Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Qupperneq 22

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Qupperneq 22
RADDIR HJÚKRUNARNEMA Að Jiessu sinni höfum við kosið að birta fjrein um ffeðhjúkrunarmál, sem við þýddum úr norsku off styttum lítið eitt. Höfundur greinarinnar er Cornelius A. Tilghman, Sr. M. A. Sykepieier Ragnhild Stray þýddi liana úr Canada’s Mental Health og birti í norska hjúkrunarblaðinu, 5. tbl. 1968. Okkur fannst greinin athygiisverð og sxi tegund hjúkrunar, sem hún fjallar um, hefur vakið áhuga okkar, og má telja víst, að svo sé fleirum farið. Hvers vegna refsum við geðsjúklingunum okkar? Venjulega er álitið, að refsing sé óheppileg geðsjúklingum. Hver sá, sem er vel menntaður í geðhjúkrun, er á þeirri skoðun. Sálfræðingar og stjórnendur geðsjúkrahúsa benda á skaðsemi refsinga fyrir slíka sjúklinga. í kennslubókum í geðhjúkrun má að jafnaöi finna útskýringu á því, hvers vegna eigi má hegna geðsjúklingum, er sjúkdóms- einkenni koma í ljós. Hjúkrunarfólki og öðru starfsliði er kennt að refsa þeim ekki. En þessari kenningu virðist erfitt að framfylgja, því að margt af því, sem kallast meðferð á geðsjúkrahúsum, er í raun og veru refsing. Sums staðar er bannað að loka sjúkling inni í einangrunarklefa nema samkvæmt læknisráði. En opinbert eftirlit er ekkert. Á einstaka sjúkrahúsi gætir yfirlætis, þegar þurft hefur að beita sjúkling valdi. Þetta yfirlæti kemur e. t. v. í veg fyrir, að starfsliðið finni andstöðu sjúklingsins, og þar af leiðandi þörf- ina á meiri valdbeitingu. Það er gagnstætt lögum að slá geðsjúkling, þó hendir það af og til. Dulbúnar refsiaðgerðir. Þessar augljósu refsiaðgerðir eru minnst notaðar. Sjúklingur geldur ef til vill í sömu mynt, og auk þess eru til aðrar aðferðir, sem eru öruggar og löglegar. Dæmi um það, sem rangt er: Að forðast sjúklinginn nema nauðsynlega þurfi áð sinna honum og vera ónotalegur í orðum. Til dæmis að tala um galla hans, og ræða um viðkomandi sem tilfelli og meðferðina á því. Gera gys að ótta hans og krefjast þess, að hann virði reglur sjúkrahússins og starfsfólk meira en eigin persónuleika. Og síð- ast en ekki sízt: segja það sem við á, en láta í ljós vanþóknun og gremju með fasi og svip. RITNEFND: Þóra G. Sigurðardóttir, Ólöf St. Amgrimsdóttir, - Margrét Pétursdóttir. 46 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.