Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 12
Ingibjörg Árnadóttir
Suipmundir 1 t't i t í i. Ji (< ilÁ
J43J
Frá tískuhúsinu „Hlöðubúð". — Frá vinstri: Frk. Sigga Ligga Lá — Sigurður Þ.
Guðmundsson, læknir. Frk. Donna Mixolína — Ólafur Mixa, læknir. Frú Arabíska
— Jón Ólafsson, húsgagnaarkitekt. Frk. Þjóðlína Channel, forstöðukona — Hlöð-
ur F. Bjarnason, læknir. Frk. Gina Lolló Obstetrica — Jón Þ. Hallgrímsson, lækn-
ir. Frk. Narkosa Anasthesia •— Rögnvaldur Stefánsson, hjúkrunarmaður. Hin
Franskættaða — Ketill Larsen, leikari.
Árshátíð Hjúkrunarfélags Is-
lands var haldin að Hótel Sögu
(súlnasalnum) föstudaginn 29.
marz 1968, og hófst með borð-
haldi kl. 19.30.
Þátttaka félagsmeðlima hefði
mátt vera betri, en þrátt fyrir
það var hátíðin að öllu le.vti mjög
vel heppnuð. Virtust allir gestir
skemmta sér hið bezta.
Skemmtiatriði hófust méð því
að Árni Jónsson söngvari
stjórnaði sameiginlegum söng,
af mikilli snilld. Þar á eftir voru
fluttir tveir stuttir gamanþætt-
ir, frumsamdir af Katli Larsen
leikara, og lék hann einnig sjálf-
ur. Guðrún Eygló Guðmunds-
dóttir hj úkrunarkona, söng lít-
inn brag um litla hjúkrunar-
konu.
Rúsínan í pylsuendanum var
tízkusýning, sem vakti mikla
kátínu áhorfenda, meðfylgjandi
mynd gefur lesendum örlitla
nasasjón af hinni óviðjafnan-
legu forstöðukonu tízkuhússins
„Hlöðubúð" og sýningardömum
hennar (hans).
Happdrætti var innifalið í
aðgöngumiðunum og dró frk.
Katrín Gísladóttir hjúkrunar-
kona út vinning.
Síðan var stiginn dans af
miklu fjöri til kl. 02.
Veizlustjóri kvöldsins var
Ingibjörg Árnadóttir hjúkrun-
arkona. 1 undirbúningsnefnd
voru þær Ingibjörg Árnadóttir,
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir
og Sigrún G. Gísladóttir.
36 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS