Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2017, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 24.04.2017, Qupperneq 32
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Oddrún S. Halldórsdóttir Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, áður Njálsgötu 3, Reykjavík, sem lést á Hrafnistu Nesvöllum þann 6. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þann 26. apríl kl. 13.00. Ingibjörg Miltimore Sigríður Brynjólfsdóttir Gunnar Brynjólfsson Hrafnhildur Gunnarsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Gunnar Guðlaugsson barnabörn, langömmu- og langalangömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Ingibjörg Ólafía Rósants Stefánsdóttir Einivöllum 7, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 17. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 28. apríl kl. 13.00. Jens Evertsson Jóhanna Sigrún Jensdóttir Gísli H. Guðlaugsson Evert Stefán Jensson Marivena M. Marcial Jensson Karlotta Jensdóttir Jón Einarsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrönn Sveinsdóttir Borgarhrauni 4, Hveragerði, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 11. apríl. Að hennar ósk fór útförin fram í kyrrþey. Bestu þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og líknardeildarinnar fyrir yndislega umönnun og hlýtt viðmót. Helga Bjarnadóttir Eiríkur Ellertsson Sigurður Blöndal Sveinn Frímann Bjarnason Íris Hall Svava Brynja Bjarnadóttir Guðjón Pétur Arnarson barnabörn, tengdabörn og langömmubörn. Ég vona að allir Seltirningar og vandamenn Gróttu komi að heim-sækja okkur,“ segir Kristín Finn- bogadóttir, framkvæmdastjóri Gróttu. Íþróttafélagið er fimmtíu ára gamalt í dag og fer skipulögð dagskrá fram í dag, en einnig á fimmtudag, föstudag og laugardag. Páll Óskar mætir í dag og treður upp í Hertz-höllinni og einnig verða ávörp og ræður, vegleg myndasýning og veitingar í boði. „Það verður flott dagskrá í dag. Hápunktur hátíðarhaldanna er í dag því það er afmælisdagurinn og því aðal- dagurinn. Við vonum að Seltirningar komi allir og fagni með okkur. Fái sér köku og börnin fái andlitsmálningu og allt þetta venjulega. Forsetinn ætlar að koma að heimsækja okkur, hann bjó nú hérna hjá okkur,“ segir Kristín. „Þetta er opið hús og við vonum svo sannarlega að það komi fullt af fólki.“ Grótta er með þrjár íþróttadeildir, fótbolta, handbolta og fimleika. Iðk- endur er yfir þúsund og á öllum aldri, frá þriggja ára og upp úr. Kristín er búin að vera framkvæmda- stjóri Gróttu í fjórtán ár og hefur séð félagið taka miklum breytingum á þeim tíma. „Ég hef séð handboltann verða fyrsta boltaliðið okkar sem vinnur stórtitla, í hitteðfyrra urðum við deildar-, bikar- og Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna og í fyrra urðum við Íslandsmeistarar. Það er stórkost- legur árangur og hefur aldrei gerst í sögu félagsins áður. Það var alveg frábært. Fótboltinn er svo að fara í fyrsta sinn upp í fyrstu deild og það er alveg stór- kostlegt, þeir voru í fjórðu deild þegar ég byrjaði hérna.“ Kristín segir því ljóst að það sé heilmikið að gerast hjá íþrótta- félaginu. Litið fram á veginn segist Kristín ekki eiga von á því að bætt verði við íþrótta- greinum hjá félaginu eins og staðan er í dag, framkvæmdir séu þó fram undan. „Nú er verið að stækka íþróttamiðstöð- ina, það verður byrjað á því í haust. Það verður töluvert mikil aukning á plássi og betri aðstaða. Það verður aðallega fim- leikasalurinn sem verður stækkaður en í framhaldinu losnar um í hinum sölunum sem er mjög hagkvæmt fyrir hinar deildirnar.“ Hátíðardagskráin heldur sem fyrr segir áfram út vikuna og lýkur með Palla- balli á laugardagskvöldinu. „Það koma bara vonandi sem flestir á Pallaballið,“ segir Kristín að lokum. saeunn@frettabladid.is Fimmtugsafmæli Gróttu fagnað út alla vikuna Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi verður fimmtíu ára í dag. Um þúsund iðkendur eru hjá íþróttafélaginu sem býður upp á handbolta, fótbolta og fimleika. Hátíðardag- skrá fer fram í Hertz-höllinni í dag. Fleiri viðburðir verða svo haldnir út vikuna. Merkisatburðir 1840 Sveinn Pálsson lætur lífið þennan dag, en hann var íslenskur læknir og náttúrufræðingur mikill. 1914 Dauðadómur er kveðinn upp í síðasta sinn á Íslandi en dóminum er síðar breytt í ævilangt fangelsi. 1953 Elísabet II Bretadrottning slær Winston Churchill til riddara. 1965 Borgarastyrjöldin í Dóminíska lýðveldinu hefst. 1968 Márítíus verður fullgildur meðlimur í Sameinuðu þjóðunum. 1977 Tékkneski stórmeistarinn í skák Vlastimil Hort setur heimsmet í fjöltefli á Seltjarnarnesi þegar hann teflir við 550 manns á rúmum sólarhring. 1978 Dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri skýrir frá at- hugun Seðlabankans á nýjum gjaldmiðli sem yrði hundrað sinnum verðmeiri en núgildandi króna. 1982 Jón Páll Sigmarsson setur tvö Evrópumet á móti í Sjónvarpinu. 1994 Magnús Scheving nær öðru sæti á heimsmeistara- móti í þolfimi, sem haldið er í Japan. 2009 Varað er við svínaflensufaraldri. Við vonum að Seltirn- ingar komi allir og fagni með okkur. Fái sér köku og börnin fái andlitsmálningu og allt þetta venjulega. Kristín Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Gróttu Páskauppreisnin, sem hófst á öðrum degi páska árið 1916, var vopnuð uppreisn af hálfu Íra gegn breskum yfirráðum á Írlandi. Uppreisnin er frægasta tilraun herskárra írskra lýð- veldissinna til þess að ná fram sjálf- stæði Írlands með valdi. Það var „Hið írska bræðralag lýð- veldisins“ sem skipulagði uppreisnina, tók yfir pósthús borgarinnar og lýsti þar yfir sjálfstæði Írlands. Lýðveldissinnarnir náðu smátt og smátt yfirráðum víðs vegar um borgina. Bretar sneru vörn í sókn og nokkrum dögum seinna var upp- reisnin brotin á bak aftur. Uppreisnar- mennirnir nutu ekki mikils stuðnings meðal almennings, því litið var á þá sem óábyrga ævintýramenn. Almenningsálitið snerist þó á sveif með uppreisnarmönnunum eftir að það spurðist út að fimmtán þeirra hefðu verið teknir af lífi. Vopnuð átök héldu áfram næstu árin og Írar fögnuðu svo sjálfstæði árið 1922 með stofnun lýðveldis. Þ etta G e r ð I St : 2 4 . a P r Í L 1 9 1 6 Páskauppreisnin hefst Páskauppreisnin á Írlandi. Kristín Finnbogadóttir hefur verið framkvæmdastjóri Gróttu í fjórtán ár. Fréttablaðið/Ernir 2 4 . a p r í l 2 0 1 7 M Á N U D a G U r16 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B l a ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C B 2 -A 4 A 8 1 C B 2 -A 3 6 C 1 C B 2 -A 2 3 0 1 C B 2 -A 0 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.