Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1981, Side 5

Norðurslóð - 16.12.1981, Side 5
HJÓNIN í BREKKU Á DALVÍK Brotabrot af starfssögu Austan Hafnarbrautar á Dalvík er lítið, vinalegt, gamalt timbur- hús nr. 21. Húsið heitir Brekka í höfuðið á Brekku í Svarfaðar- dal, fæðingarstað Jóhanns Sveinbjarnarsonar, sem byggði það nálægt 1920. í þessu húsi hafa búið í meira en hálfa öld hjónin Anna Arn- grímsdóttir og Kristján Eldjárn Jóhannesson. Þau keyptu húsið árið 1925 af Þorsteini kaup- manni, sem þá hafði eignast það, og hafa átt þar heima síðan. En það verðurekki mikið lengur úr þessu, því til stendur að þau flytji sig upp í Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík e.t.v. um það leyti, sem þetta blað kemur í hendur lesenda. M.a. fyrir þær sakir þótti vel við eiga, að blaðamaður frá Norðurslóð fengi að líta inn til þeirra og eiga við þau smávið- tal. Það var auðsótt mál og kom undirritaður í 2 stuttar heim- sóknir og hafði þá ekki komið inn í þetta hús síðan I927eða28 þegar þau bjuggu þarna í einu herbergi gömlu hjónaleysin Jón og Guðrún, sem lengi áttu heima á Tjörn. Svo það eru 53- 54 ár síðan það var. Þau eru hress í anda og skemmtileg við að ræða þau Anna og Kristján, þótt aldurinn sé orðinn nokkuð hár. Og þaðer hlýlegt í kring um þau og margar eru fjölskyldumyndirn- ar, sem Anna hefurstillt upp um veggi og hillur í stofunum sínum. Mér taldist þær vera hátt í eitt hundrað. Heilsa þeirra beggja er að vísu farin að bila. Kristján hefur litla fótavist nema þá í hjólastólnum, en hann er léttur í máli og ágætt við hann að tala. Anna hefur verið á sjúkrahúsi nýlega en ber þess ekki merki. Hún er létt í hreyfingum og með sanni má segja að áldurinn hafi farið mjúkum höndum um vanga hennar og brár, svo skáldlega sé tekið til orða. Það sem hér er skráð eftir þessar heimsóknir er alls ekki viðtal í venjulegum skilningi. Fremur mætti kalla það laus- lega endursögn’af því sem rætt var og vonar undirritaður að ekki sé um að ræða slæmar missagnir. Sagan af lífshlaupi þeirra Önnu og Kristjáns er að ýmsu leyti athyglisverð fyrir Dalvík- inga. Hún spannar svo langt tímaskeið í sögu staðarins oger ágætt dæmi af fólki sem settist að í þorpinu á unga aldri, vann þar hörðum höndum langan æfidag og átti góðan þátt í að gera það að þeim myndarlega bæ, sem nú er vaxinn upp. Rætur í svarfdælskri mold. Bæði eru þau hjónin sprott- in upp fram í sveitinni. Kristján er frá Ytra-Holti, sonur þeirra Jóhannesar Þorkelssonar og Guðrúnar Gísladóttur, sem þar gerðu garðinn frægan báðum megin aldamótanna. Hann fæddist þar 20. desember 1898. Anna fæddist á Brúarlandi í Deildardal í Skagafirði. 20. janúar 1898. En hreinræktaður Svarfdælingur er hún eigi að síður, því foreldrar hennar Arngrímur Jónsson og Ingi- gerður Sigfúsdóttir (Inga í Vegamótum) voru aðeins 2-3 ár fyrir vestan. Inga bar Önnu dóttur sína, eins árs gamla, á handleggnum vestan yfir Helj- ardalsheiði. Næstu árin voru þau á nokkrum stöðum í mið- sveitinni, Jarðbrú, Tjarnar- garðshorni, en lengst þó í Brekku. Arngrímur fórst með hákarlaskipinu Kjærstine sum- arið 1910. Það var ekki auður í búi foreldra hennar, svo önnu var komið fyrir hjá góðu fólki á uppvaxtarárunum. Sérstaklega nefnir hún Klaufabrekknahjón- in Steinunni og Sigtrygg. Hún segir forkostulega sögu af ferð sinni og þeirra mæðgna niður að Upsum, þegar hún var fermd þar af sr. Kristjáni á Tjörn árið 1912. Þá var ill torfæra á leið, sem var Holtsáin, og brúin einungis spýtuplanki. Og auð- vitað lentu þær allar í ánni og blotnuðu upp fyrir höfuð. (Krist- ján var hins vegar fermdur á Tjörn árið eftir, því presturinn, nafni hans, mun hafa fermt í kirkjum sínum þremur sitt árið í hverri.) Nýfermd hleypti Anna heima draganum, þegar hún fór í vist vestur á Flateyri við Öndunar- fjörð til þeirra Guðrúnar og Snorra móðurbróður hennar, sem þá gerðist skólastjóri á Flateyri. Og víðar lá leiðin, til Hríseyjar, til Akureyrar og aftur hingað þeim m.a. í vist í S-Holti til Gunnlaugs og Sigríðar (í Vallaholti) og þá gerðust örlaga rík kynni. í Ytra-Etolti bjuggu sem sagt Jóhannes og Guðrún og meðal barna þeirra var Kristján Eldjárn, sem húsfreyja hafði látið heita eftir presti sínum eins og títt var á þeim tímum. Heimilið í Y-Holti var talið í röð betri heimila hvað efnahag snerti og studdist við sjósókn, eins og svo algengt var hér í sveit. Kristján vandist því snemma að vinna hörðum höndum frammi í sveit og niður við sjó, eins og þá var sjálfsagður hlutur og er reyndar enn. Einhver æfin- týraþrá hefur þó búið með unga manninum, sem lýsti sér t.d. í því, að hann dreif sig til Akureyrar einkum til þess að læra ljósmyndagerð hjá Hall- dóri Arnórssyni ljósmyndara. (Þar rakst hann á myndplötu af Birni Snorrasyni, fékk hana lánaða og gerði eftir henni póst- kost þau af Birni, sem enn eru til og birtist reyndar á öðrum stað hér í blaðinu.) Um þetta leyti hafa örlaga- nornirnar verið í óða önn að spinna þræðina í kring um Önnu og Kristján. Þau urðu nágrannar eins og áður sagði, sitt í hvoru Holtinu og nú var m.a.s. komin góð brú á ana, svo allir hlutir gátu gerst. En af því fara ekki sögur hvað gerðist, enda ekki um neina yfir- heyrslu hér að ræða. Staðreynd- in er hinsvegar sú, að þann 24. mars 1920, á þeim mikla snjóa- vetri, þegar blaðamaðurinn var nákvæmlega eins mánaðar gamall, keifuðu þau snjóinnyfir í Velli með leyfisbréf í hönd- unum, þar sem skrifað stendur, að Kristján 10. af guðs náð konungur íslands o.s.frv. gefi sitt allranáðugasta leyfi til að þau séu gefin saman í heilagt hjónaband án undangenginna lýsinga. Og það gerði sr. Stefán Kristinsson með mestu ánægju þar í kirkjunni og frú Sólveig skenkti ungu hjónunum gott kaffi á eftir og allt var í lukk- unnar velstandi. Úr sveit að sjó. Á þessum árum bjó Kristinn Jónsson, hálfbróðir Kristjáns, á Ingvörum. Hann hafði byggt þar timburhús meðal þeirra fyrstu hér í sveit. Þarna settust þau að Anna og Kristján fyrst um sinn, því ekkert þak áttu þau sjálf yfir höfuðið. Þar fæddist Þórarinn sonur þeirra í miðjum júní um vorið. í sveitinni var ekki margra kosta völ, hvað atvinnu snerti. jarðir voru allar setnar og ungu hjónin á Ingvörum litu íaðraátt sér til bjargræðis. Dalvík var á næsta leiti. Þar var útgerð í vexti og fiskverkun mikil. Mótorbát- ar og saltfiskur, þar var gang- verk atvinnulífsins í plássinu. Þangað leitaði Kristján til at- vinnu yfir vertíðina, en á veturna stundaði hann m.a. járnsmíðar með Kristni bróður sínum, sem um þessar mundir var að koma upp smiðju sinni á Dalvík. Það var því sjálfgefinn hlutur að búleysingjarnir á Ingvörum færu að svipast um eftir hú$- næði á Dalvík. Og þangað fluttu þau 1922 og fengu leigt í Vall- holti hjá Gunnlaugi og Sigríði, sem höfðu byggt húsið og flust þangað 1920. Þarna voru þá ungu hjónin komin til fyrirheitna landsins með drenginn sinn en harla lítið af öðrum veraldarauði í far- angri sínum. En þau voru ung og hraust og horfðu vonglöð mót komandi tímum í kauptúni með vaxandi atvinnumöguleika. Hann rær á sjóinn og hún beitir línuna. Saga Önnu og Kristjáns næstu árin hlýtur jafnframt að vera saga Dalvíkur yfirleitt. Mótorbátaútvegurinn var í al- gleymingi með línu og handfæri og í landi var vinnan við línuna og verkun saltfisksins í sjóbúð- um og á malarkambinum. Nóg var að gera, en svo þurfti líka endilega að komast yfir eigið húsnæði. Það hefur víst verið 1925, sem Kristján réðst í það stórræði að kaupa nýlegt timburhús á steypt um kjallara, Brekku, af Þor- steini kaupmanni, sem að sínu leyti hafði keypt það af Jóhanni Sveinbjarnarsyni. Kaupverðið var kr. 4.500,00 og þeir pening- ar voru auðvitað ekki til nema í Sparisjóðnum. Þar fékk Krist- ján 4000 krónu lán gegn veði í húsinu og ábyrgð tveggja góðra manna. Og enginn skyldi halda, að það hafði verið leikandi létt að standa undir þessari summu og greiða tilskilda vexti. Kristján greiddi lánið upp að fullu 40 árum síðar, en játar, að hann hefði nú geta gert það fyrr. Þau hjónin sóttu bæði vinnu af kappi. Allt var það tengt útgerð bæði á Dalvík, í Ólafs- firði í Héðinsfirði og á Siglu- firði. Þau unnu t.d. við útgerð Angantýs Arngrímssonar í Sandgerði. Hann gerði út bát- ana Skíða og Laxinn. Kristján var mótoristi, Anna vann sitt á hvað við beitingu og uppstokk- un línunnar og svo í eldhúsinu hjá Elínu, því margir voru þar í fæði, þegar róið var. Seinna var Kr. mótoristi á Leifi heppna. Svo eignaðist hann sjálfur báta og rak eigin útgerð og fiskverkun. Hann keypti lítinn norskan vélbát, Sendling, og annan átti hann, sem Agnar hét og enn aðra. Hér er mjög svo stiklað á stóru, því í þetta volk á sjó og landi fóru 1-2 tugir bestu starfs- ára þeirra hjóna. Öll ber sú saga keim af sjávarseltu, tjöru ogolíu i eins og gengur við sjávarsíðuna. Og öll er hún undir merkjum vinnu, látlausrar vinnu við súrt og sætt. Ekki kvarta þau undan því, síður en svo, vinnan hefur aldrei verið þeim böl, þvert á móti. Lífið er fleira en fiskur. Svo stækkaði líka fjölskyld- an. Á árunum 1925-32 bættust þeim hjónum 3 dætur í búið Hrönn, Ingunn og Birna. Að auki ólu þau upp sem dóttur sína Guðlaugu Þorbergsdóttur úr Ólafsfirði. Anna hefurgreini- lega ekki gert mikið upp á milli fósturdóttur sinnar ogsinnaeig- in dætra. Þegar hún er nú að telja saman afkomendahópinn, þá vilja börn Guðlaugar alltaf ruglast saman við. Á þessum árum þótti sú fjöl- skylda á Dalvík ekki vel á vegi stödd með barnauppeldi, sem ekki hafði góðan aðgang að mjólk og helst líka einhverju kjötmeti. Því var það, að þegar Guð- rún, móðir Kristjáns, fluttist til Dalvíkur frá Ytra-Holti, þá orðin ekkja, og með henni yngsti sonurinn Þorsteinn, þá höfðu þau með séreina kú, sem komið var fyrir í kjallaranum í Brekku. Og þar var komin mjólkin, sú blessaða lífsins lind fyrir börn í uppvexti. Kindurnar urðu hins vegar aldrei nema tvær, hafðar mest til gamans, og mátti ekki minna vera. Ekki gekk búskapurinn áfallalaust þótt smár væri. Þau eiguðust 2-3 kýr eftir þessa og sú síðasta dó úr bráðri júgurbólgu, nýborin. Kom fárveik sunnan af Flæðum eitt kvöldið snemma sumars. Það endaði með því að hún var skotin og skrokkurinn grafinn í heilu lagi. Anna man það enn og getur þess með greinilegri eftirsjá, að það voru 22 merkur í kusu morguninn, sem hún var rekin á beit suður á Flæðar í síðasta sinn - - og lái henni hver sem vill. íbúðarhúsið, Brekka, skemmd- ist mikið í jarðskjálftanum 1934, kjallarinn sprakk allur og skekktist. Hann var auðvitað lagfærður, og þá var líka byggður skúrinn norðan við, sem m.a. var fjós og fjárhús í nokkur ár. Þess skal getið að þau mæðgin Gurún og Þorsteinn bjuggu um skeið í húsinu hjá þeim hjónum, en bráðlega byggði Steini svo sitt eigið hús næst sunnan við, þ.e. húsið Garðar. Ný verkefni. Eitt þeirra húsa á Dalvík, sem kurlaðist í jarðskjálftanum, var íshús útgerðarmanna í Láginni. Það var upp úr þvísem KEA fór í það að byggja fyrsta vísi að raunverulegu frystihúsi þar út- frá. Fyrst um sinn var það aðal- lega hugsað sem kjötfrystihús, en brátt þróaðist það í annað og meira, og verður sú saga ekki sögð hér. En nú vantaði sem sé menn sem kunnu skil á frystivélum og að gæta frystihúss. Frímann Sigurðsson varð fyrsti frystihús- stjórinn, en með honum var ráðinn sem vélamaður enginn annar en Kristján sá, sem hér um ræðir. Hann var sendur til Reykjavíkur á námskeið. Bráð- lega hvarf Frímann til annarra starfa hjá Kaupfélaginu og þá tók Kr. við frystihússtjórastarf- inu og gegndi því til áramóta 1949-50. Með þessu gegndi hann svo fleiri störfum. T.d. var hann trúnaðarmaður síldarútvegs- nefndar á Dalvík, fiskimats- maður o.fl. og í þetta fór heill áratugur og meira þó. Jafn- framt tók hann mikinn þátt í margskonar félagsstarfi. T.d. (f 'ramhald a bls. 18) Anna og Kristján áður en þau fiuttu í Dalbæ. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.