Kvennalistinn - 01.06.1985, Side 14
14 __________________________________________________________________________________________________________
— Konureru 'A afskráðu vinnuafli íheiminumenfáaðeins l/10afheimsframleiðsluísinnhlutogeigaminnaen 1% af eignum heimsins.
Reykjanesangi Kvennalistans
var stofnaður í mars 1983, og
má með sanni segja, að alla tíð
síðan hefur verið unnið þar af
miklum áhuga og krafti.
Starfið fyrstu vikurnar fór að
sjálfsögðu mest í kosningabarátt-
una, enda skammur tími til
stefnu, kosningarnar 23- apríl,
réttum mánuði eftir að tilkynnt
var framboð Kvennalista í
Reykjaneskjördæmi. Það var
mikil og erfið vinna, en árangur-
inn varð í samræmi við það,
Kristín Halldórsdóttir, sem var í
efsta sæti listans okkar, situr nú á
þingi ásamt Sigríði Dúnu og
Guðrúnu Agnarsdóttur, og Sig-
ríður borvaldsdóttir, sem var í 2.
sæti listans, tók sæti Kristfnar í 2
vikur sl. vctur. (Málmfríður
Sigurðardóttir í Norðurlandi
eystra og Kristín Ástgeirsdóttir í
Reykjavfkuranga komu einnig
inn sem varaþingmenn á sl.
vetri, á meðan þingkonurnar
okkar tóku sér launalaust leyfi,
og var það í samræmi við stefnu
og starfshætti Kvennalistans, sem
byggir einmitt mikið á vald-
dreifingu og verkaskiptingu.
Þótti þetta fyrirkomulag skila
góðurn árangri í starfi bæði inn á
við og út á við.)
Starf í nefndum og
Jhópum
Framkvæmdanefnd tók til
starfa strax eftir stofnun angans,
og fljótlega voru myndaðir
hópar, sem hittust reglulega til
að kynna sér ýmis málefni svo
sem efnahags- og atvinnumál,
skólamál, öldrunarmál, utan-
ríkismál, kvennapólitík, dag-
heimilismál o.fl. Þessir hópar
urðu misjafnlega langlífir, en
allir hafa gert sitt gagn.
Eitt besta dæmið er líklega
skólamálahópurinn, sem reyndar
var lfka skipaður Kvennalista-
konum úr Reykjavík. Sá hópur
vann mjög vel í fyrrasumar, og
árangur þeirrar Vinnu skilaði sér
m.a. í ýmsum fyrirspurnum á
Alþingi í vetur, svo og tillögur
um endurmat á störfum kennara,
sem Kvennalistinn lagði fram á
fyrstu dögum þingsins.
Efnahagsmálahópurinn, sem
var einnig blandaður konum úr
Reykjavíkuranga, vann líka mjög
vel, og árangur þeirrar vinnu
skilaði sér m.a. í tveggja daga
ráðstefnu um efnahags- og
skattamál á sl. hausti.
Þá má Ifka nefna leshópinn
um kvennapólitík, sem hélt
marga góða fundi og árangur
þeirra er töluvert efni, sem
stendur til boða öllum, sem vilja
taka kvennapólitík fyrir, og
viljum við hvetja sem flestar til
að mynda leshópa um kvenna-
pólitík. Við þykjumst hafa
reynslu af því að slíkir leshópar
eru góð undirstaða undir allt
frekara starf innan Kvenna-
listans.
Endurmat í
kennarastarfinu
Hvert er áhugamál þitt?
í ágústmánuði 1984 hittust
nokkrar kvennalistakonur til að
ræða skólamál. Ýmis mál leituðu á
hugann en við reyndum fljótlega,
í samráði við þingkonurnar okkar,
að takmarka viðfangsefnin. Við
vildum reyna að koma einhverjum
málum inn á þing í upphafi þess.
Eftir að hafa gert okkur nokkra
grein fyrir hvaða mál við vildum
leggja áherslu á hófumst við
handa við efnisöflun og lestur.
Grunnskólalögin voru lesin,
svo og skýrsla nefndar sem skipuð
var til að endurskoða þau.
Lesin voru frumvörp, þings-
ályktunartillögur og fyrirspurnir
um skólamál. Lög og reglugerðir,
ýmis tímarit og greinar um skóla-
mál voru tekin til skoðunar ásamt
samþykktum fulltrúaþinga Kenn-
arasambands íslands.
Eftir margar og mjög ánægjuleg-
ar samverustundir hópsins skil-
uðum við afrakstri okkar ásamt
ýmsum gögnum og upplýsingum
til þingkvenna okkar.
Þau mál sem hópurinn lagði
mesta áherslu á lögðu þingkonur
Kvennalistans fram í byrjun þings,
en þau voru:
— Fyrirspurn um kennsluréttindi
kennara í grunnskólum.
— Fyrirspurn um lögverndun
starfsheitis grunnskólakenn-
ara.
— Fyrirspurn um leiðsögu-
kennara.
Þar sem hópurinn samanstóð af
kennurum voru kjör kennara ofar-
lega í hugum okkar. Allar okkar
vangaveltur og umræður tengdust
nauðsyn þess að fram færi endur-
mat á störfum kennara. Það leiddi
m.a. til þess að þann 16. október
1985 lögðu þingkonur Kvenna-
listans fram þingsályktunartillögu
um endurmat á störfum kennara.
„Alþingi ályktar að fela
menntamálaráðherra að skipa
nefnd er vinni að endurmati á
störfum kennara. Nefndin skili
niðurstöðum sem allra fyrst og
eigi síðar en 6 mánuðum eftir
samþykkt þessarar tillögu.“
í greinargerð með tillögunni
segir m.a.:
„Kvennalistinn hefur frá upp-
hafi lagt þunga áherslu á gildi
menntunar og uppfræðslu, og lyk-
illinn að góðri menntun uppvax-
andi kynslóðar og þjóðarinnar
allrar er uppfræðarinn sjálfur. Sú
kynslóð sem nú mótar þjóðfélag-
ið, má ekki hljóta þau eftirmæli að
hún hafi ekki skilið þessi einföldu
sannindi.
Æskilegt væri að fögur orð væru
einhvers virði þegar störfin eru
vegin og metin. En í þeim efnum
eru launin í raun eini mælikvarð-
inn sem viðurkenndur er.“
Ennfremur segir í sömu greinar-
gerð:
„Brýna nauðsyn ber því til að
fram fari endurmat á störfum
kennara og tillit tekið til hinnar
miklu ábyrgðar sem kennurum er
lögð á herðar við stöðugt um-
fangsmeiri og fjölbreyttari
fræðslu, og uppeldi í síauknum
mæli.
Er hér ekki síður um hagsmuna-
mál foreldra en kennara að ræða
og jafnframt þjóðarinnar allrar.“
Það ánægjulega gerðist svo
að menntamálaráðherra skipaði
fljótlega nefnd er skila átti áliti
fyrir 1. mars 1985, sem og varð.
í niðurstöðum þeirrar nefndar
kemur margt það fram sem styður
kröfu um menntun almennra
þess sem nefndin leggur áherslu á
er eftirfarandi:
„Meginbreyting hefur orðið á
kröfulm um menntun almennra
grunnskólakennara frá því að starf
þeirra var metið árið 1970. Mennt-
un þeirra fer nú fram á háskóla-
stigi.“
„Auknar faglegar kröfur, nýjar
námsgreinar og breyttir kennslu-
hættir í skólum hafa leitt til þess
að endurmenntun og framhalds-
menntun er orðinn ríkur þáttur í
kennarastarfi. Kennarar hafa því
meiri sérfræðiþekkingu en áður."
„Með lögum hefur aukin
áhersla verið lögð á þátt kennara í
uppeldi og mótun barna og ungl-
inga.“
„Lög, reglugerðir og erindis-
bréf leggja auknar skyldur á herð-
ar kennara um að sinna þörfum
hvers einstaklings í bekkjum þar
sem nemendum er raðað óháð
námsgetu. Slík skipan krefst mik-
ils skipulags og verkstjórnar auk
faglegrar þekkingar."
Álit og niðurstöður endurmats-
nefndar undirstrika nauðsyn þess
að eitthvað verði gert í málum
kennara. Um er að ræða hags-
munamál foreldra ekki síður en
kennara og í raun mál þjóðarinnar
allrar.
En meira þarf til en álit og nið-
urstöður. Við væntum þess að
ráðamenn geri sér grein fyrir
ástandinu og bæti það. Verði ekk-
ert gert teljum við framtíð skóla-
halds á íslandi í mikilli hættu.
Við konur, mæður og kennarar
gáfum þéssu áhuga — og hags-
munamáli, sem skólamál eru stór-
an hluta af okkur þessa haustdaga
1984.
Við segjum frá þessu í von um
að það hvetji konur til átaka, til að
vinna santan að málum sem þær
hafa áhuga á að koma á framfæri.
Við konur getum ekki vænst
þess að okkar hugðarefni og hags-
munamál komi fram á þingi nema
við leggjum þeim eitthvert lið og
fylgjum þeim eftir.
Tökum afstöðu — látum í okkur
heyra — aukum áhrif okkar.
(Cvcnnalistinn er kjörinn vett-
vangur.
Skólamálahópur
í Reykjanesskaga eru haldnir
félagsfundir að meðaltali einu
sinni í mánuði og þá til skiptis á
hinum ýmsu stöðum innan kjör-
dæmisins. Konur hafa verið dug-
legar að sækja þessa fundi og ekki
sett fyrir sig slæma færð né miklar
vegalengdir.
Allan veg og vanda af félags-
fundum hefur framkvæmda-
nefndin, en í henni sitja að jafnaði
7 konur, í 8 mánuði. Þetta fyrir-
komulag, sem á reyndar við um
allar nefndir og ráð innan Kvenna-
listans, þykir gefast vel, þar sem
það tryggir stöðuga endurnýjun,
dreifir ábyrgð og vinnu, eykur
virkni og dregur úr hættu á stöðn-
un.
Af annarri starfsemi Reykjanes-
angans má nefna, að nokkrum
sinnum hefur verið haft „opið
hús“, þar sem tilgangurinn er sá
einn að sjást og hittast. Sl. vetur
voru svo haldnir nokkrir „rabb-
fundir“ og efnt var til dagsráðs-
stefnu um það efni 8. 6. sl. um
hugmyndafræði Kvennalistans.
Slíkir fundir hafa þótt mjög gagn-
legir og skemmtilegir og fleiri eru
fyrirhugaðir.
í sumar stefnum við að því að
halda námskeið í ræðumennsku
og framsögn, og má reikna með
því, að slík námskeið verði vel
sótt, þar sem konur hafa yfirleitt
litla sem enga þjálfun í að tjá skoð-
anir sínar úr ræðustóli eða í fjöl-
miðlum. Veitir ekki af að byggja
upp sjálfstraust okkar í þeim efn-
um.
Þetta er reyndar aðeins brot af
öllu því, sem okkur langar að gera
í náinni framtíð, en starfið fram-
undan veltur auðvitað m.a. á því,
hversu margar leggja hönd að
verki.
^fstofasKvcnin|irstari^ý.Reykjane.si var í Kópa-l
?Rosnihgarnar hiuust-staffshóparnir og fram-
4Uji í |T(iimaþuJt!p], ^|ðap. verið var að greiða
igas^ddirnar. yttpT.lmW 'Í'984 van tekið á leigu
S^^^urvegiiló/f Háfnarfirði föímilsknifstofu og
^ic^Ríst til að'konur geti hiiyiStfÉ^aptálin ogj
af þtngstörfum og öðru^G^fet|að|gerast í kjör®
æklmgarmÉ
ÍKaænnaliltS
gi leið úr vinr
;r um, að alltáf
ið síma, sem e
ini eða eftir
íeinhver þar
5 siálfsögðu
■>a hefur etnntg
oiu_ I hj.t Rake
og ræð
>inu. Þ.1
'gstörfum og m
Wmrit