ines De Silve Pereira
3 (9), María Karlsdóttir 1 (1), Karen Helga
Díönudóttir 1 (6), Ragnheiður Sveinsdóttir
(1), Sigrún Jóhannsdóttir (1).
Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir 9
(31/1, 29%) .
Hraðaupphlaup: 1 ( Maria Ines De Silve
Pereira 1) - Virto / Quintus 6.
Utan vallar: 10 mínútur - Quintus 14 mín.
Virto / Quintus vann samanlagt 51-50 og er
komið í átta lið úrslit keppninnar.
Nýjast
Áskorenda kepppni Evrópu kv.
„Til hamingju með að
komast á EM“„Já takk ég er
búin að liggja hérna ælandi
síðasta korterið“ Classic
frjálsar, elska þessa íþrótt.
Anna Pálsdóttir
@annapalsd
Njarðvík - Skallagrím. 60-73
Stigahæstar: Carmen Tyson-Thomas 35/26
frák./7 stolnir, Linda Þórdís Róbertsdóttir
11/8 frák.- Tavelyn Tillman 22/5 frák./6
stoðs., Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13/7
frák./5 stoðs., Fanney Lind Thomas 13,
Kristrún Sigurjónsdóttir 10, Ragnheiður
Benónísdóttir 8/8 frák., Jóhanna Björk
Sveinsdóttir 5/8 frák./6 stoðs..
Valur - Keflavík 54-60
Stigahæstar: Mia Loyd 29/19 frák./5 stolnir,
Elfa Falsdottir 7, Hallveig Jónsdóttir 6 - Erna
Hákonardóttir 16, Ariana Moorer 12/10
frák./7 stoðs., Emelía Ósk Gunnarsdóttir 11,
Birna Benónýsd. 8, Thelma Dís Ágústsdóttir
5, Þóranna Kika Hodge-Carr 4, Salbjörg
Ragna Sævarsdóttir 4/17 frák./11 varin.
Stjarnan - Haukar 67-59
Stigahæstar: Danielle Rodriguez 35/11
frá./6 stoðs., Ragna Margrét Brynjarsdóttir
14/8 frák., Bríet Sif Hinriksdóttir 12 - Nas-
hika Wiliams 18/19 frák./3 varin, Rósa Björk
Pétursd.14, Sólrún Inga Gíslad. 8, Þóra
Kristín Jónsd. 7, Dýrfinna Arnardóttir 7 .
Snæfell - Grindavík 90-59
Stigahæstar: Aaryn Ellenberg-Wiley
26/10 frák., Gunnhildur Gunnarsdóttir
24, Berglind Gunnarsdóttir 9, Anna Soffía
Lárusdóttir 5, María Björnsdóttir 5, Helga
Hjördís Björgvinsdóttir 5 - María Ben Er-
lingsdóttir 17, Ingunn Embla Kristínardóttir
17, Petrúnella Skúladóttir 7.
Efri
Skallagrímur 32
Snæfell 30
Keflavík 30
Stjarnan 22
Neðri
Valur 16
Njarðvík 14
Haukar 10
Grindavík 6
dominos-deild kvenna
FH - Akureyri 33-27
Markahæstir: Einar Rafn Eiðsson 9, Óðinn
Þór Ríkharðsson 8, Ásbjörn Friðriksson 7,
Ágúst Birgisson 3 - Mindaugas Dumcius 9,
Bergvin Gíslason 7, Kristján Orri Jóhanns-
son 3, Arnór Þorsteinsson 3. Annar sigur
FH-liðsins á þremur dögum sem er nú
aðeins tveimur stigum frá toppsætinu.
Efri
Afturelding 24
FH 22
Haukar 22
Valur 18
ÍBV 18
Neðri
Selfoss 16
Grótta 13
Fram 13
Akureyri 13
Stjarnan 13
olís-deild karla
Frjálsar Aníta Hinriksdóttir
bætti Íslandsmetið í 800 metra
hlaupi kvenna innanhúss í sjö-
unda sinn á laugardaginn en
hún stóðst pressuna sem var
sett á hana en hlaup Anítu var
hápunkturinn á Frjálsíþrótta-
keppni Reykjavíkurleikanna.
Aníta eignaðist Íslandsmetið
í 800 metra hlaupi innanhúss
fyrir rétt rúmum fimm árum
þegar hún sló tæplega 35 ára
met Lilju Guðmundsdóttur. Lilja
hljóp á 2:09,72 mínútum árið
1977 en Aníta var þarna strax
búin að bæta metið um næstum
því fjórar sekúndur. Nú fimm
árum síðar hefur hún skafið
aðrar fjórar sekúndur af metinu.
Aníta hljóp á 2:01,18 mínútum
um helgina. Hún var búin að
bæta þetta met 2012, 2013, 2014
og 2015 en nú voru að verða tvö ár
síðan hún bætti það síðast.
Sigurbjörn Árni Arngrímsson
lýsti hlaupinu ekki bara í sjón-
varpinu heldur líka í hátalara-
kerfi Laugardalshallarinnar. Það
leit ekki út fyrir að þetta væri met-
hlaup í byrjun.
Kannski má segja sem svo að
lýsing Sigurbjörns Árna hafi hrein-
lega kveikt í Anítu því hún átti
frábæran endasprett í hlaupinu.
„Þetta er svona í það rólegasta
kannski en sjáum hvað gerist,“
lýsti Sigurbjörn Árni en svo fór
íslenska hlaupadrottningin af
stað. „Aníta er komin á fleygiferð
og sjáum til hvað hún gerir hér.
Hedda Hynne fylgir henni eftir
og virðist vera sú eina sem á ein-
hvern möguleika í hana, sagði
Sigurbjörn Árni og var kominn á
fullt eins og hlaupararnir. „Þvílíkir
seinni 400 metrar. Þær áttu aldrei
séns, þvílíkt hlaup hjá Anítu Hin-
riksdóttur,“ sagði Sigurbjörn og
allir í salnum gátu tekið undir það.
Aníta var ánægð í sjónvarps-
viðtali strax eftir hlaupið. „Það er
pressa að vera á heimavelli en ég
var ánægð með hvernig ég tækl-
aði það.Það kom hrikalegur andi
með heimaáhorfendunum. Þetta
var jafnt hlaup en ég var sérstak-
lega ánægð með síðasta hringinn.
Það hefur stundum verið minn
akkillesarhæll,“ sagði Aníta í við-
tali í útsendingu Sjónvarpsins frá
mótinu en Aníta lítur vel út eftir
æfingaferðina til Suður-Afríku.
„Það hefur gengið mjög vel að
æfa. Þetta hefur verið öðruvísi
uppbygging eins og við var að
búast. Við erum meira í þoli núna
og grunn fyrir sumarið. Það er
minna af þessum hrikalega erfiðu
innanhússæfingum. Ég er búin að
vera í háfjallaþjálfun þannig að
lungun eru vonandi orðin risa-
stór,“ sagði Aníta.
Hún er á leiðinni í EM í Belgrad
og verður ekki sú eina því Arna
Stefanía Guðmundsdóttir náði
lágmarkinu í 400 metra hlaupi á
mótinu. „Það er snilld að fá Örnu
Stefaníu með á EM. Við erum
vanar að vera saman í herbergi og
gerum hvorri annarri mjög gott,“
sagði Aníta. EM í Belgrad fer fram
3. til 5. mars. – óój
lungun orðin risastór
Aníta Hinriksdóttir kemur hér í mark á nýju Íslandsmeti. FréttABLAðið/HANNA
Chelsea hefur unnið 16
af 18 leikjum með Marcos
Alonso í byrjunarliðinu.
s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 13M á n u D a g u r 6 . F e b r ú a r 2 0 1 7
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
A
-5
8
9
4
1
C
2
A
-5
7
5
8
1
C
2
A
-5
6
1
C
1
C
2
A
-5
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K