Fréttablaðið - 24.04.2017, Síða 4

Fréttablaðið - 24.04.2017, Síða 4
Umboðsaðili Jeep á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 FÁGUN STAÐALBÚNAÐUR *U pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da í bl ön du ðu m a ks tri Öflugur, kraftmikill og ríkulega útbúinn jeppi með frábæra aksturseiginleika. Komdu og reynsluaktu Sjálfskiptur 9 þrepa 2,2 l dísel 185 hestöfl eða 200 hestöfl Eyðsla 5,7 L/100 km* Verð frá 6.990.000 kr. jeep.is Samfélag Íslenskir unglingar eru hamingjusamari en meðalungling- ur, samkvæmt niðurstöðum PISA- rannsóknar Efnahags- og framfara- stofnunarinnar OECD sem fór fram árið 2015. Strákar eru almennt ánægðari með lífið en stelpur og hvergi er meiri munur milli kynja á lífsham- ingju en á Íslandi. Árið 2015 var vellíðan þátttak- enda í fyrsta sinn mæld í PISA- könnuninni sem 15 ára unglingar út um allan heim taka. Almennt eru nemendur tiltölulega ánægðir með líf sitt, stress vegna skólaverkefna og einelti dregur þó úr ánægju þeirra. Í öllum þátttökuríkjum mælast strákar ánægðari með lífið en stelp- ur. Tæplega 18 prósenta munur er á lífshamingju stráka og stelpna á Íslandi. Meðal útskýringa fyrir kynjamuninum er að mati OECD að á þessum aldri séu stelpur að færast úr því að vera börn í að verða full- orðnar og að sjálfsgagnrýni, meðal annars vegna útlits, geti verið mikil á þeim tíma. Gyða Margrét Pétursdóttir, lekt- or í kynjafræði við Háskóla Íslands, tekur undir þessa skýringu. „Þessar hugmyndir og skilaboð samfélagsins varðandi útlitið og annað fer að hafa áhrif á stúlkur á þessum aldri. Skilaboðin eru að þær séu ekki nógu góðar hvort sem það varðar útlit eða annað. Það er sérstakt rannsóknarefni hvers vegna hér mælist meiri munur en annars staðar. Við höfum haft þessa þekkingu, að stúlkum líður verr en drengjum, um nokkurt skeið en ég hef ekki séð þennan saman- burð áður, það er mikilvægt að skoða þetta,“ segir hún. Þar sem Ísland mælist með minnsta kynjabil í heimi á flesta mælikvarða sem rannsakaðir eru segir Gyða að velta megi fyrir sér hvort við höfum ákveðnar vænt- ingar um að samfélagið sé með ákveðnum hætti. En síðan sé upp- lifun okkar kannski ekki í takt við þær væntingar og það geti skapað meiri óánægju. Vísbendingar eru um að stelpur upplifi meira kvíða en strákar. Í öllum þátttökuríkjum greina stelp- ur frá meiri kvíða en strákar. Strákar eru að meðaltali 13 pró- sentum ólíklegri til að segjast vera stressaðir þegar þeir eru að læra en stelpur. Um 64 prósent stúlkna en 47 pró- sent stráka segjast kvíða prófum jafnvel þegar þau eru vel undirbúin, kynjamunurinn er sérstaklega áber- andi á Norðurlöndunum. saeunn@frettabladid.is Strákarnir eru hamingjusamari Samkvæmt PISA-rannsókn frá 2015 er 18 prósenta munur á lífshamingju stráka og stelpna á Íslandi. Lektor segir hugmyndir og skilaboð samfélagsins varðandi útlit og fleira farið að hafa áhrif á stúlkur á þessum aldri. Íslenskir strákar sem þreyttu PISA-prófið voru almennt ánægðari með lífið en stelpur. FréttAblAðIð/HAG menning Halldóra K. Thoroddsen hlýtur Bókmenntaverðlaun Evrópu- sambandsins í ár fyrir skáldsögu sína Tvöfalt gler sem kom út í fyrra. Verðlaunin eru veitt þátttöku- ríkjum Creative Europe, menn- ingaráætlun Evrópusambandsins. „Verðlaunin eiga að hampa framúr- skarandi hæfileikafólki sem er að þreifa sig áfram á bókmenntavell- inum, 12 höfundum á ári hverju,“ segir í tilkynningu. „Creative Europe styrkir alls 250 þúsund listamenn og starfsfólk í menningargeiranum, til dæmis með því að koma lista- verkum á framfæri á alþjóðavísu. Á árunum 2014-2020 verða veittar í áætlunina 1,46 milljarðar evra, eða um 173 milljarðar króna.“ Halldóra er fædd 1950. – gar Halldóra fær verðlaun ESB Það er sérstakt rann- sóknarefni hvers vegna hér mælist meiri munur en annars staðar. Gyða Margrét Péturs- dóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands Halldóra K. thoroddsen StjórnSýSla Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráð- herra í síðustu ríkisstjórn, verður á morgun settur stjórnarformaður Byggðstofnunar á ársfundi stofnun- arinnar sem haldinn verður í Skaga- firði. Þetta herma öruggar heimildir Fréttablaðsins. Herdís Á. Sæmundardóttir hefur setið undanfarin tvö ár sem for- maður stjórnar en hún var sett í embætti í apríl 2015 af Sigurði Inga Jóhannssyni, þáverandi ráðherra byggðamála og núverandi formanni Framsóknarflokksins. Núverandi ráðherra byggðamála, Jón Gunnarsson, ætlar því að skipta um stjórnarformann og velur hann Illuga til verksins. Fréttablaðið hefur ekki heimildir fyrir því hvort fleiri breytingar verði á stjórn Byggðastofnunar sem hefur styrkt sig mikið síðustu árin. Illugi Gunnarsson hóf þing- mennsku árið 2007 og sat á Alþingi fram að síðustu kosningum. Hann tók sér rúmlega árs leyfi frá þing- störfum á árunum 2010 og 2011 vegna stjórnarsetu í peninga- markaðssjóðum Glitnis sem voru til rannsóknar hjá sérstökum sak- sóknara. Byggðastofnun hefur síðustu ár skilað myndarlegum afgangi þrátt fyrir að markmið stofnunarinnar sé að veita lán til staða sem markaður- inn telur sig ekki geta lánað til. Til að mynda skilaði stofnunin rúm- lega 150 milljóna króna hagnaði í fyrra og er eigið fé hennar tæpir þrír milljarðar króna. Á r s l a u n st j ó r n a r f o r m a n n s Byggða stofnunar voru um 2,4 millj- ónir króna í fyrra. – sa Illugi Gunnarsson verður stjórnarformaður Byggðastofnunar Illugi Gunnarsson. FréttAblAðIð/Anton brInK UmhverfiSmál Árlega eru 300 milljón tonn af plasti framleidd í heimum. Skilar aðeins lítill hluti sér til endurvinnslu eða endurnýtingar. Meirihluti þess er urðaður eða endar í hafinu. Talið er að það verði meira af plasti en fiski í sjónum árið 2050. Íslendingur notar að meðaltali 40 kíló af plastumbúðum á ári. Land- vernd vekur athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi dag- ana 25. apríl til 7. maí með átakinu Hreinsum Ísland. Vonast er til að sem flestir leggi hönd á plóg og taki þátt í að minnka plastmengun. Er fólk hvatt til að nota minna plast. Skipuleggja má sína eigin strand- hreinsun og veitir Landvernd ráð á síðunni hreinsumisland.is. – sg Notum 40 kíló af plasti á mann 2 4 . a p r í l 2 0 1 7 m á n U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 2 -A 4 A 8 1 C B 2 -A 3 6 C 1 C B 2 -A 2 3 0 1 C B 2 -A 0 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.