Fréttablaðið - 15.05.2017, Blaðsíða 9
SLÁTTUVÉL M46-125R með
drifi, fjórgengis B&S mótor, 1,6 kW,
sláttubreidd 46 cm, 6 hæða stillingar,
50 lítra safnpoki
54.995kr.
53322821
Almennt verð: 64.995 kr.
SLÁTTUVÉL GC-PM 46, fjór-
gengis mótor, 1,9 kW, sláttubreidd 46
cm, 9 hæðastillingar, 50 lítra safnpoki
31.995kr.
748300652
Almennt verð: 39.995 kr.
SLÁTTUVÉL GC-PM 46
B&S, sláttuvél með drifi, fjórgengis
B&S mótor, 1,65 kW, sláttubreidd
46 cm, 9 hæðastillingar, 50 lítra
safnpoki
43.995kr.
748300654
Almennt verð: 54.995 kr.
SLÁTTUVÉL Turbo Lite 330,
1150 W, sláttubreidd 33 cm, sláttu-
hæð 10-30 mm, þyngd 6,5 kg
18.995kr.
53323051
Almennt verð: 22.995 kr.
Tilboðsverð
Tilboðsverð
Tilboðsverð
Tilboðsverð
Tilboðsverð
SLÁTTUORF
Trimmac, 0,6 kW, tvígengis mótor,
sláttubreidd 42 cm
14.995kr.
53322848
Almennt verð 18.995kr.
SLÁTTUORF
GC-ET 3023, 300W,
rafmagns, sláttubreidd 23 cm
3.995kr.
74830011
Almennt verð 5.995 kr.
Tilboðsverð
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
BLÁKORN 5 kg.
1.295kr.
55095007
Tilboðsverð
GRÓÐURMOLD 40 l.
785kr.
55097032
Almennt verð 985kr.
TURBOKALK 12,5 kg.
2.595kr.
55090005
KALKKORN 5 kg.
755kr.
55090002
NÓG AÐ GERA Í GARÐINUM!
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Þegar ég kom frá útlöndum um daginn fór ég að hugsa um „skerta rýmisgreind“. Það er víst
ein af þessum nýmóðins greiningum
og einhvern tímann skildist mér að
hún ætti vel við mig.
Víðáttu-vitlaus
Skert rýmisgreind ku ekki síst lýsa sér
í óvenju bágborinni ratvísi, sem er svo
sannarlega af skornum skammti hjá
mér, ég er algjör rati; ég er beinlínis
víðáttu-vitlaus. Ég þekki engin fjöll,
kann engin örnefni, er ættleri miðað
við afa minn Indriða sem gat ungur
smali ratað heim í niðaþoku með því
að þreifa á steinum og finna jökul-
rispur sem hjálpuðu honum að átta
sig – sem minnir okkur á alla þá eigin-
leika sem við höfum glatað með því að
gerast borgarmenni.
Borgin: Ég hef ráfað um Þingholtin
fullkomlega ráðvilltur í leit að Grund-
arstíg; ég hef lent í Efsta-Breiðholti á
leið í Árbæ, verið kominn langleiðina
til Akureyrar á leið í Stykkishólm; ekið
um Kópavoginn úrkula vonar um að
finna nokkru sinni leiðina út úr því
martraðarkennda völundarhúsi og þar
fram eftir nákvæmlega eins götunum.
Maður á náttúrlega aldrei að
gera eigin galla að allsherjarreglu,
og engum skal ég ætla að vera jafn
víðáttu-vitlaus og ég. En – því er
ekki að neita að stundum hefur það
hvarflað að mér hvort skert rýmis-
greind í vægum og víðum skilningi sé
útbreiddari hér á landi en til dæmis
í Japan eða bara Danmörku: það er
að segja, einhvers konar ónæmi á
umhverfi sitt, skortur á næmi fyrir
rýminu í kring, kannski eiginleiki sem
vex fram hjá fólki sem vanist hefur því
að hafa nóg pláss.
Veldur kannski skert rýmisgreind
því að Íslendingar gefa ekki stefnu-
ljós – ekki einu sinni þeir sem eru í
innri hring á hringtorgi? Veldur skert
rýmisgreind íslenskri raðamenningu?
Ræður hún för þegar teiknuð eru og
reist hús hér á landi? Og umhverfi
skipulagt?
Dautt barrtré
Ég fór sem sé að hugsa um þetta þegar
ég kom frá útlöndum á dögunum,
snemma morguns eftir langt nætur-
flug í þröngum sætum, þröngu rými.
Kalt rokið reif í mann og þyrlaði upp
hugsunum sem lúrðu neðst í hugskoti;
þetta var grár sandbruðnings-svarri og
þegar maður var kominn upp í flugrút-
una skynjaði maður umhverfi sitt með
augum heimalningsins sem skerpast
fyrsta hálftímann eftir lendingu en
dofna svo hægt og rólega.
Það sveið í morgunsárinu og
skilningarvitin voru næm og í smá-
stund beið ég spenntur eftir því sem
kynni að blasa við þyrstum augum
mínum. Það fyrsta sem ég sá af landinu
mínu fagra þegar rútan var lögð af
stað frá Keflavíkurflugvelli var dautt
barrtré. Það stóð þarna í grámanum
og næðingnum, „illa rætt og undarlega
sett“ eins og váboði. Eins og tákn.
Ég velti fyrir mér hver hefði haft
fyrir því að pota niður svona tré á
svo fráleitum stað þar sem það átti
svo augljóslega ekki heima. Og hver
hugsunin á bak við svo einkennilegt
framtak gæti eiginlega verið. Ég velti
því líka fyrir mér af hverju enginn
fjarlægði tréð. Ákvað svo að sennilega
væri þetta nokkurs konar minnisvarði
um skerta rýmisgreind; fullkomið
ónæmi á umhverfi og náttúru. Ég fann
til feginleika þegar komið var í Hafnar-
fjörðinn, þennan fallega og hlýlega bæ,
þar sem að vísu hafa verið sett niður í
Hraununum hús sem virðast byggð af
mönnum með formskyn á við fjögurra
ára börn – með skerta rýmisgrein.
Þau hús vitna eins og svo margt
á Íslandi um einhvers konar andúð
á fegurðinni, uppreisn gegn hlut-
föllunum án þess að sérstök hugsun
búi að baki önnur en sú hugmynd að
ljótleiki vitni um látleysi og praktískan
þankagang. Þetta virðist vera kennt
í verkfræðideildunum sem útskrifa
mennina sem einkum fá að reisa hús
hér á landi, en er meinloka. Hið ljóta
er ekki ódýrara en hið fagra; bara
ljótara. Fegurðin er ekki óþörf: hún
er frumþörf. Og þegar ljótleiki verður
allsráðandi í byggingum húsa dregur
mannlífið dám af því; það verður ljótt.
Kaldar og gráar og svartar kassabygg-
ingar eru eins og ljótt krass í sjóndeild-
arhringinn. Þegar maður á þess kost að
sjá Esjuna, Akrafjall og Skarðsheiði en
fær bara slíkt krass – þá jafngildir það
mannréttindabroti.
Skert rýmisgreind
Ég velti fyrir
mér hver
hefði haft
fyrir því að
pota niður
svona tré á
svo fráleitum
stað þar sem
það átti svo
augljóslega
ekki heima.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 5 . M a Í 2 0 1 7
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
A
-2
0
F
4
1
C
D
A
-1
F
B
8
1
C
D
A
-1
E
7
C
1
C
D
A
-1
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K