Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1994, Síða 6

Norðurslóð - 14.12.1994, Síða 6
6 — NORÐURSLOÐ m borð í rann- sóknaskipinu Welwitchia ein- hversstaðar í Indlandshafínu í febrúar/mars 1994. Komið þið sæl og blessuð. Ég sendi hér eina ritsmíðina í viðbót. Iivort sem það verður mönnum til armæðu eða yndisauka. Þá er nú svo komið að maður er að verða búinn að þvælast um heimshöfin sjö, eða svona því sem næst. En það er góðra manna siður að byrja á byrjuninni. Vandinn er bara að ákveða hvar hún er. Ætli það gæti ekki verið þegar ég yfirgaf gömlu „góðu" Bengucla fyrrihluta desember og fór í vel þegið jólafrí. Það varð náttúrlega eins og jólafrí eru vön að vera, þ.e.a.s. ekkert frí, nóg að gera. Það var verið að spraula bílinn okkar og ekki stóðust nú svo sem allar dagsetningar hjá blessuðum iðnað- armönnunum hérna ntegin á kúl- unni, neitt frekar en vant er þarna norður frá. Þannig vorum við MKÍiÍf ’ rr JHH iii.« o ** , ■ j o m Kannsóknaskipið Welwichita, í baksýn hið lielga fjall Japana, Fuji-Yama. (Myndir á þcssari síðu: Sigurður Hrciðarsson) eða sitja á gólfinu, við þurfum meira að segja að leggjast á mag- ann á vélarrúmsgólfinu til að ræsa aðalvélina. Og illt að fylgjast með höfðuðlínumælinum, sem er aðal verkfærið þegar verið er að toga með flottrollinu, þá þurfa þeir að liggja á hnjánum úti í einu horninu á brúnni. Og þegar mér varð það á að benda á að það hafi gleymst að leggja heitt vatn að vöskunum á klósettunum, þá urðu þeir alveg standandi hissa og sögðu: „Heitt vatn, til hvers? Þessir vaskar eru bara til að þvo sér um hendumar". Þannig að þó að þetta sé glæsilegt og gegnumvandað skip, búið öll- um mögulegum og ómögulegum tækjum, og öllum af bestu gerð, þá er eitt og annað sem við erum ekki beint sáttir við. Þrenns konar stafróf Japanir eru alveg óskaplegir þjóð- ernishyggjumenn, líklega ennþá verri en Islendingar, og þeim finnst alveg sjálfsagt að heimurinn lagi sig að þcirra viðhorfum og háttum. En þeir sáu samt að þetta Frá heimsókn til Japans og siglingu um heimshöfin þrjú Frásögn Stefáns yfirvélstjóra Gunnarssonar frá Húsabakka í bréfi til foreldra sinna meira og minna að basla við að fá það klárað í síðustu vikunni fyrir jól, en tókst raunar ekki alveg. Svo voru áramótin ekki fyrr liðin en ég þurfti að fara að taka ntig til í smá ferðalag. Skrapp til Japan til þess að kynnast nýju rannsóknar- skipi, sem verið er að smíða þar fyrir Namibíumenn. Við lögðum af stað að heiman þriðja janúar. Ég, Sigurður skip- stjóri og einn namibískur fiski- fræðingur. Ferðin tók tæpa þrjá sólarhringa og var alltaf flogið á nóttunni þannig að svefninn varð svona heldur í minna lagi. Það var stoppað einn dag í Singapore og reyndum við að nýta okkur það. Singapore er ákaflega vinalegur staður, borgin mjög hrein og snyrtileg. Enda voru allstaðar uppi áróðursskilti fyrir góðri umgengni, og tilkynningar um að hámarks- sekt fyrir að henda rusli á götuna væri sem svaraði 120.000 ísl. krónum. Mér var sagt að væri maður tekinn fyrir að henda frá sér sígarettustubbi væri sektin fyrir það u.þ.b. 5.000 ísl. kr. Mér til mikillar furðu er enska þarna fyrsta mál, síðan er kín- verska nr. tvö og malayiska í þriðja sæti. Fólkið er óskaplega þægilegt, opið og vingjarnlegt, kannski held- ur miklir sölumenn. Veðurfar mjög gott, enda stendur eyjan nán- ast á miðbaug, og svo mun verðlag vera eitthvað það besta sem þekk- ist. Þarna var okkur bent á að skoða litla eyju sem búið var að gera að ferðamannamiðstöð. Þar var búið að koma upp öllum gerð- um af söfnum, bæði um sögu eyj- arinnar (þ.e. Singapore). Einnig helvíta miklu þorpi með bygging- um í stíl hinna ýmsu asísku þjóða, og síðan var þarna magnaðasta sjó- dýrabúr sem ég hef séð. Þar var aðallega fiskibúrið risa stórt og var farið í gegnunt það eftir glerboga- göngum sem hlykkjuðust um það eina 40-50 metra. Þetta var svo tandurhreint að maður beygði sig ósjálfrátt |)egar stærðar skötur og hákarlar koniu syndandi beinl að manni frá báðum hliðum og ofan- frá líka. Þægileg hraðlest En þetta var nú bara útúrdúr á leið- inni til Japan. Þar var lent á aðal- flugvellinum sem er u.þ.b. 150 km utan við Tokyo, og fórum við inn í Brel'ritari, Stefán Gunnarsson, úti fyrir Japansstrondum. Nokkur formálsorð Namibía heitir land eitt í sunnanverðri Afríku og liggur á vestur- strönd álfunnar að Atlantshafi. Namibía laut um tíma yfírráðum Suður-Afríkumanna en hlaut sjálfstæði árið 1990. Þá öðlaðist landið yfírráð yfir 200 mílna llskveiðilögsögu og þurftu lands- inenn að byggja upp haf- og fískirannsóknir sínar frá grunni. Hafrannsóknastolnun Namibíu var stofnuð þegar landið hlaut sjálfstæði. Helúr hún að sögn allmörgum ágætum vísindamönnum á að skipa, en engum sem er mcð sérmcnntun í sjávarútgerð. Þannig var málum háttað þcgar íslendingar komu til starfa í sjávarútvegi Namibíu fyrir fjórum árum en síðan Itefur málum fleygt mikið fram. Frá þessu segir efnislega í ágústblaði Fiskifrétta þ.á. í viðtali við Hrafnkel Eiríksson fískifræðing sem er verkefnisstjóri hjá Hafrann- sóknastofnun Nantibíu. Sjö Islendingar vinna við uppbyggingu haf- og fiskirannsókna í Namibíu á vegunt Þróunarsamvinnustofnunar ís- lands. Stofnunin útvegar yfmnenn á rannsóknaskip Namibíumanna og tvo sérfræðinga á hafrannsóknastofnunina þar og greiðir laun þeirra. Einn þessara yfirmanna er Stefán Gunnarsson, vélstjóri frá Húsabakka í Svarfaðardal, sonur Gunnars Markússonar og Sigur- laugar Stefánsdóttur, þeirra góðkunnu skólastjórahjóna scm voru á Húsabakka í Svarfaðardal árin 1955-1962. í mars síðastliðnum sóttu þeir Sigurður A. Hreiðarsson skipstjóri og Stefán Gunnarsson vélstjóri nýtl og glæsilegt rannsóknaskip til Japans og sigldu Japanir því til Namibíu. Skipið, sem heitir Wel- witchia, er tæpar 500 brúttórúmlestir og cr gjöf frá ríkisstjórn Japans, cn Japanir hafa gert út krabbaveiðibáta frá Namibíu með leyfi þar- lendra stjórnvalda. Skipið er búið öllum fullkomnustu siglingar- og fiskileitartækjum og réðu íslendingarnir hvaða tæki voru valin: það kemur í hlut þeirra að vinna meö þau þar til Namibíumenn taka sjálfir liskirannsóknirnar í sínar hendur. „Bengúela" hét skip það sem notað var til fiskirannsókna við Namibíustrendur áður en Welwitchia kom til sögunnar. Stefán Gunnarsson skrifar foreldrum sínum fróðleg bréf með frá- sögnum um það sem á daga hans drífur. Gunnar og Sigurlaug voru svo vinsamleg að leyfa þeim sem þcssar línur ritar að sjá eitt af bréf- unt Itins víðförla sonar síns þar sem hann scgir frá því þegar þeir fc- lagar sóttu rannsóknaskipið Wclwitchia til Japans. 10.000 mílna siglingu. Birtist frásögnin nú í Norðurslóð með góðfúslegu leyfi bréfritara og viðtakenda þess. Júl. J. Dan. borgina með járnbrautarlest sem ók á 200-250 km hraða og var eitthvert þægilegasta farartæki sem ég hef ferðast með. Það sem mér fannst merkilegast var að þrátt fyrir að hún rynni á venjulegum teinum þá var hún alveg hljóðlaus og nánast enginn titringur eða skakstur. Það var gerður stuttur stans í Tokyo og síðan haldið með annarri svipaðri lest suður á bóginn um 200 km í þetta skiptið til borgar að nafni Shizuoka og þó það væri nú ekki margt hægt að sjá út úr lest á þessum hraða, þá fannst mér að byggðin rofnaði aldrei, nema þar sem fjallshlíðamar voru svo bratt- ar að það tolldi ekkert utan í þeim. Skipasmíðastöðin sem við vorum að fara til er í hafnarbæ Shizouka og heitir sá Simizu, smábær, hálf- gert þorp á japanskan mælikvarða, bara 50.000 íbúar, og stendur við Suruqa flóa undir rótum þess fræga fjalls Fuji-Yama. Þama vorum við sem sagt komnir til að skoða og læra á þetta skip sem japanska þróunarstofnun- in er að gefa namibísku þjóðinni. Þetta er 47 metra langt 490 tonna rannsóknaskip, byggt eins og skut- togari, þó bara með eitt þilfar. Það ermeð 1500hestafla Yanmaraðal- vél og þremur Ijósavélum sömu tegundar, eitthvað um 450 Kw til samans. Til hvers heitt vatn? Þegar við komum var smíðinni að mestu lokið og skipið tilbúið til prufukeyrslu. Hún stóð svo yfir í um hálfan mánuð, þar sem allir hlutir voru prófaðir til hins ýtrasta og kom það ákaflega vel út. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef verið á skipi sem er bæði algjörlega hljóð- laust og titringslaust og það jafnt þótt verið væri á fullri ferð með háþrýstispilin í notkun, sem er nú enginn smámunur frá Benguelu gömlu. Þar sem Japanir ætla að skila skipinu til Nantibíu, þá vorum við þarna aðeins til að læra og höfðum ekkert um skipið að segja á þessu stigi, því miður, því hugsanagang- ur Japana er í ljósára fjarlægð frá því sern við eigum að venjast. Og það þó við miðunt við Afríku. Þeim finnst ekkert athugavert við að þurfa að sitja á hækjum sínum við vinnuna eða á fjórum fótum myndletur þeirra yrði of stór biti í háls fyrir útlendinga, og raunar fyrir þá sjálfa líka. Til að nota það þurfa menn að kunna að minnsta kosti 2.000 tákn, og allir vel menntaðir Japanir kunna yfir 10.000. Svo að þeir tóku sig til fyrir nokkrum árum, einhvemtíma eftir stríð skildist mér, og komu sér upp stafrófi. Þeir gátu náttúrlega ekki verið að nota þetta vestræna stafróf, heldur bjuggu til nýtt, byggt á gamla myndletrinu, þó nú kæmust þeir af nteð 54 tákn. Hins vegar kom fljótlega í ljós að þetta nýja stafróf þeirra var heldur flók- ið og seinlegt að skrifa það, auk þess erfitt að búa til rit- og prent- vélar sem réðu við það. Þeir hönn- uðu því eitt stafróf í viðbót með heldur einfaldari táknum, og nú kenna þeir þau öll þrjú. Þegar við svo vorum eitthvað að kvarta und- an þessu tungumáli þeirra á leiðar- vísum og handbókum, þá fengum við að vita að það væri ekki nokk- urt mál að læra það. Þetta gerir það að verkum að það er alveg of- boðslega erfitt fyrir útiendinga að ferðast þarna. Það er ekki nokkur leið að muna hvaða tákn eru fyrir þetta götunafnið eða hitt, né heldur átta sig á merkingum á strætis- vögnum og lestum. Og þó maður hafi þetta skrifað á blað, þá er strætisvagninn farinn þegar loks- ins er búið að bera saman nöfnin, eða þá að maður er kominn fram- hjá stoppistöðinni þar sem átti að fara út. Jeppar í snjóleysi Eins er fullkomlega vonlaust fyrir útlendinga að ætla að reyna að aka bíl í Japan, bæði af fyrrnefndum ástæðum, menn vita aldrei hvar þeir eru staddir, og svo er umferðin hrikaleg, götur allar alveg önnjóar og gjörsamlega fullar af bílum sem allir troðast hver innan um annan á óskiljanlegan hátt; það er eins gott fyrir menn að vita upp á millimetra hvað bflamir þeirra eru breiðir. Síðast en ekki síst er hvergi nokkurs staðar hægt að leggja bíl. Samt eiga allir Japanir bíla, eða allflestir, og það engar gamlar druslur. Það var viðburður að sjá eldri fólksbíla en svona þriggja ára, sá elsti sem ég sá var sjö ára og þegar ég spurðist fyrir um hvað yrði um alla gömlu bílana, var mér sagt að þeir væru allir seldir til

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.