Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 68

Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 68
Listaverkið Melkorka litla kom í skólann og spurði kennarann: Er hægt að refsa manni fyrir það sem maður hefur ekki gert? Kennarinn: Nei, auðvitað ekki. Melkorka: Gott. Ég lærði nefnilega ekki heima í dag. Hver hefur borðað grautinn minn? þrumaði bangsapabbi. Og hver hefur borðað grautinn minn? vældi litli húnninn. Æ, slappið þið af, sagði bangsa­ mamma pirruð. Ég nennti ekki að elda neinn graut handa ykkur í morgun. Ferðalangur hitti gamlan indíána­ höfðingja og spurði: Hvað heitir þú? Indíánahöfðingi: Svarti örn. Ferðalangur: Áttu son? Indíánahöfðingi: Já, hann heitir Hvíti fálki. Ferðalangur: En barnabörn? Indíánahöfðingi: Já, iPod og iPad. Brandarar Hekla Arnardóttir er listamaðurinn á bak við þessa páskamynd. Martin Bjarni vann Íslandsmeistara- titil í fjölþraut unglinga um síð- ustu helgi og  bætti svo við titlum fyrir  gólfæfingar, stökk, svifrá og tvíslá. Átti hann von á öllum þessum sigrum? Ég var búinn að æfa vel fyrir þetta mót og átti góðan séns, þrátt fyrir að hafa lent í meiðslum í upp- hitun á laugardeginum. Hvenær byrjaðir þú að æfa fim- leika? Þegar ég var fjögurra ára en fór tveggja ára í Íþróttaskóla barnanna á Selfossi. Nú æfi ég með Gerplu í Kópavogi sex sinnum í viku, þrjá tíma á dag. Hvernig er að búa á Selfossi og æfa í Kópavogi? Ég hef gert það síðan ég var fjögurra ára svo að það eðlilegt fyrir mig að keyra í 45 mín- útur eða taka strætó einn og hálfan tíma á æfingu. Ertu jafngóður á öllum áhöld- um? Bogahesturinn hefur reynst mér erfiður. Ég þarf að leggja enn harðar að mér þar svo að ég geti náð markmiðum mínum á Ólympíu- leikum æskunnar í Ungverjalandi í sumar. Ég er Norðurlandameistari í stökki. Gólf og svifrá eru í uppáhaldi, þau fá hjartað til að slá, sérstaklega tvöföld heljarstökk, margar skrúfur á gólfinu og flugæfingar á svifránni. Áttu fleiri áhugamál? Ég æfi fót- bolta með Selfossi og hef gaman af mörgum íþróttum. Hvað borðar þú eiginlega? Kjúkl- ing, fisk, kjöt, grænmeti og ávexti og drekk um þrjá lítra af vatni á dag. Drekk ekki gos en borða súkku- laði og ís í hófi. Ég hef ekki keypt mér laugardagsnammi í mörg ár og finnst jarðarber mun betri. Hvernig gengur í skólanum? Ég er í Sunnulækjarskóla og gengur mjög vel, reyni að klára allt í skól- anum, þá er lítið heimanám. Framtíðaráformin? Ég stefni á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 og þarf að vera duglegur að æfa til að ná því markmiði. Fimmfaldur Íslandsmeistari Martin Bjarni Guðmundsson er 16 ára Selfyssingur sem æfir fimleika í Kópavogi sex sinnum í viku og landaði fimm Íslands- meistaratitlum í unglingaflokki um síðustu helgi. Martin Bjarni Guðmundsson, Íslandsmeistari unglinga í fimm greinum fimleika. GLAMOUR fylgir nú með Stóra- og Risapakkanum Kynntu þér málið á 365.is Bragi Halldórsson 245 „Þetta finnst mér gaman, eldspýtnaþraut!“ sagði Lísaloppa og ljómaði öll. Ekki var Kata jafn ánægð. „Þú og þínar eldspýtnaþrautir,“ sagði hún önug. „Þér finnst þær bara skemmtilegar af því að þú ert betri í þeim en við,“ bætti hún við. „Sko,“ sagði Lísaloppa. „Hérna eru þrír jafn stórir ferhyrningar, getur þú fært til aðeins tvær eldspýtur svo úr verði klukkan 30 mínútur yfir fjögur?“ Róbert horfði vantrúaður á eldspýtnaþrautina. „Það er ekkert hægt að leysa þessa þraut,“ sagði hann fúll. „Svona nú,“ sagði Lísaloppa. „Þið getið nú reynt að leysa þessa þraut.“ „Nei,“ sagði Kata önug. „Ég neita að leysa fleiri eldspýtnaþrautir.“ „Þér gekk nú ekkert svo illa með þá síðustu var það nokkuð?“ sagði Lísaloppa. Kata hugsaði sig um smá stund. „Allt í lagi,“ sagði hún stundarhátt og það mátti heyra að keppnisskapið var komið í hana. „Upp með ermarnar, við leysum þetta.“ Getur þú leyst þessa eldspýtnaþraut? Það má aðeins færa tvær eldspýtur til að mynda klukkuna 30 mínútur yfir fjögur. Ekki má brjóta né beygja neina eldspýtu. Svar: Takið efstu eldspýtuna á fyrsta kassanum og færið hana fyrir neðan hægri eldspýtuna, þá eru þið komin með töluna fjóra. Færið svo eldspýtuna sem er vinstra megin í miðkassanum og setjið hana þvert inn í kassann, þá eru þið komin með töluna þrjá. 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r40 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A A -2 3 3 8 1 C A A -2 1 F C 1 C A A -2 0 C 0 1 C A A -1 F 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.