Kvennalistinn - 01.06.1985, Blaðsíða 15

Kvennalistinn - 01.06.1985, Blaðsíða 15
-HÚSNÆÐISÞANKAR 15 Frá hendi náttúrunnar er mannskepnan ófullkomn- ari sniglinum að því leiti, að vera ekki sköpuð með húsið sitt á bakinu. Þetta hefur valdið henni ómældum vangaveltum og vandræðum Því að þrátt fyrir þessa vönt- un teljum við það eina af frumþörfunum að hafa húsaskjól. Við teljum það sjálfsögð mannréttindi. Kröfurnar um hvernig þess- ari frumþörf er fullnægt eru afar mismunandi. Fara þær m.a. eftir því hvar á jarðar- kringluna við erum sett nið- ur. Lang algengasta hýbýlis- formið mun vera einhvers- konar hús, byggð úr hinum aðskiljanlegustu efnum. Upphaflega munu tré og torf hafa verið algengustu byggingarefnin hér á landi. Seinna náði torfið yfir- höndinni þar sem tré var að mestu uppurið. Svo sem al- kunna er, er steinsteypa nú langalgengasta efnið. Form- ið er síðan mismunandi, stærð og íburður fer eftir efnum og ástæðum. AÐ BYGGJA? Um langt árabil hefur stór hluti íslendinga byggt eigið húsnæði að meira eða minna leyti sjálfir. En steinsteypa er okkur oft mikill ör- lagavaldur. Hér er lítil saga um hvernig húsnæðismálin ganga fyr- ir sig, nokkuð dæmigerð, tel ég: Jón og Gunna kaupa sér íbúð í blokk. Þau vinna myrkranna á milli til að eiga fyrir íbúðinni sem þau fá reyndar afhenta fokhelda. Þau eyða öllum ,,frístundum“ í að klára hana. Svo stækkar fjölskyld- an. Það er keypt lóð undir raðhús eða einbýli og enn fara allar frí- stundir í að hreinsa mótatimbur, mála, pússa, smíða og fl. og fl. Og enn vinna Jón og Gunnar myrkr- anna á milli til að fjármagna æfin- týrið. Og tíðarandinn klappar þeim á kollinn, þau eru svo dugleg að koma sér áfram. Því það er jú einmitt þetta sem gildir í okkar samfélagi. En er þá ekki allt í himnalagi? Jú fyrir suma er þetta vissulega í lagi, einstaka hafa jafnvel gaman af öllu saman. En mig grunar að ailflestir líti á þetta sem einskonar þegn- skyldu. Ég þekki nefnilega nokkr- ar Gunnur og Jóna sem hafa feng- ið magasár, farið yfirum á taugum. Hjónabönd sem hafa kiknað und- an álaginu sem þjóðarsportinu fylgir. Mörg börn sem verða fórn- arlömb óviðunandi aðstæðna, taugaveiklaðra sívinnandi for- eldra, með stanslausar fjárhags- áhyggjur og engan tíma til að sinna þeim, sem landið eiga að erfa. Fyrr en einn góðan veðurdag að katastrófan er liðin hjá og „nú geta þau farið að hafa það gott“. Húsi næstum skuldlaust. En hvað kemur í ljós? Börnin eru farin. Jón og Gunna þekkjast ekki, umræðu- efni undanfarinna 15—20 ára hef- ur verið byggingar, innréttingar, lán, víxlar og fleira þess háttar. Um hvað eiga þau að tala? Svo er Jón orðinn alki og Gunna þjáist af þunglyndi. Vissulega er það of mikil ein- földun að skella allri skuldinni á húsnæðisbaslið eitt saman, en það á sinn þátt í örlögum Jóns og Gunnu og mig grunar að sá þáttur sé býsna stór. AÐ LEIGJA „Allir íslendingar vilja EIGA húsnæði". Þessa fullyrðingu höf- um við oft heyrt. En hver skyldi vera ástæðan? Erum við kannske öll einskonar Bjartar í Sumarhús- um? Viljum við vera kóngar í ríki okkar? Eða erum við hreinlega fé- lagslega vanþroskuð? Eða hvaða aðra möguleika höfum við? Það er nú það. Þegar Jón og Gunna, ung og ást- fangin ákváðu að rugla saman reit- um og fara að búa, vaknaði spurn- ingin um hvar þau gætu búið. Hjá foreldrunum? Jafnvel þótt aðstæður séu sæmilegar (sem er sjaldnar en ekki) er það ekki fýsi- legur kostur ungu fólki sem vill standa á eigin fótum. Nei þau ákváðu að leigja úti í bæ (höfðu reyndar ekki annan kost). Eftir margra mánaða leit, tugi ósvaraðra umsókna og tilboða, bauðst þeim pínulítil kjallaraíbúð, töluvert niðurgrafin. En þau voru alsæl, enda ekki kröfuhörð, og slógu víxillán fyrir eins árs fyrir- framgreiðslu. Eftir árið var íbúðin seld og hófst þá sama píslargangan, tugir umsókna, önnur kjallaraíbúð, nýtt víxillán og svo framvegis. Svona gekk þetta í fjögur ár, börnin voru orðin tvö og Jón og Gunna búin að flytja fimm sinnum. Og svei mér þá ef þau var ekki farið að dreyma um að eignast íbúð. . . Skyldi þetta vera ein af ástæðunum fyrir því að íslendingar vilja EIGA íbúð? Skyldi dæmið hafa orðið öðrúvísi ef Gunna og Jón hefðu haft mögu- leika á að kaupa sér leigurétt og fengið íbúð, kannske eftir ein- hvern biðtíma, getað svo búið þar svo lengi sem þau listi án þess að eiga á hættu að vera flæmd út? Skyldi draumurinn um eigin íbúð þá hafa vaknað? ANNARS STAÐAR En er einhverju hægt að breyta? Það er hætt við að við Frónbúar séum farnir að líta á húsnæðisbasl- ið sem eðlilegan, óumbreytanleg- an hlut. Líkt og maður gerir sér ýmislegt að góðu þekkir maður ekki annað. Og þurfa ekki allir að hafa fyrir lífinu? Vinna fyrir mat og húsnæði. Ef við lítum í kringum okkur t.d. til hinna Norðurlandanna, sjá- um við að málin standa öðru vísi og að þar getum við ýmislegt lært. Það er raunar skrýtið hversu ósnortin við erum af góðum áhrif- um frá frændum vorum sem hafa áratuga reynslu á þessu sviði. Þar og reyndar víðar eru hefðir fyrir ýmsum húsnæðisformum sem allt of langt mál yrði að rekja hér. Bæði leigu og eignarhúsnæði. Og hvers vegna skyldi ekki vera grundvöllur fyrir slíku hér. Mér er spurn. EIGIÐ HÚSNÆÐI Þar er hægt að eignast íbúðir með því að borga hóflega útborg- un og síðan fastar mánaðargreiðsl- ur. Hluta af þessu eignast fólk og fær til baka ef það selur. Mismun- urinn fer í rekstur húsnæðisins. Sem dæmi um hvernig þetta getur virkað er hér lítil saga uji$ vin minn sem fyrir skömmu keypti sér 45m2 íbúð í miðborg Kaupmanna- hafnar. Húsið er æfagamalt en vel við haldið og búið öllum nýtísku þægindum. í útborgun greiðir hann sem svarar til 37 þúsund ísl. krónum. Síðan borgar hann 15 þúsund krónur (ísl) á mánuði. Nokkuð há mánaðargreiðsla fyrir ekki stærri íbúð, en innifalið í þeirri upphæð er rafmagn, hiti og allt viðhald á húseigninni. LEIGUHÚS Það eru líka til leigufélög þar sem fólk getur keypt sér búsetu- rétt. Reyndar hefur það íbúða- form talsvert verið kynnt hér að undanförnu og en sem kunnugt er hefur hópur fólks sem ekki getur eða vill taka þátt í darraðardansi eignarstefnunnar og þarf eða vill leigja, stofnað með sér samtök. Þarna er hópur fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að leysa hið gífurlega vandamál sem skortur á leiguhúsnæði er. Þau hafa farið fram á fyrirframgreiðslu stjórnvalda, fengið loforð á loforð ofan, án þess að neitt hafi verið efnt, ennþá. Leiguhúsnæði er nauðsynlegt og hefur reyndar sem valmöguleiki ýmsa kosti fram yfir eignarhúsnæði. Það auðveldar fólki að flytjast á milli staða. En eins og allir þekkja getur húseign virkað sem átthagafjötrar sum- staðar á landinu. Fjárfesting sem er ill — eða óseljanleg. Einnig er aðeins veitt eitt lán til leiguhúsnæðis á meðan það er gjarnan veitt margsinnis til íbúða sem ganga kaupum og sölum. VERKAMANNABÚSTAÐIR Ekki skal gleyma því sem vel er get. Félagsíbúðakerfið hefur þjón- að verðugu hlutverki í gegn um tíðina. Það hefur gert mörgum kleift að komast í tryggt húsnæði, sem ekki höfðu aðra möguleika. En það þjónar bara allt of fáum. Til þess að fá þar inni þarf að upp- fylla ákveðin skilyrði (tekjumörk ofl.) Og aðeins brot af þeim sem uppfylla þau skilyrði komast að. Svo eru bara ekki allir sem hafa tök á að greiða þau 20% (nýlega hækkað úr 10%) sem kaupendur þurfa að inna af hendi. Miklar hræringar hafa verið í þjóðfélaginu undangengið ár í húsnæðismálum. Húsbyggjendur og kaupendur hafa skorið upp herör gegn stjórnvöldum, sem fyrir síðustu kosningar höfðu of- arlega á stefnuskrám sínum miklar úrbætur í húsnæðismálum. En eins og allt of margir hafa merkt á eigin buddu voru þetta blekkingar einar saman og verra en það. Verð- tryggð lán bundin lánskjaravísi- tölu sem æðir áfram á meðan launavísitölu er kippt úr sambandi og að auki „vaxtafrelsi", er að fara með marga fjölskylduna á heljar- þröm þessa dagana. Allar „úrbæt- ur“ sem ríkisstjórnin hefur verið að lofa eru , ,reddingar fyrir horn‘‘. Eða hrein sýndarmennska. Geysi- stór hluti þeirra peninga, sem veitt er til húsnæðiskerfisins fer í fjármögnun, þ.e. til að standa straum af lánum, erlendum og innlendum sem Byggingarsjóðn- um hefur verið gert að taka með rokvöxtum til að geta greitt út lögboðin lán til húsbyggjenda og kaupenda. Sum þessara lána hafa verið kölluð „framlög frá ríkinu“ í fjölmiðlum. Félagsmálaráðherra boðar t fjölmiðlum „nýja stefnu'1 þar sem heimilað verði að lána allt að 50% af nýbyggingarlánum til eldra húsnæðis. Sú heimild hefur reyndar verið til staðar og framkvæmd í nokkur ár, en vegna fjárskorts var þetta hlutfall lækkað 1984 og 1985! Engin langtíma áætlun hefur verið gerð. Starfsemi Húsnæðis- stofnunnar ríkisins einkennist öðru fremur af því að bjarga deg- inum í dag. Vegna hinna ótryggu tekjustofna er lítið hægt að gera af haldbærum áætlunum. Það eru mannréttindi að búa við öruggt húsnæði. Stjórnvöld sem telja þjóðina hafa efni á að byggja flug- stöð, Seðlabanka og annan slíkan lúxus, geta ekki staðið frammi fyr- ir fólkinu og sagt: „Okkur þykir það leitt, en það eru ekki til pen- ingar“. Það er engin að fara fram á gjafir heldur einungis vilja og skilning. Og að mótuð verði bita- stæð framtíðaráætlun sem mögu- legt verði að framfylgja. Kristín Blöndal.

x

Kvennalistinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn
https://timarit.is/publication/1236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.