Fréttablaðið - 15.05.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.05.2017, Blaðsíða 6
Mikið úrval garðsláttuvéla - með rafmótor eða bensínmótor Garðsláttuvélar ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Frakkland Emmanuel Macron tók við embætti forseta Frakklands við formlega athöfn í gær. Fráfarandi forseti, Francois Hollande, tók á móti Macron í Elysée-höllinni í París, en hún er heimili forseta Frakklands. Macron, sem er 39 ára, er yngsti forseti í sögu fimmta lýðveldis Frakk- lands og sá fyrsti sem ekki kemur úr röðum hinna hefðbundnu valda- flokka; Sósíalista eða Repúblikana. Macron tekur við embættinu af Hollande sem er einn óvinsælasti for- seti Frakklands. Hollande varð forseti árið 2012 en sóttist ekki eftir endur- kjöri. Nýr forseti gekk í gær rauða dregilinn að höllinni og heilsaði for- vera sínum á hallartröppunum. Eigin- kona Macron, Brigitte, gekk ekki með honum til hallarinnar en var viðstödd innsetninguna. Formlegri athöfn lauk svo þegar 21 fallbyssuskoti var hleypt af á bökkum Signu og nýjum forseta ekið að Sigur- boganum þar sem hann heiðraði minningu óþekkta hermannsins. Mikil öryggisgæsla er í París vegna athafnarinnar en lögreglumönnum á vakt var fjölgað um mörg hundruð. Viðbúnaðarstig er enn í gildi í landinu eftir hryðjuverkaárásirnar á Bataclan árið 2015. Macron hlaut yfirburðakosningu í forsetakosningunum sem fóru fram fyrr í mánuðinum. Hann hlaut 66,1 prósent atkvæða, en mótframbjóð- andi hans, Marine Le Pen, fékk tæp 34 prósent. Fram undan eru þingkosningar í Frakklandi í júní. Macron er leiðtogi nýs flokks, En Marche!, sem á ekkert sæti á þingi. Áhrif hans í Frakklandi munu stjórnast mikið af því hvernig nýja flokknum gengur í þingkosning- unum. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segist telja það ólík- legt að Macron nái meirihluta á þingi, það muni hafa sín áhrif. – sg Macron formlega tekinn við sem forseti Frakklands Francois Hollande, fráfarandi forseti, tekur á móti Emmanuel Macron í París. NordicPHotos/GEtty SlyS Einn var fluttur á slysadeild með brunasár eftir að eldur kom upp í kjallaraíbúð við Mosgerði í Reykjavík í gærmorgun. Allt tiltækt lið var sent á staðinn enda lagði mikinn reyk frá íbúðinni. Húsið var mannlaust þegar slökkvilið bar að garði en þá var húsráðandinn, sá sem fór á slysa- deild, kominn út úr húsinu. Tals- verðar skemmdir urðu á íbúðinni. – sks Á slysadeild eftir eldsvoða SamFélag Ævar Þór Benediktsson, betur þekktur sem Ævar vísinda- maður, sendi frá sér tvö flöskuskeyti í janúar 2016. Nú hafa þau bæði fundist. Hið fyrra fannst í Skotlandi í janúar síðastliðnum. Nú hefur hið síðara fundist í Færeyjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ævari. Laufey Óskarsdóttir Hansen, sem búsett er í Þórshöfn í Fær- eyjum, hafði fylgst náið með ferða- lagi skeytisins í gegnum netið og vissi því nákvæmlega hvar það var niðurkomið. Hún lagði land undir fót ásamt fjölskyldu sinni til að nálg- ast skeytið og fann það í Húsavík á Sandey, eftir að það hafði rekið 18 þúsund kílómetra. – jhh Bæði skeyti Ævars fundin Flöskuskeytin fundust á skotlandi og í Færeyjum. Fréttablaðið/Valli FangelSiSmál Afstaða, félag fanga, hefur sent Fangelsismálastofnun erindi þar sem þess er farið á leit að reglu um afplánun á áfangaheimil- inu Vernd verði breytt, því að hún gangi í berhögg við yfirlýst markmið áfangaheimilisins, að aðlaga fangann samfélaginu síðustu mánuði refsi- vistar hans. Reglan, sem Afstaða vill breyta, kveður á um að fangi skuli mæta í hús á kvöldverðartíma, mánudaga til föstudaga, fyrir klukkan 18 og dvelja þar til klukkan 19. Er þetta sagt liður í eftirliti með föngum. Afstaða segir þetta standa föngum fyrir þrifum. Þá hefur umboðsmaður barna hefur sent bréf til Fangelsismála- stofnunar og spurt hvort barnvæn sjónarmið hafi verið höfð til hlið- sjónar þegar reglan var sett. Guðmundur Ingi Þóroddsson, for- maður Afstöðu, segir ljóst að reglan sé vond fyrir fjölskyldumenn. „Að meina föngum að vera á heimili sínu með fjölskyldunni á kvöldmatar- tíma, hlýtur að gera föngum erfiðara fyrir að aðlagast samfélagi sínu að nýju," útskýrir hann. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, segist vilja tryggja að þessi barnvænu sjónar- mið séu höfð með. „Okkur hefur þótt vanta upp á að fangelsisyfirvöld hafi í huga að fangar eiga líka börn.” Guðmundur Ingi segir regluna einnig standa í vegi fyrir atvinnu- möguleikum fanga. „Og ekki síst framþróun í starfi. Margir fanganna hafa áhuga á að vinna í veitingageir- anum, þar sem er mikla vinnu að fá um þessar mundir, en fá hreinlega ekki vinnu því þeir geta ekki unnið á matmálstíma.“ Hann bendir á að viðveruskyldan á milli kl. 18 og 19 hafi í einhverjum tilvikum leitt til þess að fangar hafi ekki getað sótt kvöldnámskeið, til dæmis til að öðlast ökuréttindi. Guðmundur segist skilja vel að eftirlit þurfi að hafa með föngum, meðal annars þeim sem eiga við fíknivanda að stríða. „En með því að setjast niður og ræða málin hlýtur að vera hægt að komast að niðurstöðu sem allir geta sætt sig við. Þetta er í raun gagnslaust eftirlit sem hamlar þessu fólki sem er að reyna að kom- ast út í samfélagið á nýjan leik. Stað- reyndin er sú að á milli kl. 18 og 19 frá mánudögum til föstudaga taka þeir fangar sem borða kvöldverð kannski 10 mínútur í það og hitta þar fyrir matráðskonu, en að því loknu fara þeir til herbergja sinna þar sem þeir dvelja þar til þeir mega fara aftur. Þegar hins vegar um er að ræða lögbundna frídaga sem ekki eru á laugardögum eða sunnudögum fara fangar beint til herbergja sinna. Eftirlitið er ekki meira en þetta,“ segir Guðmundur og kallar eftir breytingum. Samkvæmt lögum getur Fangelsis- málastofnun leyft fanga að afplána, til að mynda á Vernd, sem er utan fangelsis hluta refsitímans, að því gefnu að hann stundi vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð sem stofn- unin hefur samþykkt. olof@frettabladid.is Regla Verndar standi föngum fyrir þrifum og sé gagnslaus Afstaða vill breyta reglum um afplánun á áfangaheimilinu Vernd, sem eru liður í eftirliti með föngum. Um- boðsmaður barna spyr hvort barnvæn sjónarmið hafi verið höfð til hliðsjónar þegar reglurnar voru settar. Fangar hafa heimild til að afplána hluta dóms síns á áfangaheimilinu Vernd. Fréttablaðið/GVa Okkur hefur þótt vanta upp á að fangelsisyfirvöld hafi í huga að fangar eiga líka börn. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna á Íslandi 1 5 . m a í 2 0 1 7 m á n U d a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 5 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D A -3 4 B 4 1 C D A -3 3 7 8 1 C D A -3 2 3 C 1 C D A -3 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.