Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 3
Úr
dagsins
• önn
Hjúkrunarkvennatalsnefnd; frá vinstri: Bergljót Líndal, Ema Aradóttir, Ingi-
leif Óiafsdóttir, Guðrún Guðnadóttir, Guðrún Ámadóttir, Salome Pálmadóttir.
Spjallað við
hjúkrunarkvennatalsnefnd
Á vegum Hjúkrunarfélags Islands starfar nefnd, sem sannar-
lega er kominn tími til að kynna fyrir lesendum. Þetta er hjúkrun-
arkvennatalsnefnd, en hana skipa:
Bergljót Líndal,
Erna Aradóttir,
Guðrún Árnadóttir,
Guðrún Guðnadóttir,
Ingileif Ólafsdóttir,
Salome Pálmadóttir.
Þar sem nefnd þessi hefur starfað í 3 ár datt okkur í hug að
hitta þær að máli á einum af miðvikudagsfundum þeirra í skrif-
stofu félagsins að Þingholtsstræti 30. Tekið var rausnarlega á móti
blaðakonu, og ef veitingar eru alltaf jafn glæsilegar og á þessum
fundi er skiljanlegt að nefndarkonur uni sér á fundunum. Að lok-
inni kaffidrykkju hófust fjörugar samræður um hjúkrunarkvenna-
talið, tildrög þess, markmið, starfstilhögun nefndar o. fl.
„Hver voru fyrstu tildrög aö hjúkrunarlcvennatali?“
„Samþykkt var á félagsfundi í desember 1964 að hefjast handa
um útgáfu hjúkrunarkvennatals og miða útgáfu þess við 50 ára
afmæli HFÍ í nóvember 1969. Tilgangur ritsins er eiginlega sá að
varðveita nöfn hjúkrunarkvenna frá upphafi, en saga skipulagðr-
TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 27