Kvennalistinn - 01.06.1985, Page 13
_____________________________________________________________________________________________________________________________13
Laun ógiftra kvenna á aldrinum 23—44 ára eru sambærileg við laun unglingsstráka og karla á ellilífeyrisaldri.
Starfshópar
Starfshópur um launa og sjáv-
arútvegsmál hefur meðal annars
á verkefnaskrá sinni athugun á
launum fiskvinnslufólks, sér í
lagi bónuskerfið sem við teljum
að þurfi að endurskoða. Þó svo
við vitum að það geti reynst erf-
itt, vegna þess hversu flókið
bónuskerfið er. Okkur þykir
óeðlilegt að byrjunarlaun fisk-
verkunarfólks nái ekki lámarks-
launum í landinu.
Ætlun er að gera samanburð á
meðallaunum kvenna í hinum
ýmsu frystihúsum. Einnig að
kanna hvernig hlúð er að sjávar-
útvegsmálum hér á Höfn, þar
sem allt byggist á sjávarútvegi.
Hvernig er t .d. komið fyrir inn-
siglingar og hafnarmálum?
Þar sem nú fer sumar í hönd
tökum við okkur frí en höldum
áfram af fullum krafti í haust.
Sveinbjörg Jónsdóttir
Sími 97-8533
Unnur Garðarsdóttir
Guðrún R. Aðalsteinsdóttir
Sveitarstjórnarhópur
Þessi hópur fór af stað í lok
febrúar. Markmiðið er að kynna
sér sveitarstjórnarmál og liður í
því að sitja hreppsnefndarfundi.
Hefur það verið mjög gagnlegt
og erum við fróðari en áður um
það hvernig sameiginlegum fjár-
munum sveitarfélagsins er ráð-
stafað.
Fyrsta verkefni þessa hóps var
að senda hreppsnefnd bréf, sem
fékk góðar undirtektir. Þar var
þess farið á leit að gengist yrði
fyrir trjáplöntunardegi nú á ári
æskunnar. Myndu þá foreldrar
kaupa og setja niður 1 tré fyrir
hvert barn sitt. Þar sem þetta er
barnmargur bær gæti þetta orðið
dágott skógarrjóður.
Ýmis verkefni eru framundan
og ber þar hæst borgarafundur
sem vonandi verður haldinn á
næstunni. Þar ætla konur að fjöl-
menna og auka þekkingu sína
eftir bestu getu. Það hefur sýnt
sig að þarna eru á ferðinni
áhugaverðir málaflokkar sem
varða okkur öll og munu SKASS
ekki láta sitt eftir liggja.
Guðný Hafsteinsdóttir
Guðrún Ingimundardóttir
Helgi Geir Sigurgeirsson
sundlaugarvörður.
„Mér líst vel á þetta, þær ættu
hiklaust að drífa sig í framboð".
Guðrún Ingimundardóttir
Unnur Garðarsdóttir
Eitt
skass
í
KASK!
Kaupfélag Austur-Skaftafellssýslu var stofnað árið
1920 og hefur alla tíð haft víðtæka starfsemi hér x sýsl-
unni. Konur hafa frá upphafi verið félagsmenn í KASK.
en hafa, fram að þessu, lítið látið til sín taka á deildar-
fundum og á aðalfundum. Nú hefur orðið breyting á.
Hér á eftir fer viðtal við Svövu Kristbjörgu Guðmunds-
dóttur, sem var ein af kjörnum fulltrúum á aðalfundi
KASK. 1985-
— Hvað hefur þú verið lengi félagsmaður í KASK?
Frá því um haustið 1980. En þar áður hafði ég starfað á skrifstofu
félagsins á árunum 1967—74 að undanskildum þeim vetrum er ég sat
Samvinnuskólann og framhaldsdeild hans. Á þessu tímabili vann ég
einnig einn vetur hjá SÍS.
— Hvers vegna gekkst þú ekki í KASK. fyrr en 1980?
Mér datt það bara aldrei í hug. En þegar ég loksins lét af því verða
var það vegna hvatningar eins starfsmanna félagsins.
— Hver hefur þátttaka þín verið sem almennur félagsmaður?
Þó skömm sé frá því að segja hefur hún verið lítil. Árið ’84 lét ég
þó verða af því að sitja deildarfund Hafnardeildar.
— Segðu okkur frá þeim fundi.
Þar voru u.þ.b. 30 félagsmenn mættir, þar af 6 konur. Það sem at-
hygli mína vakti þá var að við kjör fulltrúa deildarinnar voru allar
konurnar frystar úti og náði engin þeirra kjöri.
— Á síðasta deildarfundi varð breyting á. Hvað gerðist?
Á einum fundi kvennalistans í haust barst þetta í tal. Kom þá í ljós
að fáar konur voru félagsmenn. í framhaldi af því tóku konur sig sam-
an og gengu í kaupfélagið, með það fyrir augum að fjölmenna á
deildarfundinn 1985.
— Hvemig tókst til?
Á fundi Hafnardeildar í apríl sl. voru mættir u.þ.b. 90 manns þar
af, að minnsta kosti, 35 konur. Eins og sjá má af þessu hefur fundar-
sókn þrefaldast og megum við vel við una. Og af 12 kjörnum fulltrú-
um á aðalfund voru 4 konur, og 5 varamenn af 6 voru konur. Einnig
náði kona kosningu sem varadeildarstjóri.
— Hver var þátttaka kvenna á aðalfundinum?
Það fór svo að fimm konur sátu fundinn úr Hafnardeild og ein úr
Öræfadeild. Einnig sátu margar konur sem áheyrnarfulltrúar. Konur
tóku virkan þátt í umræðum á fundinum, bæði kjörnir fulltrúar og
áheyrnarfulltrúar.
— Þú varst framsögumaður um sérmál fundarins sem var
,,Þátttaka kvenna í Samvinnuhreyfingunni". Hvemig kom það
til?
Þetta málefni er sérmál á aðalfundi SÍS í ár og Kaupfélögin voru
hvött til að hafa þetta á dagskrá aðalfunda. Kaupfélagsstjórinn bað
mig um að hafa framsögu og skoraðist ég ekki undan því. Ekki fannst
okkur konum að karlmennirnir almennt væru tilbúnir til að ræða
þetta mál af skynsemi. Þó var samþykkt að fela stjórninni að taka
málið aftur á dagskrá á haustdögum.
— Þú ert annar kjörinna fulltrúa á aðalfundi SÍS. Hvemig
leggst það í þig?
Ég hlakka til að sjá hvernig þessir fundir fara fram, og taka þátt í
frekari umræðu um þátttöku kvenna í Samvinnuhreyfingunni.
— Hvaða erindi eiga konur, að þínu mati, ífélagsdeildir kauþ-
félaganna og í Samvinnuhreyfinguna altnennt?
Ef ég tek Kaupfélagið hér sem dæmi þá er það stærsti atvinnurek-
andinn og þjónustuaðilinn til sjávar og sveita. Öll starfsemi þessi hefur
víðtæk áhrif á líf fólks almennt jafnt kvenna sem karla. Ég tel að tími
sé til þess kominn að konur hætti að vera eingöngu hlutlausir áhorf-
endur, og verði virkari þátttakendur í því samfélagi sem við búum í.
Hugmyndafræði Samvinnuhreyfingar innar er frelsi, jafnfrétti,
bræðralag og því ættu konur að eiga auðveldara með að komast til
áhrifa innan hennar en víða annars staðar í þjóðfélaginu. Að lokurn
vil ég hvetja konur til að taka höndum saman og gerast virkir með-
limir í sínum kaupfélagsdeildum. Því að með samstöðu náum við ár-
angri.
Helga Gunnarsdóttir
,___, UMBORNIN
PAÐ GERIR (€LKO) OG FRAMLEIÐIR TENGLA
MEÐ „BARNAVERND“
Reynslan hefur sýnt aðþörf er á að fyrirbyggja slys á heimilum
— Maður veit aldrei á hverju bömin taka uppá.
FAGMENN ættu að hugleiða öryggið sem Elko veitir
börnum.
Jtf RÖNNING
Sundaborg,
simi 84000