Fréttablaðið - 24.04.2017, Qupperneq 8
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku
eða erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.550.000 kr.
(2.056.452 kr. án vsk)
Samgöngur Ný ferja sem mun
sigla milli Reykjavíkur og Akraness
verður tekin á leigu frá Noregi. Það
verður dótturfyrirtæki Eimskips,
Sæferðir, sem sér um rekstur ferj-
unnar. Reykjavíkurborg og Akranes
tóku tilboði fyrirtækisins að undan-
gengnu útboði.
Siglt verður þrisvar á dag, tvisvar
að morgni og einu sinni síðdegis.
„Við vorum í Noregi í síðustu viku
og sigldum einu skipi sem er svona
heitast í þetta. Við tökum þetta skip
á leigu í sex mánuði með kauprétti,“
segir Gunnlaugur Grettisson, fram-
kvæmdastjóri Sæferða.
Siglingin á að geta tekið innan
við 30 mínútur. Samkvæmt útboði
fá Sæferðir allt að 30 milljónir króna
samtals fyrir sex mánaða tímabil,
helming frá hvoru sveitarfélagi.
Þeir ferðaþjónustuaðilar á Akra-
nesi sem Fréttablaðið ræddi við
hafa væntingar um að ferjan muni
hafa jákvæð áhrif á atvinnulífið í
bænum.
„Ég hugsa að þetta muni til
skemmri tíma hafa meiri áhrif á
veitingaþjónustuna og almennan
bæjarbrag. Fólk getur fengið þarna
stutta ferð yfir og til baka,“ segir
Eggert Herbertsson, sem rekur þrjú
gistiheimili undir merkjum Stay
Akranes.
Eggert telur siglingarnar geta
aukið áhuga á dagsferðum til Akra-
ness, á árlegt lopapeysuball og aðra
viðburði tengda bæjarlífinu. Hins
vegar þurfi að markaðssetja Akranes
betur sem gististað til að ferjan hafi
áhrif á eftirspurn eftir gistingu.
„Ég veit ekki hversu auðvelt er að
gera það fyrir þetta sumar og þetta
verkefni er bara tilraun. En ef þetta
yrði varanlegt þá hugsa ég að þetta
gæti haft töluverð áhrif,“ segir Egg-
ert.
Hilmar Sigvaldason, sem rekur
Vitann á Akranesi, telur að sigling-
arnar hafi góð áhrif á sinn rekstur.
„Við erum líka að fara að fá
skemmtiferðaskip í sumar. Þetta
hjálpar allt saman til,“ segir hann.
Hilmar segir Vitann vera svip-
aðan stað og Gróttu í Reykjavík.
Þangað sæki fullt af fólki sem aldr-
ei hafi séð sjó. Þá sé góður hljóm-
burður í Vitanum og þar séu haldnir
tónleikar reglulega. Hann segir 40
þúsund manns hafa sótt Vitann á
síðustu fimm árum og býst við að
ferjan muni auka aðsóknina.
jonhakon@frettabladid.is
Telja ferðaþjónustuna á Akranesi
eflast með nýrri Reykjavíkurferju
Búist er við að ferjusiglingar milli Reykjavíkur og Akraness hafi góð áhrif á ferðaþjónustu á síðarnefnda staðnum.
Reykjavík og Akranes buðu hvort um sig 15 milljónir fyrir samning um siglingarnar. Siglt verður þrisvar á dag.
Dótturfélag Eimskips annast rekstur ferjunnar sem tekin er á leigu frá Noregi. Siglingin á að taka þrjátíu mínútur.
StjórnSýSla Mygla hefur fundist í
húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur,
meðal annars á skrifstofum dómara.
Stutt er síðan velferðarráðuneytið
flutti vegna myglu en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um fram-
haldið hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
„Það á að fara í endurnýjun á
fimmtu hæðinni í húsinu í sumar,
og stóð til að gera það hvort sem
er. Í tilefni þess ákváðum við að
taka sýni og athuga hvort þar væri
einhver óværa því menn töldu sig
hafa fundið einkenni og slíkt,“ segir
Friðrik Þ. Stefánsson, rekstrar- og
mannauðsstjóri dómsins.
Sérstaklega mikil mygla var á
skrifstofu dómstjórans Ingimundar
Einarssonar sem hefur verið í náms-
leyfi frá áramótum. Eftir því sem
næst verður komist hefur enginn
þurft að fara í veikindaleyfi vegna
einkenna frá myglunni.
„Við höfum svo sem ekkert enn
um umfangið á þessu. Við höfum
líka ekkert í höndunum sem tengir
þetta heilsufari fólks. Þetta er mjög
einstaklingsbundið og fólk er misút-
sett fyrir þessu.“
Til stendur að ræða málið hjá
Fasteignum ríkissjóðs og taka í kjöl-
farið ákvörðun um framhaldið.
„Við erum komin í gang með að
laga þar sem við vitum að mælist
mygla en erum ekki búin að marka
okkur neina stefnu um það hversu
langt sú skoðun nær. Við viljum
helst fá að ganga úr skugga um að
þetta sé allt saman í lagi,“ segir Frið-
rik. – snæ
Mygla í Héraðsdómi Reykjavíkur
Við erum líka að
fara að fá skemmti-
ferðaskip í sumar. Þetta
hjálpar allt saman til.
Hilmar Sigvaldason,
sem rekur Vitann á
Akranesi
Þetta er mjög
einstaklingsbundið
og fólk er misútsett fyrir
þessu.
Friðrik Þ. Stefánsson, rekstrar- og
mannauðsstjóri Héraðsdóms
Reykjavíkur
2 4 . a p r í l 2 0 1 7 m Á n u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-B
3
7
8
1
C
B
2
-B
2
3
C
1
C
B
2
-B
1
0
0
1
C
B
2
-A
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K