Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Side 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Side 19
MINNINGARORÐ: Sigríður Pétursdóttir Fædd 18. ágúst 1918 Dáin 8. marz 1968 Fyrir réttum 25 árum var það, að 11 glaðar og ánægðar stúlkur luku prófi frá Hjúkrun- arskóla Islands. Þrjú ár voru liðin frá því, að við mættumst fyrst og á þessum árum knýtt- ust þau vináttubönd, sem aldrei hafa rofnað, heldur orðið inni- legri með hverju árinu sem leið. Það er bjart yfir þessum árum og margs að minnast, smáar minningar að vísu og ekki uierkilegar í annarra augum, en ylja okkur samt. Að prófi loknu tvístraðist hópurinn eins og gengur, til stai-fa hér og þar um landið. Oft höfum við hitzt, en aldrei allar í einu og fyrir löngu var ráðgert að hittast nú á 25 ára starfsafmæli. En þá var komið skarð í hópinn. Sigríður Pétursdóttir lézt 8. marz sl., fá- um dögum áður en við skyldum hittast. Reyndar kom það ekki á óvart, því síðustu árin hafði SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR hún barizt sem hetja við ban- vænan sjúkdóm og þó sérstak- lega síðustu mánuðina, sem hún var rúmliggjandi og alltaf sár- þjáð. Þó hélt hún sínu glaða, góða sinni, fylgdist með og ráð- gerði undirbúning okkar að þessum endurfundi og lengi vel vonuðum við skólasystur henn- ar, að hún yrði með okkur. Sigríður var góður félagi, hlý, glöð og hjálpsöm og veitul með afbrigðum. Hún naut sín alltaf vel sem húsmóðir. Á okkar námsárum var engin fljótari til að bera fram hressingu en ein- mitt Sigiúður, er setið var yfir bókum margt kvöldið eftir lang- an og oft strangan vinnudag og reynt að lesa fyrir næsta dag. Það var ekki alltaf mikið til í skápnum okkar, en einhvern- veginn varð kaffisopinn beztur og notalegastur hjá Siggu. Sigi'íður var fædd að Hall- freðarstöður í Hróarstungu, dóttir hjónanna Guðlaugar Sig- mundsdóttur og Péturs Sigurðs- sonar og var hún elzt 8 systkina. Hún ólzt upp hjá foreldrum sín- um eystra, en á unglingsárum hennar fluttu þau til Reykjavík- ur og áttu þar heimili upp frá því. Hún byrjaði nám í Hjúkr- unarskóla íslands vorið 1940 og lauk þaðan prófi vorið 1943. Strax að prófi loknu réðist hún að Sjúkrahúsi Isafjarðar og vann þar samflevtt í 2K ár. Vorið 1946 fór hún til Dan- merkur og var þar í 1 V> ár og starfaði fyrst í sjúkrahúsi á Suður-Jótlandi — í Tönder —, nokkra mánuði vann hún einnig í Rikisspítalanum í Kaupmanna- höfn. Eftir heimkomuna réðist hún yfirhjúkrunarkona við sjúkrahúsið Sólheima og vann þar í tæpt ár eða þar til hún giftist Birni Guðfinnssyni, pró- fessor, en hjónaband þeirra stóð stutt, þar eð hann lézt eftir rúm- lega 1 árs sambúð. Eftir lát manns síns fór hún aftur að vinna og þá við geðveikrahælið á Kleppi og vann þar í mörg ár, en hélt jafnframt heimili með stjúpdóttur sinni, sem hún lét sér mjög annt um, sem væri hún dóttir hennar. Síðustu árin bjó Sigríður með móður sinni að Úthlíð 13 og vann í Landsspítalanum meðan hún gat heilsunnar vegna og lengur þó. Það má með sanni segja, að hún stóð meðan stætt var. Tvö síðustu árin voru þrot- laus barátta við kvalafullan sjúkdóm. Fjölskylda hennar, hin mörgu systkin, tengdas.vstkin og þeirra börn og þó sérstaklega móðir hennar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð, til að létta henni baráttuna, gleðja hana og hressa og fyrir það var hún mjög þakklát. Síðustu mánuðina lá hún á kvensjúkdómadeild fæðingardeildar Landspítalans og þar lézt hún. Við skólasystur hennar þökk- um henni allt frá liðnum árum og minnumst hennar ávallt með hlýju og þökk. Móður hennar og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu kveðju. Árnína Guðmundsdéttir TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 43

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.