Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 13

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 13
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Hér koma nokkur heilræði úr bókinni „KURTEISI“ eftir Rannveigu Smith Kurteisi. Snyrtileg kona má aldrei toga niður Hfstykkið sitt á opinberum stöðum. Við skulum vera varasöm með regn- hlifina okkar á götum og almanna- færi. Það gaeti verið „óþægilegt" — og d^rt — ef við rækjum augun úr ein- hverjum. Borðsiðir. Hvar sem er í heiminum þykir það niikil ókurteisi að borða með hanzka. Ekkert er eins ósiðlegt og að stinga hnifnum upp í sig. Þerridúkinn má aðeins nota til þess að þurrka sér um munninn og fing- urna — fyrir alla muni ekki til þess að þurrka sér um nefið! Ekki má naga bein og því síður sleikja fingurnar. Sá, sem notar tannstöngul í annarra viðurvist, ætti að flengjast. Þegar við sitjum að borðum, meg- um við ekki leika okkur að hnif og gaffli eða flytja hlutina fram og aftur fyrir framan okkur, hnoða brauðið eða því um líkt. Ekki þykir kurteisi að veifa gafflin- um eða öðrum tækjum í kringum sig við borðið. Það er miður „klæðilegt" fyrir kven- fólk að blóta. Annars eru það ekki svo mörg blótsyrði, sem manni leiðist að hlusta á, eins og það, að sumt kvenfólk notar svo mikið ruddaleg orð. T. a. m. virðist orðið „drulla" vera mjög mikið notað og hika ég ekki við að segja, að það er ekki orð í íslenzkunni, sem er eins andstyggilegt; það brýtur i bág við alla kurteisi, og orðið er svo óþol- andi, að manni verður bókstaflega flökurt af að hlusta á kvenfólk — já, líka karlmenn — nota það. Þá ætti kvenfólk að varast orðin „ljúga“ og „skítur"; hvers vegna má ekki nota orðin „skrökva" og óhrein- indi"? * TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 37

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.