Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Qupperneq 27

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Qupperneq 27
FRÉTTIR 0g TILKYillMR Stjórnarl'undur SSN 30. nóvember — 1. desember 1967 í Stokkhólmi. Fundinn sátu: Aagot Lindström, for- maður, Noregi: Gerd Zetterström Lag- ervall, 1. varaformaður, Svíþjóð; Birthe Kofoed-Hansen, 2. varaformað- ur, Danmörk; Toini Nousiainen, Finn. landi; María Pétursdóttir, Islandi, Laura Christensen, gjaldkeri, Dan- mörk; auk Annemarie van Bockhov- en, Finnlandi og Astrid Herbst, Sví- þjóð, meöstjórnendur. Varðandi skipulag og starfsaðferðir SSN og fjárhag þess voru lagðar fram tillögur um endurskipulagningu. María Pétursdóttir gerði grein fyrir því, að hún gæti ekki skrifað undir tillögurn- ar fyrir Islands hönd vegna fjárhags. legra aðstæðna. Samkomulag ríkti þó um að auka bæri starfsemi SSN í anda norrænnar samvinnu. Skýrsla var lögð fram frá fundi launa- og kjaranefndar SSN í Helsinki 26.— 27. október 1967 um, að ákveðið hefði verið að gera athugun á kaupmætti launa hjúkrunarfólks; og jafnframt að gera athuganir á, hvar séu hámarks- takmörk á yfirvinnu og vaktavinnu. Auk þess voru til umræðu aðrar nefndarskýrslur og ákvarðanir teknar um fundi. Stjórnin fór yfir fundarsamþykktir og tillögur, sem gerðar hafa verið á þingum og fulltrúamótum SSN síðan 1950. Farið var yfir reikninga frá þinginu i Stokkhólmi 1966. Tekjur reyndust vera töluvert lægri en gert hafði verið ráð fyrir vegna færri þátttakenda en búist hafði verið við (600 í stað 1000). Stjórnarfundur SSN 4. — 5. apríl 1968 í Stokkhólmi. Fundinn sátu: Aagot Lindström, formaður, Noregi; Gerd Zetterström Lagervall, 1. varaformaður, Svíþjóð; Birthe Kofoed-Hansen, 2. varafor- maður, Danmörk; Annemarie van Bockhoven, Finnlandi; Laura Christ- ensen, gjaldkeri, Danmörk og Iva Bondeson, ritari, ásamt áheyrnaríull- trúum frá dönsku, norsku og sænsku h j úkrunarf élögunum. Fram kom, að félagatala SSN hafði hækkað um 3000 sl. 2 ár upp í rúm- lega 63.000 félaga. Fjárhagsafkoman reyndist vera góð, en vegna hækkandi verðlags verður á fulltrúaþingi 1968 tekið til athugunar, hvort hækka beri félagsgjöld. Ákveðið var, að í nefndinni, sem á að taka fyrir viðhorfið til „Evrópu- hjúkrunarfólks", verði 2 fulltrúar frá hverju landi ásamt 2 varafulltrúum. Nefnd þessi á að fjalla um ýmis mál varðandi laun, kjör og menntun hjúkrunarfólks í Evrópu vegna sam- eiginlegs vinnumarkaðs. Ákveðið var að gefa út rit í sam- bandi við 50 ára afmæli SSN, sem hald. ið verður hátíðlegt á Islandi 1970. Sér- hvert Norðurlanda leggi þar eitthvað að mörkum: frumsamdar ritgerðir um hjúkrunarmál í dag. Einnig er gert ráð fyrir stuttu sögulegu yfirliti um starfsemi SSN. Gjöf til Hjúkrunarfélags íslands. Hjúkrunarfélagið fékk góða heim- sókn fimmtudaginn 21. marz s. 1., en þá komu hjúkrunarkonurnar Elín Ág- ústsdóttir, Elsa Kristjánsdóttir, Ragn- hildur F. Jóhannsdóttir og Þuriður Þorvaldsdóttir á skrifstofu félagsins og færðu félaginu gjöf, silfurstjaka, frá 21 nema, til minningar um Magða- lenu Guðjónsdóttur, hjúkrunarkonu. Það er ánægjulegt, að hjúkrunar- konur skuli láta félag sitt njóta góðs af um leið og þær minnast látins kenn- ara og stéttarsystur með þakklæti. Hjúskapartilkynningar: Hrefna María Proppé, hjúkrunar- kona og Magnús Þór Magnússon, cand. el. Guðrún Jóhannesdóttir, hjúkrunar- nemi og Jóhann Freyr Ásgeirsson prentari. Iljúkrunarkonur, Þið, sem hafið aðstöðu til þess, setjið nöfn ykkar í símaskrána. Það auðveldar okkur að hafa samband hver við aðra. Stytting vinnutíina iijá Reykjavíkur- borg. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því, að fá samkomulag við Reykjavíkurborg um breytingar á vinnutíma hjúkrunarkvenna til sam- ræmis við niðurstöður Kjaradóms í máli ríkisstarfsmanna nr. 2/1967. Á fundi starfskjaranefndar Reykjavíkur- borgar og fulltrúa Hjúkrunarfélags Is- lands 6. maí var samið um, að vikuleg- ur starfstími hjúkrunarkvenna skv. 1. gr. A verði 42 klst. í stað 44 klst. frá 1. júni 1968. Þetta samkomulag var staðfest á fundi Borgarráðs 7. maí. Hækkun félagsgjalda. Á síðasta aðalfundi Hjúkrunarfélags Islands var samþykkt töluverð hækk- un á félagsgjöldum á þeim forsendum, að félag, sem er nærri hálfrar aldar gamalt og telur hátt i níu hundruð félaga, verði að mæta stöðugt vax- andi verkefnum. Af því leiðir aukinn kostnað og vinnu, sem nú er ástæðu- laust að fá að mestu leyti sem sjálf- boðavinnu og með styrkjum og gjöfum frá velunnurum, eins og verið hefur fram til þessa. Hjúkrunarfélag Islands hefur þegar boðið SSN að halda þing á Islandi sumarið 1970, og er það ánægjulegt en ekki vandalaust. Það er þó bót í máli, að íslenzka hjúkrunarstéttin hefur æf- inlega staðið með félagi sínu um lausn þeirra vandamála, sem eru á döfinni hverju sinni. Leiðréttingar í síðasta tölublaði: Á bls. 4 fyrsta dálki leiðréttist . . . ella ósamboðið nokkrum með snef- il af sjálfsvirðingu. Á bls. 11 miðdálki . . . þar sem hin mikilsverða heimahjúkrun var ekki undanskilin. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 51

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.