Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Blaðsíða 15
Frá Montreal
mjóar, en þar eru nú komnar
forngripaverzlanir, sýningar-
salir fyrir listmuni og veitinga-
hús.
Meðal hinna elztu bygginga
í gamla borgarhlutanum er
Chateau de Ramesay, 261 árs
gamalt safn, sem upprunalega
var aðalaðsetur franskra ný-
lendustjóra, og síðar brezkra
eftirmanna þeirra. I ameríska
borgarastríðinu var húsið her-
tekið af Benjamín Franklín og
mönnum hans.
Montreal nútímans.
Miðborgin hefur með bygg-
mgu margra og stórra skýja-
kljúfa fengið mjög nýtízkuleg-
an svip. Það kostaði 200 millj-
ónir dollara að byggja Place
Ville Marie, en miðhluti hennar
er 45 hæða krosslaga bygging. I
þessari byggingarsamstæðu eru
60 verzlanir, tvö kvikmyndahús
og tvö leikhús. Þetta hús notar
álíka mikið rafmagn og venju-
legur 20.000 manna bær, og sím-
arnir eru eins margir og í 15.000
manna bæ í Norður-Ameríku.
Rétt hjá er Place Victoria,
önnur af tveimur 47 hæða bygg-
ingum. Þar eru tvær kauphallir
og í kjallaranum eru 40 verzl-
anir, veitingahús og barir. Milli
þessara tveggja risabygginga er
Place Bonaventure, þar sem
margir af ICN fundunum verða
haldnir árið 1969. I efsta hluta
byggingarinnar er 410 her-
bergja hótel, sem byggt er
hringinn í kringum vetrargarð.
I stærsta salnum eru 17.000
sæti, og þar að auki eru í húsinu
meira en 100 verzlanir, og veit-
ingahús við allra hæfi.
Hótel og veitingahús.
í Montreal eru fleiri hótel og
betri ferðamannaþjónusta en
nokkur annar bær í Kanada býð-
ur. í útjaðri borgarinnar eru
Ritz-Carlton mótelin, sem eru
óvenju skemmtileg, og í fjöl-
förnustu verzlunargötunum er
minna en 5 mínútna gangur á
milli hótela. í borginni eru 4000
veitingahús, sem hafa á boðstól-
um meira en tylft mismunandi
þjóðrétta. Skemmtanalíf er
mjög fjölbreytt. Sinfóníuhljóm-
sveit Montreal hefur áunnið sér
alþjóðlega viðurkenningu. Ball-
ettsýningar og leiksýningar fara
fram í Place des Art í miðborg-
inni. Hundruð bara og nætur-
klúbba bjóða margs konar
skemmtiatriði: ýmist litlir reyk-
mettaðir salir, þar sem sungnir
eru fransk-bandarískir alþýðu-
söngvar, eða stórir skemmti-
staðir, þar sem frægir skemmti-
kraftar sýna listir sýnar.
Allir, hvort sem það eru
borgarbúar eða aðkomumenn,
ættu að geta fundið skemmtan-
ir við sitt hæfi í Montreal.
Bæði borgin og landið eru
hrífandi, en stórfenglegast er
landið að sumarlagi, og það er
einmitt næsta sumar, sem ICN
mótið verður haldið.
Lausl. þýtt, E. B. D.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 39