Norðurslóð - 16.12.1981, Page 8
Halla og'Kolbrún syngja, Kári spilar undir.
Frá Svarfdælinga-
samtökunum
Árshátíð Svarfdælingasamtak-
anna var haldin með pomp og
pragt 28. nóv. s.l. og þótti takast
forkunnar vel. Húsfyllir varð og
komust reyndar færri en vildu.
Margt var sér til gamans gert að
vanda. Bjarki Elíasson var
veislustjóri og fylkti veislugest-
um af röggsemi gegn veislukrás-
unum. Gekk liðið vasklega fram
og í tveimur eða þremur atlög-
um lagði það af velli hákarla og
naut, hrútspunga og lambalæri,
rófustöppu og heilan herskara
af kartöflumúsum. Sigurbjörg
Árnadóttir frá Hæringstöðum
flutti minni Svajfaðardals og
fléttaði af listfengi saman barns-
leg minningarbrot og gaman-
mál. Halla Jónasdóttir og Kol-
brún Arngrímsdóttir sungu ein-
söng- og tvísöngslög við píanó-
undirleik Kára Gestssonar og
lét sá flutningur Ijúft í eyrum.
Auk þess tróð upp kór Kennara-
háskólans og flutti nokkur lög
af mikili söngsins list. Að lokum
stjórnaði Gunnlaugur Snævarr
spurningaþætti í léttum dúr og
lét reyna á heilasellur manna.
Síðan hófust almennar umræð-
ur á bar og um bekki milli þess
sem gengið var í dansinn. Var
Nýr umboðsaðili
Olís á Dalvík
Um síðustu mánaðarmót tók
Víkursmiðjan s.f. Hafnarbraut
21 við umboði Olíuverslunar
Íslands-Olís-, á Dalvík. Sala á
olíuvörum frá Olís hafði þá
legið niðri um skeið, eða allt frá
því að B.P. umboðið sem
Eiríkur Líndals veitti forstöðu
var lagt niður við lát Eiríks.
Þar sem ekki var í eigu Olís
hér á Dalvík neinn olíugeymir,
var gripið til þess ráðs að flytja
bráðabirgðageymi frá Húsavík
hingað, svo og dælu og geymslu
skúr. Hvorttveggja var komið
fyrir utan við fiskverkunarhús
Jóhannesar og Helga, helgina 5-
6 desember. Næsta vor er síðan
fyrirhuguð bygging söluskála á
vegum Olís, á lóð þeirri sem
félaginu var úthlutað á sínum
tíma, og er staðsett sunnan við
lóð Óskars Jónssonarogc/o við
Gunnarsbraut.
Fyrst um sinn verður ekki um
sölu á benzíni að ræða, en allar
aðrar vörur frá Olís verða á
boðstólnum. Má sem dæmi
nefna Aqualeal þéttiefni og fúa-
varnarefni sem reynst hafa mjög
vel hérlendis og Visco Coranda
fjölþykktarolíuna, sem er nýj-
asta fjölþykktarolían frá Olís.
Stendur hún jafnfætis öllum
bestu fáanlegu fjölþykktarolí-
um öðrum.
Ætlun forráðamanna um-
boðsins er að kappkosta sem
frekast má þjónustu sína við
bátaflotann hér á staðnum, og
hefur í því skini verið keyptur
pallbíll sem ætlunin er að flytji
það almannarómur á staðnum
að Svarfaðardalur væri gott
pláss og þaðan kæmi aðeins
skemmtilegt og bráðgáfað fólk.
Það sem næst er á döfinni hjá
Sigurbjörg Árnadóttir
smurolíur og annað slíkt að
skipshlið, auk hins hefðbundna
olíubíls sem ávallt verður til
þjónustu.
Gleraugna-
þjónusta
á Dalvík
í Skipagötu 7 á Akureyri er nú
til húsa fyrirtæki, sem nefnist
Gleraugnaþjónustan. Eigendur
eru ung hjón að sunnan, Karl
Davíðsson og kona hans
Margrét Eyfells, en Karl er sér-
fræðingur um allt það, sem lýtur
að gerð og viðhaldi gleraugna.
Nú hefur þetta fyrirtæki
samið við Heilsugæslustöðina
hér á Dalvík um að vera þar
með almenna gleraugnaþjón-
ustu einn dag í viku hverri þ.e. á
þriðjudögum milli kl. 2 og 4 síð-
degis.
Þjónustan verður í því fólgin
að menn geta komið með gler-
augu sín, sem eitthvað er ábóta-
vant, fengið þau löguð eða
endurnýjuð á staðnum eftir því
hve illa þau eru farin. Sé gler
brotið er það mælt og síðan
verður sént nýtt gler frá Akur-
eyri með fyrstu ferð.
Að sjálfsögðu verða svo af-
greidd gleraugnaresept, sem
augnlæknir hefur gefið út. Lögð
verður áhersla á að hafa með-
ferðis í hverri heimsókn fjöl-
breytt úrval gleraugnaumgerða
og sýnishorn af ýmsum tegund-
um sjónglerja.
Þess er að vænta að Svarf-
dælir notfæri sér þessa nýju
þjónustu, sem þeim býðst nú hér
á staðnum.
félaginu er aðalfundurinn en
hann verður haldinn í Safnaðar-
heimili Langholtssóknar 23.
janúar. Þar flytur stjórn félags-
ins skýrslu um störf sín og
stefnumið og þar gefst hinum
almenna félagsmanni kostur á
að koma á framfæri hugmynd-
um um félagsstarfið. Innan
félagsins eru uppi ýmsar hug-
myndir um framtíðarstefnu-
miðin svo búast má við lífleg-
um umræðum. Að fundi lokn-
um verður spilakvöld og verður
þá spiluð fyrri umferðin í
tveggja hrynu keppni. Seinni
umferðin verður spiluð á sama
stað þann 13. feb. kl. 16.00.
Kökubasar verður til fjáröfl-
unar fyrir félagið þann 28. mars
kl. 15 í Safnaðarheimili Lang-
holtssóknar. Kaffigleði aldraðra
verður svo haldin með vorinu
og mun auglýst síðar. Sem sagt
starfið verður með hefðbundn-
um hætti.
Gunnar Jónsson bílstjóri frá
Dalvík hefur af alkunnri rausn
sinni boðið Svarfdælingasam-
tökunum afnot af sumarbústað
sínum í landi Hamars í Svarf-
aðardal fyrir þá félagsmenn sem
Vélgröfukaup:
Bæjarstjórn hefur samþykkt
að kaupa gröfu af gerðinni
Massey Ferguson. Vélin verður
afhent fyrri hluta næsta árs.
Nokkur ágreiningur var um
hvaða vélagerð ætti að kaupá,
en sama verð var á báðum vél-
unum. Fór málið 2svar fyrir
bæjarstjórn og á síðari fundin-
um voru kaupin samþykkt með
5 atkv. en 2 sátu hjá.
Lækjarbakkaland:
Bæjarstjórn hefur samþykkt
að leita eftir því við eigendur
að fá keypt allt landið.
Gjaldskrármál:
Samþykkt hefur verið hækk-
un á gjaldskrá Hitaveitunnar.
Hækkunin tók gildi 5. nóv. og
var 20%. Er þetta fyrsta hækkun
Hitaveitunnar á árinu 1981.
Gjaldskrá Hafnarsjóðs hefur
verið hækkuð um 17%. Tók
hækkunin gildi 20. okt. Dag-
gjöld á barnaheimilum voru
hækkuð um 10% frá I. nóv.
Hundahald:
Samkvæmt nýrri reglugerð
um hundahald á Dalvík er
hundahald utan lögbýla bannað
þó er bæjarstjórn heimilt að
veita einstaklingum undanþágu
Hlín Sigfúsdóttir og Karla Jónsdóttir.
hafa áhuga á að dvelja þar
nyrðra í sumarleyfi sínu. í
sumarbústaðnum er allt til alls
svo menn þurfa ekki að hafa
neinn búnað með sér nema ef
vera skyldi tannbursta. Stjórn
samtakanna mun skipuleggja
afnot af húsinu og eru þeir sem
áhuga hafa beðniraðsnúasértil
hennar eða Eddu Ögmunds-
dóttur í síma 38143.
til hundahalds að upplylltum
ákveðnum skilyrðum. Átti þeirri
skráningu að vera lokið fyrir I.
nóv. s.l. Samkvæmt reglugerð-
inni skulu lögreglustjóri og heil-
brigðisnefnd hafa eftirlit með
því að reglugerð þessari sé fram-
fylgt og á fólk því að snúa sér til
þeirra með allar kærur og um-
kvartanir út af hundahaldi.
Eftirtaldir aðilar hafa fengið
leyfi til hundahalds:
1. Bryndís Björnsdóttir, Báru-
götu 1.
2. Birna Björnsdóttir, Hafnar-
braut 10.
3. Þórdís Hjálmarsdóttir,
Mímisvegi 9.
4. Eggert Briem, Svarfaðar-
braut 20.
5. Stefán K. Jónsson, Mímis-
vegi 12.
6. Þórður Guðmundsson,
Böggvisbraut 15.
Reglugerðin liggur frammi á
bæjarskrifstofunni til sýnis.
Búfjárhald:
Samkvæmt reglugerð nr.
484/1981 er búfjárhald utan
lögbýla óheimilt innan lögsagn-
arumdæmis Dalvíkur nema
með sérstöku leyfi bæjarráðs. í
ákvæðum til bráðabirgða er svo
kveðið á að þeir sem við gildis-
Svarfdælingasamtökin kuna
Gunnari Jónssyni hinar bestu
þakkir fyrir þetta höfðinglega
boð.
Þeim sem vilja vita meira um
Svarfdælingasamtökin störf
þeirra og stefnu og innra skipu-
lag er bent á að mæta á aðal-
fundinn.
Á.H.
töku reglugerðarinnar eiga eða
hafa í umsjá sinni búfé sem
fellur undir reglugerðina, skulu
innan 6 mánaðað frá gildistöku
hennar hafa tilkynnt um búfjár-
hald sitt og sótt um leyfi, ella
fellur niður heimild þeirra til að
halda búfé. Reglugerðin liggur
frammi á bæjarskrifstofunni til
sýnis.
Bókasafn Dalvíkur:
Fyrirhugað hefur verið að
innrétta hluta af kjallara ráð-
hússins fyrir bókasafnið. Múr-
verk er byrjað og mun því ljúka í
janúar. Fulltrúar dansks fyrir-
tækis sem sérhæfa sig í bóka-
safnsinnréttingum voru nýlega
á ferðinni hér og ætla að gera
tillögu að innréttingum fyrir
bókasafnið.
Heilsugæslustöðin:
Lína Gunnarsdóttir hjúkrun-
arforstjóri heilsugæslustöðvar-
innar hefur sagt upp starfi sínu
frá áramótum. Starf hennar
hefur verið auglýst laust til
umsóknar. Stjórn Heilsugæslu-
stöðvarinnar hefur samþykkt
að stefna að því að ljúka norð-
urálmu hússins á næsta ári fáist
til þess fjárveiting. Þar verður
m.a. aðstaða fyrir tannlækni.
RÓIÐ í SELINN. GÖMUL ÞULA
Margir muna eftir Torfa Guð-
laugssyni, sem hér vann við
Kaupfélagið á Dalvík á árabil-
inu 1950-60. Hann kunni mikið
af ljóðum gömlum og nýjum og
er reyndar sjálfur hinn slingasti
vísnasmiður.
Eitt þeirra ljóða, sem Torfi
lærði í æsku sinni í Höfða-
hverfinu er það, sem hér birtist.
Það fjallar um selveiðará ísnum
fyrir Norðurlandi. Kvæðiðlærði
hann af móðurömmu sinni,
Sesselju Gunnlaugsdóttur. Mað
ur hennar var Halldór Jónsson
og bjuggu þau hjón í Keflavík
austan Eyjafjarðar í u.þ.b. 20 ár
á 7. og 8. tug síðastliðinnar
aldar. Hún dó á Barðartjörn
árið 1939 97 ára gömul.
Þetta sérkennilega kvæði eða
þula er ekki kunnað af mörgum
og Torfi álítur, að það hafi
aldrei komist á prent fyrr.
Selveiðar voru mikið stund-
aðar af Svarfdælum áður fyrr
þegar ís var oft nærri landinu og
Norðmenn ekki farnir að drepa
íshafsselinn í vesturísnum
hundraðþúsundum saman, eins
og síðar varð.
Frásögn af selveiði frá Dal-
vík er að finna í nýju Dalvíkur-
sögunni bls. 421.
Seggir róa og sel ja f 'ram
selabátinn mjóa.
Ýtar sex á öliludamm
árum kreppa lófa.
Lófa kreppa árum að
oft um flvðrugeima.
Bragnar sex á háruí’lað
bátinn láta sveima.
Sveima láta bragnar hát
birtings vitt um heiði,
þykjast komnir þeir í mát
þreyttir af selaveiði.
Að veiði sela vil ég nú
vikja nokkuð betur.
vægðarlaus er vinna sú
víst hún margan letur.
Letur hún og lýir þann,
sem litið hejir föður.
Spltinn ekki karlinn kann
ku/da þola róður.
Róður ekki þola þeir
þjáðst sem lengi hafa.
Betra væri langt í leir
sig láta niður graf 'a.
GraJ'a brattar bvlgjur sig,
beisk eru mannaélin.
AJ'því tók ég einn J'vrir mig
aj'tur að róa i selinn.
í selinn róa sexfrá bæ
sá er gamall vandi.
Nýjar J'réttir nú ég J'œ
þeir náðu varla landi.
Landi náðu nauðum úr
nú er upp settur bátur.
Sefaðist þeirra sorgarskúr
seggurinn hver var kátur.
Kœti óx þá köppum með
kall þó væri i sinni.
Mun ég svo láta masinu lilé
mœrðin hróðrar linni.
Fréttir frá Dalvíkurbæ
8 - NORÐURSLÓÐ