Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 17

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Síða 17
sérstaklega hjúkrunarkonur sjúkrahússins, sem vinna við svo erfiðar aðstæður, að slíkt þekkist óvíða. Við höfum sætt okkur við þetta, segir yfirhjúkr- unarkonan, vegna þess að vi'ð héldum, að við ættum von á öðru betra. En nú, þegar komnar eru fram slíkar raddir, að breyta þessari nýju byggingu í menn- ingarmiðstöð eða skóla, þá er ekki hægt að þegja lengur. Það hlýtur að koma að því, að við gerum kröfur til annars betra. Þó að þessi eina rödd hafi látið frá sér heyra í einu blaði bæj- ni’ins, þá eru því miður fleiri, sem tala um þetta sín á milli. Það er sagt að taprekstur á sjúkrahúsinu sé um 2 millj. kr. Það eru miklir peningar finnst rnanni auðvitað. En hvaða sjúkrahús ber sig í dag? Þetta £etur ekki slegið ryki í augu okkar, sem við þessi mál fáumst, því að hér kemur svo margt tií greina. Hvað ætli sjúkrasamlag- ið þurfi að greiða árlega fyrir s.iúklinga, sem sendir eru á önn- ur sjúkrahús víðs vegar um land- ið, vegna þess að hér er ekki hægt að sinna þessu fólki. En með tilkomu nýja sjúkrahússins væri hægt að sinna flestum sjúkratilfellum, og myndu þá ekki peningamálin, sem virðast skipta hér öllu máli, breytast? En fólk horfir yfirleitt sjaldan í peningana, ef hægt er að kaupa heilsuna aftur. Er ekki kominn tími til að forráðamenn þessa bæjar, og á ég þá við háttvirta bæjarstjórn, geri sér grein fyrir vinnuað- stöðu þess fólks, sem er að reyna að vinna hér að heilbrigðismál- um? Stöldrum við á sjúkrahús- inu, þar er vinnuaðstaðan svo hörmuleg, að aðalvinna hjúkr- unarkvenna er á göngum sjúkra- hússins. Það er svolítið meira, sem þarf að gera á sjúkrahúsi en áð búa um rúm sjúklinga. Allar umbúðapakkningar til sótthreinsunar fara fram á göngum sjúkrahússins, þar eru engin vinnuherbergi éða vakt- herbergi. Eða hvar er yfirlækn- inum ætlað að ræða við sjúk- linga sína? Sér fólk ekki, hvað hér vant- ar? Ég trúi ekki öðru, en það sjái þetta og finni, þótt enginn vilii viðurkenna það. Það má líka koma fram, að á göngum sjúkrahússins er bið- stofa fyrir fólk, sem kemur ut- an úr bæ. Þar er sjónvarpið staðsett, sem sagt setustofa fyr- ir sjúklingana. Aðstoðarlæknar hafa heldur ekki að neinu að hverfa. Það þarf að skrifa sjúkrasögu hvers einasta sjúklings, sem inn er lagður á sjúkrahús. Það er að vísu til eitt skrifborð, staðsett í herbergi, sem allir þurfa að ganga um. Yfirhjúkrunarkon- an, þarf einnig að gefa miklar skýrslur og stjórna og raða nið- ur vinnutímum starfsfólks. Þetta verður hún að gera á kvöldin eða um nætur, svo hægt sé að vera í næði. Sitja þessir háu herrar ekki í fínum dýrind- isskrifstofum með teppum út í öll horn, og liggur meira eftir þá en það fólk, sem er að reyna áð vinna að því að hjálpa þeim sjúku aftur út í lífið. Það á að vera okkar metnaðarmál, að fólk, sem þarf að leggjast á sjúkrahús, þurfi ekki að fara annað að leita sér lækninga. Við eigum að geta sinnt þessu með því að fá nýtt fullkomið sjúkrahús hér í Vestmannaeyj- um. Við eigum áreiðanlega hér þá menn og konur, er munu styðja þessi mál, ef þau verða betur skipulögð. Læknar, hjúkrunar- fólk og forráðamenn þessa bæj- ar þurfa að ræða þessi mál sam- eiginlega. Slíkt þarf að ske. 1 dag er ekki hægt að bjóða fólki það, sem allir sættu sig við fyrir 40 árum. Berum saman hrein- lætið í dag og þá, hvað hefur skeð? Eru ekki baðherbergi og vatnssalerni sjálfsögð í öllum húsum? Hér á sjúkrahúsinu er eitt bað fyrir 30—40 manns, tvö vatnssalerni, og athugið, að TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 41

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.