Kvennalistinn - 01.06.1985, Qupperneq 8
8
— Haskolamenntaðir karlar eru
Suðurlandsangi Samtaka um
kvennalista var stofnaður þann
10. nóvember s.l. á fundi í
Tryggvaskála á Selfossi. í fram-
haldi af honum voru stofnfundir
haldnir á Hellu á Rangárvöllum
og í Vík í Mýrdal. Þann 16. febr-
úar s.l. var svo haidinn félags-
fundur í Gamla Iðnskólanum á
Selfossi, þar sem aðallega var
n.Ltt um framtíðina, hvernig haga
skyldi starflnu. har var kosin
framkvæmdanefnd, sem í eru
þær Kristjana Sigmundsdóttir,
Sigrtður Jensdóttir, Guðrún S.
Þórarinsdóttir, Svanhildur Jóns-
dóttir og Nanna Þorláksdóttir.
Upp úr því hafa kvennalistakon-
ur hittst í Árseli á laugardags-
morgnum og rabbað saman yfir
kaffibolla, en eins og gefur að
skilja eru það aðallega konur frá
Selfossi og nágrenni. Það gerir
starfið vissulega erfiðara, hvað
vegalengdir eru miklar í kjör-
dæminu, kannski verður eðlileg-
ast að hópar kvenna starfi hér
og þar, eftir því sem best hentar,
og þá að þeim málum sem helst
brenna á konum þar um slóðir.
Kvennalistakonur af suðvestur-
horninu hafa verið frábærlega
duglegar að koma á fundi til
okkar á Suðurlandi, til dæmis
komu fjórar konur á kynningar-
fund á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi, 27. apríl s.I. Fundurinn
var haldinn til að kynna konum
í uppsveitum Árnessýslu kvenna-
listann, en ekki stður til að
kynnast viðhorfum þeirra og
baráttumálum. Má hiklaust segja
að það hafi tekist vel og að allar
hafi orðið einhverju fróðari,
enda var þetta hinn skemmtileg-
asti fundur. Jóhanna María l.ár-
usdóttir sagði frá aðdraganda að
stofnun samtakanna, fyrstu kosn-
ingabaráttunni og starfinu yfir-
leitt, Sigríður Dúna sagði frá
þingstörfum og gerði grein fyrir
helstu baráttumálum kvennalist-
ans á þingi. Kristjana Signtunds-
dóttir sagði frá hclstu baráttu-
málurn kvenna á Selfossi og í
þorpunum við ströndina en þad
eru atvinnumálin og launamálin.
Urðu fjörugar umræður um þessi
mál og flciri. Virðast góðar horf-
ur á að suðurlandsanginn vaxi
og dafni og teygi sig út um allar
sveitir.
Guðrún Sveinsdóttir.
með 47,0% hærri launen háskólamenntaðar konur fyrir dagvinnu. Fyrir mæld og ómælda yfirvinnu eru þeir með 80,0% hærri laun
ungum stúlkuirí
,,Ég er mjög uggandi um framtíð barna í dag, sérstak-
lega stelpna, því mér finnst allt stefna í það að fyrirtæki
rísi upp með hjálp ódýrra vinnukrafta, þ.e.a.s. kvenna
sem ekki hafa sérmenntun“. Þetta segir Kristjana Sig-
mundsdóttir en hún flutti einmitt erindi um þetta efni
á ráðstefnu sem haldin var á Selfossi í maí s.l. Yfirskrift
ráðstefnunnar var ,,Árið 2000“ og þar var fjallað um at-
vinnumál og lífskjör framtíðarinnar. Að ráðstefnunni
stóðu Verkalýðsfélagið Þór, Alþýðusamband Suður-
lands og Neytendafélag Selfoss og þrír karlar höfðu
framsögu. Aldrei fór það þó svo að engin kona fengi að
tjá sig um þetta efni, því fulltrúum flokkanna var boðið
að tala og þar með Kvennalistanum. Fulltrúi hans,
Kristjana, flutti eftirfarandi erindi á þessari ráðstefnu:
Það er ótrúlega stutt í næstu aldamót, ekki nema fimmtán ár. Eins
og konum er títt að gera, miða ég margt við aldur barna minna og
því hugsa ég í dag til dóttur minnar, sem er tíu ára núna en verður
tuttugu og fimm um aldamótin. í fljótu bragði sé ég ekki bjarta fram-
tíð í augsýn fyrir stelpur á hennar aldri. Eða getur sirkuslífið í at-
vinnu-, launa- og skólamálum breyst svo mikið á þessum fimmtán
árum á meðan allir eru að revna að sigra í karlakeppninni um það
hver sé stærstur, mestur og bestur?
En lítum fimmtán ár aftur í tímann og skoðum möguleika stelpn-
anna þá. Fyrir fimmtán árum var landsprófssían enn þá til og stúlkur,
sem komust í gegn um hana fóru í menntaskóla og síðan flestar í há-
skóla. Þær sem höfðu gagnfræðapróf gátu fengið inngöngu í ýmsa
skóla, t.d. í kennaraskóla, fóstruskóla, hjúkrunarskóla, ljóðsmæðra-
skóla. Þær gátu þannig aflað sér góðrar starfsmenntunar.
Hvaða möguleika á stúlkubarnið í dag, þegar landsprófssían er
afnumin og allir EIGA að hafa sama rétt til náms. Lítum á það:
Ef liana langar til að fá starfsmenntun í hinum hefðbundnu
kvennagreinum, t.d. ífóstrun, hjúkrun eða ljósmóðurstörfum, verð-
ur hún fyrst að ljúka stúdentsprófi áður en hún kemst í sérnám.
í
Aukin menntun
hefur ekki fært okkur hærri
Strákurinn, jafnaldri hennar, sem aflar sér sérmenntunar í hefð-
bundnum karlagreinum í iðnaði, getur lokið sínu námi á meðan hún
er enn á stúdentsbrautinni. Hann getur verið kominn á gott kaup
þegar hún er að byrja sitt sérnám. Langi hana til að verða ljósmóðir,
dugir ekki minna en fjögurra ára nám í hjúkrunarfræðum fyrst til
þess að fá svo aðgang að ljóðsmæðraskólanum.
Ef stúlkan hins vegar fer ekki í framhaldsskóla eftir grunnskóla-
próf, heldur fer í vinnu við þjónustu eða framleiðslustörf, býður
hennar óöryggi í atvinnumálum vegna sérmenntunarleysis og svo lág
laun. Hún giftist e.t.v. ung eignast barn (eða börn) og þá bætist við
hinn ógnvekjandi vandi í húsnæðismálum og óöryggi í dagvistun.
Niðurstaðan er því þessi: Ef stúlkan á ekki mjög auðvelt með nám
eða hefur ekki áhuga á mjög löngu námi, hefur hún engan mögu-
leika á sérmenntun sem veitir henni atvinnuöryggi að einhverju
marki. Og um laun kvenna mætti svo tala í allan dag, þvf það er sama
hvort konan fer menntaveginn eða ekki — hún er alltaf á lágum laun-
um miðað við karlmenn, ekki síst ef talað er um hinar hefðbundnu
kvenna- og karlagreinar. Ljósmóðir hefur sex ára háskólanám að baki
rétt eins og læknirinn.
Ég get ekki annað en kallað þetta aðför að ungum stúlkum og ef
þessi þróun heldur áfram er ekki birtu að sjá yfir aldamótaárinu fyrir
ungar konur.
En hvað er til ráða? Víst má segja að enginn banni stúlkum að læra
t.d. járnsmíði, en hefðin breytist ekki á einum degi og varla á fimm-
tán árum og því eigum við ekki að halda okkur að kvennagreinun-
um? Maður er ekki fyrr búin að fagna því, að allir eigi að hafa sama
rétt til náms. Svo kemur þessi „bilun'* í ljós í menntunarmálum
kvenna. Hver er ástæðan? Liggur hún í skólakerfinu? Vantar meiri
námsráðgjöf fyrir stúlkur?
Enginn vafi er á því að menntun er máttur og góð menntun er undir-
staða atvinnulífsins og þjóðlífsins, en það er of mikið ósamræmi á
milli aukinnar menntunarkröfu til kvenna og minnkandi launa. Við
það verður ekki unað lengur.
Það verður kannski þjóðhagslega hagkvæmt að binda konur heima
svo mönnum (körlum?) sé kleift að stunda „arðbæra, nytsama
vinnu“?!
KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA
Þjónustumiðstöðin Skaftafelli
í versluninni: allar nauðsynlegar matvörur, búsóhöld,
vefnaðarvörur o.fl.
í veitingasölunni: Heitur matur og grillréttir
Opið fró kl. 9—22 alla daga.
Þjónustumiöstöö Kaupfélogs
Austur-Skaftfellinga
Þjóögaröinum, Skaftafelli
inlerRent bilaleigan býður yður fulltryggöan bil á
næ’stum hvaöa flugvelli erlendis sem er - nýja bíia
af þeirri stærö. sem hentar yður og fjofskyldu yöar
Vér útvegum yöur afslatt - og jafnvel er leiguupp-
hæöin lægri (ekkert kilómetragjald) en þér þurfiö
aö greiða fyrir flutning á yðar bíl meö skipi - auk
þess hafiö þér yöar bíl aö brottfarardegi hér heima.
Veröi óhapp. tryggir interRent yöur strax annan bíl,
i hvaöa landi sem þér kunniö aö vera staddur i.
interRent er stærsta bílaleiga Evrópu, vér veitum
yöur fúslega allar upplýsingar.
interRent
interRent á (slandi / Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar: 86915, 31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 - Símar: 21715, 23515
Telex: 2 3 3 7 IR ICE IS