Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 06.02.2017, Qupperneq 30
Þau helgina áttu Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuboltakona úr Keflavík Salbjörg Ragna Sævarsdóttir varði ellefu skot frá Valskonum í sigri Keflavíkur í Valshöllinni á Hlíðarenda í Domino´s deild kvenna í körfubolta um helgina en aðeins ein kona hefur náð að verja fleiri skot í einum leik í efstu deild kvenna. Signý Hermanns- dóttir varði 12 skot í leik árið 2008 og var því Salbjörg aðeins einu vörðu skoti frá því að jafna það met. Salbjörg varði flest skotanna sinna frá bandaríska leikmanni Valsliðsins. Salbjörg tók einnig 17 fráköst í leiknum þar af 15 þeirra í vörn. Hennar orka fór fyrst og fremst í vörnina en hún tók bara fjögur skot í leiknum og skoraði úr tveimur þeirra, samtals fjögur stig. Viðar Örn Kjartansson knattspyrnumaður hjá Maccabi Tel Aviv Viðar tryggði Mac- cabi Tel Aviv 1-0 sigur á toppliði Hapoel Be’er Sheva um helgina með sínu ellefta deildarmarki á tímabilinu. Viðar er þar með orðinn marka- hæstur í ísraelsku deildinni og Maccabi Tel Aviv minnkaði forskot Hapoel í fimm stig. Viðar hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm leikjum og Maccabi hefur náð í 13 af 15 mögulegum í þeim. Arna Stefanía Guðmundsdóttir spretthlaupari úr FH Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr FH setti mótsmet í 400 metra hlaupi í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkur- leikanna um helgina og náði um leið lágmarki fyrir Evrópumótið í Belgrad sem fer fram 3. til 5. mars næstkomandi. Arna Stefanía hljóp 400 metrana á 53,92 sekúndum sem er Íslandmet innanhúss hjá 20 til 22 ára en hún bætti Íslandsmet Anítu Hinriksdóttur sem hljóp á 54,21 sekúndum í febrúar í fyrra. Arna Stefanía hafði best hlaupið á 54,40 sekúnd- um áður. „Ég er búin að liggja hérna ælandi síðast korterið,“ viðurkenndi Arna Stefanía í sjónvarpsviðtali á RÚV eftir hlaupið en hún gaf allt í þetta og komst inn á EM. „Ég átti von á betra hlaupi en í fyrra en kannski ekki alveg strax undir EM-lágmarki. Það er æðislegt. Ég held að þetta verði miklu betri núna en í fyrra,“ sagði Arna Stefanía. Handbolti Haukakonur voru ótrú- lega nálægt því að komast áfram í Áskorendabikar kvenna um helgina eftir tvo jafna og spennandi leiki við hollenska liðið Virto/Quintus. Á endanum var Haukaliðið aðeins einu marki frá því að komast áfram. Haukaliðið varð því síðasta íslenska liðið til þess að detta út úr Evrópu- keppninni í vetur. Þær sofnuðu örugglega margar seint í nótt enda var sæti í átta liða úrslitum í sjón- máli þegar allt rann út í sandinn á lokamínútum leiksins. „Ég er hundsvekktur. Við áttum að vera fyrir löngu búin að tryggja þetta. Ég er hundfúll,“ sagði Óskar Ármannsson við íþróttadeild 365 eftir leikinn. „Við erum í fjórar mín- útur einum fleiri en við sækjum ekki á markið. Við köstum boltanum upp í palla og fáum hraðaupphlaup í bakið. Það er dýrt í svona leik þar sem hvert einasta mark og hver ein- asta sókn skiptir máli,“ sagði Óskar. Hollensku stelpurnar unnu fyrri leikinn 29-26 á laugardaginn og þurftu því mun betri leik í gær- kvöldi. Haukakonur sýndu úr hverju þær eru gerðar og tókst að koma sér í lykilstöðu í seinni leiknum aðeins til að missa frá sér einvígið frá sér í lokin. Seinni leikurinn var skráður heimaleikur hollenska liðsins og þar sem mun fleiri mörk voru skoruð í fyrri leiknum urðu Haukastelpurnar að vinna með fjórum mörkum. Haukaliðið var fimm mörkum yfir, 20-15, þegar tólf mínútur voru eftir og allt leit út fyrir að hollensku stelpurnar væru að fara á taugum. Haukakonur náðu ekki að nýta sér það og bæta við forystuna og hollenska liðinu tókst að vinna sig Hársbreidd frá sæti í átta liða úrslitum Ramune Pekarskyte skoraði 23 mörk í leikjunum um helgina. FRéttablaðið/ERniR aftur inn í leikinn. Haukar fengu þó tækifæri til að tryggja sér sigur- inn í einvíginu þegar liðið fór í sókn þremur mörkum yfir og mínúta eftir af leiknum. Í síðustu sókninni þorði enginn leikmaður að taka af skarið og má segja að skortur á hugrekki og dráps eðli hafi svikið Haukana í síð- ustu sókninni líkt og í kaflanum fyrr í hálfleiknum þegar liðið fékk tæki- færi til að gera út um leikinn manni fleiri í fjórar mínútur. Ramune Pekarskyte átti samt tvo magnaða leiki um helgina, skoraði tólf mörk í fyrri leiknum og ellefu mörk í gær. 23 mörk á rétt rúmum sólarhring er ekki amaleg frammi- staða hjá þessari 36 ára gömlu stór- skyttu. „Þetta var flottur leikur en það vantaði upp á lokin, við hefðum átt að klára þetta, Ég er samt stolt af stelpunum. Þetta var einn okkar besti leikur í vetur. Vonandi peppar þetta liðið upp og við náum að komast ofar í deildinni,“ sagði Haukakonan Ragnheiður Sveins- dóttir við íþróttadeild 365 eftir leikinn. – óój 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á n U d a G U r14 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 0 6 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 A -5 3 A 4 1 C 2 A -5 2 6 8 1 C 2 A -5 1 2 C 1 C 2 A -4 F F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.