Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 12
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Logi Bergmann
Tæpum
tveimur árum
og tveimur
heilbrigðis-
ráðherrum
síðar ryk-
fellur skýrsl-
an enn í
skúffu í
ráðuneytinu"
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Austurveri
Opið í Lyfjum & heilsu
Austurveri kl. 10 til
miðnættis yfir páskana.
Lokað páskadag.
Páskaopnun
Í dag er laugardagur. Það er kannski ekkert frétt-næmt, enda er laugardagur um páskahelgi ein-hvern veginn algjört aukaatriði, klemmdur milli
leiðinlegasta dags æsku minnar og páskadags.
Föstudagurinn langi nútímans er svo sem ekkert
sérstaklega merkilegur lengur. Þegar börnin manns
spyrja hvað sé svona langt við hann verður frekar
fátt um svör og maður leiðist út í einhverjar sagn-
fræðilegar skýringar. Og þvílíkar skýringar!
Þegar ég var barn var þessi dagur sá leiðinlegasti
af þeim öllum. Unglingur á hápunkti gelgjuskeiðsins
var hrein skemmtun við hliðina á þessum degi. Allir
gerðu allt sem þeir gátu til að tryggja 100% leiðindi.
Samsæri fjölmiðla
Sjónvarpið (þessi eina rás) var jafnvel leiðinlegra en
venjulega á hátíðisdögum (sem var í raun talsvert
afrek). Óperur, leiknar biblíusögumyndir og kannski
gamalt sænskt sjónvarpsleikrit, til að tryggja full-
kominn árangur. Við áttum að upplifa þjáningar
Krists með leiðinlegu sjónvarpsefni.
Í útvarpinu var bannað að leika alla tónlist sem
innihélt ekki fiðlur. Bara sorglega og ámátlega tónlist
sem lét þögn hljóma eins og hina raunverulegu guðs-
gjöf. Og já. Það var bara ein rás sem var reyndar alltaf
leiðinleg, en aldrei af jafn mikilli áfergju og þennan
dag.
Lok, lok og læs
Það var allt lokað. Allt. Allar búðir, allar sjoppur,
allar bensínstöðvar. Allt. Þess vegna var enginn á
ferli nema kannski nokkrir soltnir útlendingar sem
botnuðu ekkert í því að þetta undarlega land hafði
bara bókstaflega skellt öllu í lás. Reyndar voru ein-
hverjar flökkusögur um að lúgan á BSÍ væri opin en
ég veit ekki hvort sviðakjammi hefði gert mikið fyrir
þessi grey. Hafið í huga að á þessum tíma þótti stór-
merkilegt að sjá ferðamann á Íslandi.
Ég var reyndar einn af þeim heppnu. Við bræð-
urnir þurftum ekki að klæða okkur í spariföt og
við máttum fara út í fótbolta, ef það var ekki allt á
kafi í snjó. Sumir voru ekki svo heppnir. Máttu ekki
gera neitt nema sitja og tryggja hámarkslengd út úr
þessum föstudegi.
Ég sór þess samt eið að þegar ég eignaðist börn
myndu þau fá að gera allt sem þeim dytti í hug
þennan dag. Engin spariföt, engin matarboð, ekkert
vesen.
Í fyrra lögðu þingmenn Pírata og Bjartrar fram-
tíðar fram frumvarp um afnám helgidagafriðar.
Biskupinn var ekki mjög spenntur fyrir því, en
Prestafélag Íslands var á þeirri skoðun að sérstakar
reglur um helgidagafrið ættu ekki við í nútímasam-
félagi þar sem fólk aðhylltist mismunandi trúar-
og lífsskoðanir. Mér fannst sú afstaða prestanna
merkileg, fyrir margra hluta sakir, þótt ég sé reyndar
á sömu skoðun og BSRB í umsögn sinni um frum-
varpið: Að breytingar ættu ekki að hafa nein áhrif
á ákvæði kjarasamninga. Það er nefnilega sama
hvaðan gott kemur.
Þótt frumvarpið hafi ekki gengið í gegn virðast
margir hafa svipaðar hugmyndir um helgidagafrið.
Smám saman eru hlutirnir að breytast. Það er hægt
að fara í bíó á föstudaginn langa. Og sund. Það er
hægt að kaupa mjólk og brauð og sinnep og súrsaðar
gúrkur. Ferðamenn fá að borða á veitingastöðum,
sem er kannski eins gott fyrst að það er endanlega
búið að loka lúgunni á BSÍ. Ríkið er að vísu lokað en
við skulum kannski ekki alveg missa okkur í þessu.
En stundum er ágætt að rifja upp hvernig þetta
var allt saman áður, þegar föstudagurinn langi var
engu líkur. Það hefði samt verið gaman ef fólk hefði
lagt jafn mikinn metnað í að láta sumardaginn fyrsta
standa undir nafni.
Föstudagurinn laaaangi
Krabbameinsáætlun mun líta dagsins ljós fljótlega, að því er fram kom hér í blaðinu á skírdag. Það er vel. En gagn-rýnt hefur verið hversu langan tíma hefur tekið að ýta áætluninni úr vör.Eftir nokkurra missera vinnu var
boðað að um mitt ár 2014 yrði áætlunin lögð fram
fyrir árslok. Í apríl 2017 hefur hún enn ekki litið
dagsins ljós.
Gagnrýnin hefur ekki síst komið frá félagasam-
tökum, Krabbameinsfélagi Íslands og Reykjavíkur,
sem hafa ályktað að undanförnu og sent ráðuneytinu
erindi til að grafast fyrir um stöðuna. Þeim skrifum
hefur ekki verið svarað formlega. Minnt hefur verið
á að Ísland eitt Norðurlanda hefur ekki enn gert
krabbameins áætlun. Þó hafi mikil vinna verið lögð í
áætlunina og hætta sé á að hún verði til lítils ef upplýs-
ingar og gögn úreldast. Til samanburðar má nefna, að
árið 1998 var áætlun af þessu tagi lögð fram í Noregi.
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og formaður
ráðgjafarhópsins, tekur í samtali við Fréttablaðið,
undir gagnrýni á seinagang í stjórnsýslunni. Hann
bendir á að hópurinn hafi skilað af sér í nóvember
2015.
Tæpum tveimur árum og tveimur heilbrigðisráð-
herrum síðar rykfellur skýrslan enn í skúffu í ráðu-
neytinu.
Árlega greinast um 1.500 manns með krabbamein
hér á landi og eftir fimmtán ár má búast við fjölgun
krabbameinssjúklinga um næstum þriðjung. Skýring-
in er hækkandi meðalaldur og fjölgun landsmanna.
Tæplega fimmtán þúsund manns, sem hafa fengið
krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni, eru enn á
lífi. Skýrslur staðfesta þá eðlilegu ályktun að stór hluti
þessa hóps sé fyrirferðarmikill bæði í heilbrigðis- og
félagsþjónustunni. Í krabbameinsáætlun á að gera ráð
fyrir stuðningi við krabbameinssjúka og þeirra fólk frá
fyrsta degi og áfram meðan aðstoðar er þörf.
Ruglingslegt kerfi mætir krabbameinssjúkum í
dag. Ung eiginkona krabbameinssjúklings, Ástrós
Rut Sigurðardóttir, varaformaður Krafts, sem er
stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og
aðstandendur þeirra, lýsti lífi þeirra hjóna á einlægan
og hispurslausan hátt á ljósvakanum nýlega. Hún gaf
okkur innsýn í líf þeirra sem stríða árum saman við
vágesti sem knýja dyra og umturna lífi heilu fjöl-
skyldnanna.
Í nokkur ár hafa þessi ungu hjón barist saman, ekki
bara fyrir því að eiginmaðurinn nái heilsu og þau geti
lifað eins bærilegu lífi og kostur er – heldur hafa þau
líka þurft að berjast við ómanneskjulegt kerfi. Það var
þyngra en tárum tekur að hlusta á frásögn Ástrósar
Rutar. Hún hreyfði við öllum sem á hlustuðu. Ekki
vanþörf á.
Við þurfum að taka okkur tak og hlúa betur að
fólki sem stríðir við erfiða sjúkdóma í langan tíma.
Aðgerðir þola enga bið. Við eigum að létta þeim byrð-
arnar með ráðum og dáð. Erfitt er að benda á leið til
að verja skattpeningum betur.
Skýrsla í skúffu
1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
SKOÐUN
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
A
-1
9
5
8
1
C
A
A
-1
8
1
C
1
C
A
A
-1
6
E
0
1
C
A
A
-1
5
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K