Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 7

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 7
alt frá heilanum, þegar hann vegna veiklaðrar hjartastarf- semi og blóðrásar fær ekki nóg súrefni. En um leið hverfur meðvitundin og þar af leiðandi sársauki. Dauðinn er miskunn- samur. Sjúklingar, sem verið hafa nær dauða af lífhimnu- bólgu, einum sársaukafyllsta sjúkdómi sem til er, segja að á landamærum lífs og dauða, milli meðvitundar og meðvitundar- leysis hafi þeir jafnvel fundið til eins konar sælutilfinningar. Maöur deyr alltaf þyrstur. Vöðvaviðbrögð (reflexar) hverfa smám saman, og neðan frá. Þar af leiðandi verður sog- refleksinn, fyrsta viðbragð mannsins eftir fæðinguna, einn- ig það síðasta sem hverfur. Þetta þýðir að maður getur allt til hinstu stundar sogið til sín vökva; ennþá ein miskunnsöm í'áðstöfun náttúrunnar, því að vegna aukins adrenalinútskiln- aðar er hinn deyjandi alltaf þyrstur. Eða eins og sagt er „tungan límist við góminn“. hegar hjúkrað er deyjandi manni, sem ekki getur drukkið lengur, er hægt að útbúa eins konar kveik og stinga öðrum endanum í vatnsglas og hinum í munn sjúklingsins. Eða þá að vefja litlum ísmola í grisju og leggja á milli efri tanngarðs og kinnar. Heyrnin er síöasta skiln- mgarvitiö sem hverfur. Eitt, sem allir ættu að muna, er að heyrnin er síðasta skiln- ingarvitið sem hverfur. Sá sem er að dauða kominn heyrir oft greinilega þótt svo líti út sem hann sé langt frá tíma og rúmi. Þáð að augun eru lokuð getur orsakast af þreytu og ekki með- vitundarleysi. Á undan heyrninni hverfur sjónin. Hinn deyjandi verður var við að það dimmi, og snýr sér að ljósinu eða glugganum. Það á alltaf að vera bjart hjá deyj- andi sjúklingi. Eins og Goethe sagði síðast „Meira ljós“. „Dauöi minn er minn eiginn“ einnig í þeim skilningi að dauði eins líkist ekki annarra dauða. Dauðastríðið fylgir ekki sömu línum hjá ungum og gömlum. Hjá hinum unga er ennþá forði af kröftum eftir, en hjá hinum aldraða er mótstöðuaflið brotið fyrir löngu. Einkenni þess að mótstaðan fyrir alvöru tekur að dvína hjá gömlu fólki ei\ að það hættir að geta borðað sjálft og vill helzt sofa allan daginn. Það snýr bókstaflega baki við lífinu. Einn góðan veðurdag verða að- standendur e. t. v. varir við að andardráttur og púls eru hrað- ari, og slím safnast í lungnapíp- urnar, og lungnabólgan, síðasti sjúkdómur margs aldraðs fólks er orðin staðreynd. Þrátt fyrir alla meðferð og umönnun missir hann meðvitund, andardráttur dýpkar og verður hryglukennd- ur, nefbroddurinn kaldur, hend- ur og fætur stirðna. Og með nokkrum djúpum andvörpum stöðvast svo andardrátturinn. Hjartslátturinn heyrist ekki lengur í hlustpípunni, andlits- húðin stríkkar, sjáöldrin víkka, andlitið verður innfallið. Lífið er búið. Eftir nokkrar klukku- stundir kemur svo dauðastirðn- unin, og smám saman líkblett- irnir. Hræöslan viÖ skinndauöa. Margt fólk, og ef til vill eink- anlega gamalt, sem hefur hrak- að smám saman, þannig að það hefur haft tíma til að hugsa um það sem fyrir dyrum er, er hrætt við skinndauða. Sumir fá lækninn til að lofa sér því að hann skeri á slagæðar hjá þeim eftir dauðann, til að útiloka þennan möguleika. Og öruggt er að skinndauði getur átt sér stað. Það hefur skeð að hjartað hefur byrjað að slá aftur þegar sjúklingur sem dó sitjandi var lagður útaf. Hjartalínurit, sem lítur út sem strik, þarf ekki að þýða, að hjartað hafi stöðvast. Það gæti einnig verið galli á tækinu. En læknar hafa svo marga möguleika til að útiloka skinn- dauða að enginn þarf að óttast slíkt. í þessu sambandi er sagt frá konu, sem var lögð inn á sjúkra- hús 1965 vegna sífelldra húð- blæðinga á iljum. Læknir, sem skoðaði hana, sagði undrandi „en þetta lítur nærri því eins út og líkblettir“! Sjúklingurinn spratt upp eins og fjöður og hrópáði: „Það er einmitt það sem það er, ég var dáin í gær“! TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 31

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.