Fréttablaðið - 15.04.2017, Qupperneq 24
Vitavörður, læknir, lögfræðingur,
sjómaður, barþjónn, ég hef kynnst
höfundum úr öllum greinum og
stigum samfélagsins. Og þegar við
hittumst þá tölum við ekki um
glæpasögur eða glæpi. Við tölum
um eiginlega allt annað en það. Þá
finnst mér einkennandi að þennan
geira bókmenntanna einkennir
mikil samstaða. Maður finnur fyrir
því að aðrir höfundar samgleðjast
þegar það gengur vel. Það er enginn
illvilji eða öfund í bransanum. Og þá
eru líka allir af vilja gerðir að hjálpa
og leiðbeina,“ segir Yrsa.
Alltaf forvitin um hrylling
Glæpasagnahöfundar eiga það þó
sammerkt þrátt fyrir ólíkan bak-
grunn að hafa brennandi áhuga
á myrkari kimum samfélagsins,
glæpum og hryllingi. Yrsa þrætir
ekki fyrir það og segir frá hryllings-
myndaáhuga sínum sem hófst á
unga aldri og er enn mikill.
„Ég hafði í æsku áhuga á öllu því
sem var skrýtið og furðulegt. Mjög
snemma vildi ég horfa á hryllings-
myndir. Ég held ég hafi verið ellefu
ára gömul þegar ég horfði fyrst á
hryllingsmynd. Það var Hitch-
cock-myndin Birds. Mamma og
pabbi höfðu farið út að borða
og við vorum ein heima nokkrir
krakkar. Það hafði enginn áhuga á
því að horfa á myndina með mér.
Ég horfði því á hana ein og minnist
þess ekki að hafa orðið hrædd. Ég
var öllu heldur bara forvitin,“ segir
Yrsa. „Mörgum finnst það skrýtið
en ég slaka hvað best á yfir góðri
hryllingsmynd. Því miður þá eru
ekki margar góðar hryllingsmyndir
framleiddar en ég nýt þess að horfa á
þær þegar ég finn þær. Ég er hrifin af
myndum til dæmis frá Suður-Kóreu
og Japan og þá helst þeim sem eru
svokallaðir sálfræðitryllar.“
Yrsa býr yfir meiri sérvisku en að
slaka á yfir hryllingi. Á ráðstefnum
og upplestrum nýverið hefur hún
vakið athygli fyrir líflegt og óvana-
legt skótau og litríkar töskur.
„Umboðsmönnum mínum úti
fannst skórnir ræna athyglinni frá
bókum mínum,“ segir Yrsa glettin.
„Nýjustu kaupin eru í skóm með
Darth Vader hæl. Ég á mörg skó-
pör, ekki öll svona flippuð en mörg
skemmtileg og litrík.“
Svo segist hún sérfræðingur í því
að spæla egg. „Ég er nú reyndar bara
stolt af því. Ég þyki best í heimi að
spæla egg. Annars þyki ég nefnilega
ekki hafa hæfileika í matargerð.“
Um páskana ætlar Yrsa að hafa
það notalegt með fjölskyldunni. „Ég
verð með mat fyrir fjölskylduna og
á annan í páskum held ég allsherjar
nammipartí. Þar verða að sjálfsögðu
páskaegg en líka alls konar nammi
sem hefur safnast upp í fríhafnar-
ferðum upp á síðkastið. Það er slatti,
það verður sum sé nammi í matinn,“
segir hún létt í bragði.
MörguM finnst það
skrýtið en ég slaka
hvað best á yfir góðri
hryllingsMynd.
NÝ ÞÁTTARÖÐ MEÐ
PIERCE BROSNAN
Í AÐALHLUTVERKI
TVÖFALDUR FYRSTI ÞÁTTUR Á PÁSKADAG
365.is Sími 1817
SUNNUDAGANÝTT
Yrsa býr yfir meiri sérvisku en að slaka á yfir hryllingi. Á ráðstefnum og upplestrum nýverið hefur hún vakið athygli
fyrir líflegt og óvanalegt skótau og litríkar töskur.
uMboðsMönnuM MínuM úti fannst skórnir ræna
athyglinni frá bókuM MínuM. nýjustu kaupin eru í
skóM Með darth vader hæl.
1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r24 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
A
-3
B
E
8
1
C
A
A
-3
A
A
C
1
C
A
A
-3
9
7
0
1
C
A
A
-3
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K