Fréttablaðið - 15.04.2017, Blaðsíða 27
Frá kynslóð til kynslóðar:
Ljónshjarta
Ljónshjarta hlaut verðlaunin í flokknum Frá kynslóð til
kynslóðar.
Þar er um samtök að ræða
fyrir ungar ekkjur og ekkla, 20
til 50 ára. Samtökin hafa starfað
í rúm þrjú ár í sjálfboðavinnu
og hyggjast efla starfsemina í
framtíðinni.
„Fyrst og fremst er þetta
viðurkenning á að við séum að
vinna gott starf. Þetta er mjög
mikil hvatning og eflir okkur og
okkar starfsemi. Samtökin eru
orðin sýnilegri og þar af leiðandi
á fólk í þessari stöðu auðveldara
með að leita til okkar. Við erum
líka stolt, því þetta er mjög erfitt
starf. Við í stjórn og varastjórn
erum öll ungar ekkjur og ekklar
og það tekur oft á, að sinna þessu
starfi. Við erum líka í sorg eins og
okkar félagsmenn,“ segir Ína Ólöf
Sigurðardóttir formaður.
Hún segir starfsemina hafa
vaxið mikið undanfarið. „Nú
höfum við náð að safna fjár-
magni til að efla starfið og erum
farin að geta stutt betur við
bakið á okkar fólki. Við erum
reglulega með viðburði og
uppákomur fyrir bæði börn og
fullorðna í Ljónshjarta. Núna
erum við til dæmis að vinna í því
að bjóða upp á sérstakt nám-
skeið fyrir unglinga Ljónshjarta.
Einnig munum við halda tveggja
daga námskeið í sorgarúrvinnslu í
haust með fagfólki.“
Til atlögu gegn fordómum:
Foreldrafélag
Breiðholtsskóla
Verðlaunin í flokknum Til atlögu gegn fordómum
runnu til Foreldrafélags Breið-
holtsskóla. Það hefur staðið fyrir
fjölmenningarhátíðum fyrir nær-
samfélagið þar sem öllum íbúum
hverfisins er boðið í skólann.
Tilgangurinn er að tengjast betur
foreldrum og börnunum sem
þar búa, kynnast ólíkum uppruna
þeirra, tungumáli og ekki síst að
fagna fjölbreytileikanum. „Þetta
er viðurkenning á mikilli vinnu
og hvatning til fólks sem hefur
staðið vaktina,“ segir Sara Björg
Sigurðardóttir.
„Ég vil draga
fram
styrk-
leika
sam-
félagsins
í Breið-
holti,“
segir hún
og segir um-
fjöllunina um hverfið of oft á nei-
kvæðum nótum. „Verðlaunin eru
viðurkenning á vinnu. Þakklæti til
fólks sem er búið að standa vakt-
ina. Ég vil að börnin mín búi að
því alla ævi að umgangast fólk,
virða það og taka því eins og það
er, óháð uppruna og trú. Þetta er
ekki bara ég, þetta er net af fólki
og fjölskyldum í hverfinu.“
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Náttúrule
ga
s t t
Gómsætir eftirréttir, girnilegar
kökur og ýmiss konar freistandi
sætir bitar án viðbætts sykurs
við sig sjálfa fyrr en með stofnun
Lótushúss. „Ég var að glíma við
þetta, að ná ekki djúpri tengingu
við mig sjálfa. Minn kjarna. Ég held
að þetta sé ekki óalgengt. Samt var
ég búin að vera að hugleiða í mörg
ár. En það var ekki markvisst. Með
tilkomu Lótushúss hugleiddi ég á
hverjum degi og las. Smátt og smátt
færðist ég nær þessum kjarna, sem
er ég. Það gerðist hægt og rólega. Ég
hefði viljað að það gerðist hraðar,
en það var bara ekki hægt,“ segir
Sigrún. Hún segir það enda per-
sónubundið hvernig og á hvaða
hraða fólk nær þessari tengingu. „Í
mínu tilfelli er það vegna þess að ég
er svolítið úthverf, og tók mikið af
áreiti umhverfisins inn á mig.“
Fjöldi fólks hefur notið liðsinnis
Sigrúnar í Lótushúsi. „Ég hef séð svo
margt fallegt. Hvernig hugleiðsla
breytir manneskjunni smátt og
smátt. Hvernig manneskjan smitar
svo þessum góðu breytingum út frá
sér inn á heimilið og í sitt nærum-
hverfi. Þetta hefur breytt lífinu hjá
fjölskyldum. Það er gott þegar það
gerist,“ segir Sigrún.
Hún segir hugleiðslu einn-
ig gagnast mikið við kvíða og
þunglyndi. „Það gagnast í því að
finna okkur sjálf og að treysta
á okkur sjálf. Við þurfum öll að
læra betur inn á okkur. Í hug-
leiðslunni snertum við okkar eigin
kjarna og jafnvel þótt manni finnist
maður hafi ekki upplifað neitt þá
verður maður sáttari. Sáttin við lífið
og tilveruna er mikilvægt markmið.
Og að vera sáttur í eigin iðkun.“
Líf Sigrúnar og Þóris er rólegt
eins og búast mátti við. „Við förum
á fætur eldsnemma á morgnana,
förum niður í Lótushús og erum
þar í um tvær klukkustundir. Þar
hugleiðum við og lesum texta. Við
förum svo heim og fáum okkur
morgunmat. Þórir snýr sér svo
að sínum viðskiptum. Stundum
förum við líka á kvöldin en annars
fer starfið mest fram á morgnana.
Áður en fólk fer inn í daginn og
dagskrána. Eldsnemma á morgn-
ana erum við glaðvakandi, heilinn
getur tekið við og truflast ekki eins
auðveldlega,“ útskýrir Sigrún.
En skyldi Sigrún eiga eitthvert
ráð til handa lesendum? „Ég á eitt
ráð, komið og hugleiðið. Í gegnum
hugleiðsluna náið þið tengingu við
ykkur sjálf. Það er það dýrmætasta
sem við gerum í þessu lífi. Að finna
út hver þið eruð og ná sátt. Að
finna fyrir þessum sálarneista sem
ert raunverulega þú. Vitneskjan og
sáttin gerir það að verkum að þið
eigið betra með að mæta erfið-
leikum.“
Og þetta hefur Sigrún að leiðar-
ljósi. „Ég treysti leikriti lífsins,“ segir
hún. kristjanabjorg@frettabladid.is
Ég var að glíma við
þetta, að ná ekki
djúpri tengingu við mig
sjálfa. minn kjarna. Ég
held að þetta sÉ ekki
óalgengt.
Sigrún Olsen
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 27l A U g A R D A g U R 1 5 . A p R í l 2 0 1 7
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
A
-2
8
2
8
1
C
A
A
-2
6
E
C
1
C
A
A
-2
5
B
0
1
C
A
A
-2
4
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K