Fréttablaðið - 24.04.2017, Side 12
2 4 . a p r í l 2 0 1 7 M Á N U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð
sport
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. KA
8. Víkingur R.
9. ÍBV
10. ÍA
11. Grindavík
12. Víkingur Ólafsvík
SpÁ 2017
KA: Spennandi sumar fram undan Markaðurinn Þjálfarinn
Íþróttadeild 365 heldur áfram
niðurtalningu fyrir nýtt keppnis-
tímabil í Pepsi-deild karla í dag
með árlegri spá sinni um deildina.
Spánni verða gerð skil í öllum
miðlum okkar – hún birtist fyrst
í Fréttablaðinu en verður svo
fylgt eftir í ítarlegri útgáfu á
Vísi sem og í kvöldfréttum
Stöðvar 2.
Íþróttadeild 365
spáir nýliðum KA 7.
sæti deildarinnar.
Srdjan Tufegdzic
stýrði KA til sigurs í
Inkasso-deildinni í fyrra
og liðið leikur því í efstu
deild í fyrsta sinn síðan 2004.
„Mér líst ágætlega á KA en það
vantar markaskorara í liðið,“ segir
Hjörvar Hafliðason, einn sérfræð-
inga Pepsi-markanna. Hann hefur
mestar áhyggjur af markvörslunni
hjá KA en hinn 41 árs gamli Srdjan
Rajkovic ver mark liðsins.
„Hann stóð sig mjög vel í
fyrra en var í erfiðleikum
síðast þegar hann var
í Pepsi-deildinni með
Þór. Ef Rajkovic spilar
eins og í fyrra er þetta
ekki vesen.“
KA á afskaplega
erfiða byrjun á Íslands-
mótinu en liðið mætir
Breiðabliki, FH og Stjörn-
unni á útivelli í fyrstu
fimm umferðunum.
komnir
Ásgeir Sigurgeirsson (Stabæk)
Darko Bulatovic (Cukaricki)
Emil Lyng (Silkeborg)
Kristófer Páll Viðarsson (Víkingur R.,
á láni)
Steinþór Freyr Þorsteinsson
(Sandnes Ulf)
Farnir
Juraj Grizlej (Keflavík)
Kristján Freyr Óðinsson (Dalvík/
Reynir)
Pétur Heiðar Kristjánsson (Magni)
Orri Gústafsson (fluttur erlendis)
Srdjan Tufegdzic
Túfa kom fyrst til KA
sem leikmaður
árið 2006. Var
aðstoðarmaður
Bjarna Jóhanns-
sonar og tók svo
við af honum í ágúst
2015. KA vann Inkasso-deildina
undir stjórn Túfa í fyrra og tryggði
sér sæti í Pepsi-deildinni.
Þrír sem stólað er á
l Guðmann Þórisson
l Almarr Ormarsson
l Hallgrímur Mar Steingríms-
son
pepSi-DeilDiN
Besti og versti mögulegi árangur 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12.
Bikarinn fór ekki á loft í Hólminum
Íslandsmeistararnir enn á lífi Snæfell vann átta stiga sigur á Keflavík, 68-60, í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna. Íslandsmeistararnir
komu því í veg fyrir að Keflvíkingar lyftu bikarnum á sínum heimavelli. Fjórði leikur liðanna fer fram í Sláturhúsinu í Keflavík á miðvikudaginn. FréTTaBlaðið/Sumarliði áSgeirSSon
haNDBolti Valsmenn fara með átta
marka forskot til Rúmeníu eftir
30-22 sigur á AHC Potaissa Turda í
fyrri leik liðanna í undanúrslitum
Áskorendabikars Evrópu á laugar-
daginn. Frábær úrslit hjá Val sem
var miklu sterkari aðilinn í leiknum.
Varnarleikur Valsmanna var gríðar-
lega öflugur með bræðurna Orra
Frey og Ými Örn Gíslasyni í broddi
fylkingar og hinn síungi Hlynur
Morthens varði vel í markinu. Vals-
menn voru skynsamir í sókninni
þótt þeir hefðu tapað fullmörgum
boltum í fyrri hálfleik. Þá fóru þrjú
vítaköst í súginn.
„Maður þorði
e k k i a l ve g
að von-
ast eftir
þessum
úrslitum
en við erum
gríðarlega ánægðir,“
sagði Guðlaugur Arnars-
son, annar þjálfara Vals, eftir leik-
inn.
„Við fórum inn í leikinn til þess
að reyna að vinna hann með sem
flestum mörkum og það gekk vel í
dag. Það var rosalega mikilvægt að
vinna með átta og fá bara á okkur
22 mörk. Við erum
að fara á gríðarlega
erfiðan útivöll.
Núna er bara hálf-
leikur og maður
verður bara að líta á
þetta þannig að við
séum átta mörkum
yfir.“
Valur fékk fram-
lag frá mörgum
l e i k m ö n n u m í
sókninni í leiknum
á l a u g a r d a g i n n .
Vignir Stefánsson
heldur áfram að
spila eins og engill og skoraði sjö
mörk úr vinstra horninu. Sveinn
Aron Sveinsson var með sex úr því
hægra. Þá hrökk króatíska skyttan
Josip Juric Grgic heldur betur í gang
undir lokin. Hann var markalaus
allt fram á 47. mínútu en skoraði
svo átta mörk á síðustu 13 mínútum
leiksins.
Seinni leikurinn Potaissa Turda
fer fram ytra á sunnudaginn kemur.
Í millitíðinni mætir Valur Fram í
öðrum leik liðanna í undanúrslitum
Olís-deildar karla. Valsmenn unnu
fyrsta leikinn örugglega, 23-31, og
leiða einvígið 1-0. ingvithor@365.is
Átta marka veganesti hjá Val
Frábær varnarleikur Vals gerði gæfumuninn í 30-22 sigri á rúmenska liðinu AHC Potaissa Turda í fyrradag.
KR komið upp
haNDBolti KR
leikur í Olís-
deild karla á
næsta tímabili,
að því gefnu að
liðum í deildinni
verði fjölgað úr 10
í 12, sem allar líkur eru
á. Arnar Jón Agnarsson tryggði KR
sigur á Víkingi, 29-28, þegar hann
skoraði sigurmarkið á lokasek-
úndum framlengingar í öðrum leik
liðanna í umspili á laugardaginn.
KR-ingar unnu báða leiki liðanna
og mæta annaðhvort ÍR eða Þrótti
í úrslitaeinvígi umspilsins. Fari svo
að liðum verði ekki fjölgað fer liðið
sem vinnur umspilið upp í Olís-
deildina. KR átti síðast lið í efstu
deild karla í handbolta tímabilið
1995-96. Þá lék Ágúst Jóhannsson,
þjálfari KR í dag, með liðinu. - iþs
2
4
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-9
A
C
8
1
C
B
2
-9
9
8
C
1
C
B
2
-9
8
5
0
1
C
B
2
-9
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K