Fréttablaðið - 15.04.2017, Síða 42
Okkur vantar bifreiðasmiði
og eða vana menn til starfa í réttingadeild.
Áhugasamir sendi inn umsóknir á
bjarni@bilastjarnan.is eða hringi í síma 778 6380
Verkefnastjóri hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands, sumarstarf
Frjálsíþróttasamband Íslands óskar eftir að ráða sjálfstæðan og drífandi verkefnastjóra á
skrifstofu FRÍ í sumar. Leitað er að háskólanema eða einstaklingi með reynslu á sviði
íþróttamála eða kennslustarfa, 20 ára eða eldri.
Hvað þarft þú að hafa til að bera?
● Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
● Áhuga og getu til að styrkja ímynd FRÍ á samfélagsmiðlum
● Færni til að skrifa skemmtilegar fréttir og færslur um frjálsar
● Getuna til þess að stýra verkefnum sjálf(ur)
Hvað bjóðum við uppá?
● Áhugavert og lifandi starf í íþróttahreyfingunni
● Möguleikann á því að bæta frjálsíþróttahreyfinguna og samfélagið um leið
● Möguleika á hlutastarfi með skóla til framtíðar
● Gott tækifæri til að læra og bæta sig í fjölbreyttu og krefjandi starfi
Unnið er náið með framkvæmdastjóra og stjórn FRÍ auk þess að vera í sambandi við
aðildarfélög sambandsins um land allt.
Upphaf starfs er í maí skv. nánara samkomulagi og starfslok að hausti skv. samkomulagi, en
einnig möguleiki á hlutastarfi með skóla.
Áhugasamir sendi umsóknir á netfangið sumarstarf@fri.is í síðasta lagi sunnudaginn 23.
apríl.
Verkefnastjóri hjá
Frjálsíþróttasambandi
Íslands, sumarstarf
Frjálsíþróttasamband Íslands óskar eftir að ráða sjálf-
stæðan og drífandi verkefnastjóra á skrifstofu FRÍ í sumar.
Leitað er að háskólanema eða einstaklingi með reynslu á
sviði íþróttamála eða kennslustarfa, 20 ára og eldri.
Hvað þarft þú að hafa til að bera?
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Áhuga og getu til að bæta ímynd FRÍ á samfélagsmiðlum
• Færni til að skrifa skemmtilegar fréttir og færslur um
frjálsar
• Getu til að stýra verkefnum á eigin spýtur
Hvað bjóðum við uppá?
• Áhugavert og lifandi starf í íþróttahreyfingunni
• Möguleikann á því að bæta frjálsíþróttahreyfinguna
og samfélagið um leið
• Möguleika á hlutastarfi (t.d. með skóla) til framtíðar
• Gott tækifæri til að læra og bæta sig í fjölbr yttu og
krefjandi starfi
Verkefnastjóri vinnur náið með framkvæmdastjóra og
stjórn FRÍ auk þess að vera í sambandi við aðildarfélög
sambandsins um land allt. Upphaf starfs er í maí, skv.
nánara samkomulagi og starfslok að hausti skv. sam-
komulagi, en einnig er möguleiki á hlutastarfi, t.d.
með skóla. Áhugasamir sendi umsóknir á netfangið
sumarstarf@fri.is í síðasta lagi sunnudaginn 23. apríl.
Nánari upplýsingar veittar í gegnum sama netfang.
Staða skólastjóra við
Reykhólaskóla laus til umsóknar.
Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra Reykhólaskóla
lausa til umsóknar. Reykhólaskóli er sameinaður leik- og
grunnskóli undir einu þaki og er ætlunin að við hann
bætist tónlistadeild næsta haust. Í skólanum eru um 60
nemendur.
Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á rekstri skólans og
daglegri starfsemi, hann veitir skól num faglega forystu á
sviði kennslu og þróunar í skólastarfi og leiðir samstarf
nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild.
Reykhólaskóli auglýsir eftir
grunnskólakennurum og
tónlistakennara til starfa
Einkunnarorð Reykhólaskóla er „Vilji er vegur“.
Reykhólaskóli er þátttakandi í Grænfánaverkefninu.
Um er að ræða 100% starf í almennri kennslu, allt að 100 %
starf í almennri tónlistakennslu og 50% starf í verkgreinum.
Mötuneyti Reykhólahrepps auglýsir
eftir aðstoðarmatráði til starfa
í allt að 100% starf.
Mötuneyti Reykhólahrepps er mötuneyti Reykhólaskóla og
Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar.
Frekir upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur vegna
ofangreindra starfa er að finna á vef sveitarfélagsins
www.reykholar.is.
Spennandi
starf hjá
Samgöngustofu
samgongustofa.is ı Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Upplýsingar um Samgöngustofu er að finna á vef stofnunarinnar, www.samgongustofa.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
17
-1
10
8
Fulltrúi í þjónustudeild
Samgöngustofa leitar að fulltrúa á þjónustusvið stofnunarinnar. Í starfinu felast fjölbreytt
verkefni, s.s. móttaka viðskiptavina og gagna, skráningar í farartækjaskrár, leyfisveitingar,
upplýsingagjöf í síma og ráðgjöf í tengslum við verkefni stofnunarinnar. Starfsþróun er mikil í
deildinni og starfsmenn fá tækifæri til að auka þekkingu sína og hafa áhrif á þróun og framgang
verkefna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%. Um tvö
stöðugildi er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Stúdentspróf er áskilið og frekari menntun æskileg
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, í rituðu og töluðu máli
• Þekking á íslenskum og alþjóðlegum kröfum til flugvalla er kostur
• Leitað er að einstaklingi sem er úrræðagóður, talnaglöggur og unir vel í hópstarfi
• Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
• Góð Word og Excel kunnátta
• Frumkvæði, skipulögð og nákvæm vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
• Viðkomandi þarf að vera áreiðanlegur, jákvæður og vandvirkur
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2017
Hægt er að sækja um starfið rafrænt á www.samgongustofa.is/storf
Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi.
Við bjóðum góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.
Starf sérfræðings
með áherslu á bókhald
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir starf
sérfræðings til að sinna bókhaldi ráðuneytisins auk
annarra verkefna.
Sérfræðingurinn þarf að vera nákvæmur í vinnubrögðum
og með þekkingu og reynslu á sviði bókhalds. Starfið
hentar drífandi einstaklingi með góða samskiptahæfni og
getu til að miðla þekkingu sinni. Í boði er áhugavert starf á
krefjandi og skemmtilegum vinnustað.
Sérfræðingurinn mun starfa á skrifstofu fjármála og
rekstrar þar sem nú eru 10 störf, en í ráðuneytinu starfa 40
starfsmenn og er starfsmannahópurinn fjölbreyttur.
Viðkomandi sérfræðingur mun eiga í miklu samstarfi við
allar skrifstofur ráðuneytisins, Fjársýslu ríkisins auk fleiri
aðila. Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkom-
andi geti hafið störf sem fyrst.
Meginverkefni:
• Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi.
• Greiningarvinna og úrvinnsla gagna.
• Launavinnslur.
• Vinna við gæðakerfi.
• Aðstoð við gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf á sviði viðskipta eða rekstrar.
• Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði.
• Góð almenn tölvufærni og góð þekking á Excel.
• Þekking og reynsla af Orra bókhaldskerfi er kostur.
• Þekking og reynsla af launavinnslum og mannauðs-
málum er kostur.
• Góð samskiptahæfni, þjónustulund og uppbyggilegt
hugarfar.
• Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamennt-
aðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Karlar jafnt sem konur
eru hvött til að sækja um. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr.
464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari
breytingum.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína til
umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skuggasundi 1, 101
Reykjavík eða rafrænt á postur@uar.is. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsók-
nar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Guðmundsson,
skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (stefan.
gudmundsson@uar.is).
We´re looking for car builders
or skilled men in car bodywork.
Please send your applications to
bjarni@bilastjarnan.is or call 778 6380
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
A
-6
3
6
8
1
C
A
A
-6
2
2
C
1
C
A
A
-6
0
F
0
1
C
A
A
-5
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K